Stúdentablaðið - 17.06.1945, Síða 18
18
STÚDENTABLAÐ
I—
...
n
uuumuuuuuuuuumi i nmn nmm umr
rrtTrprrrirrriiTír TT cÆ
! •! 11 1 M 1IIII 11 1, |l, WUU- aLU
'fucfut^h/nf
Eftir stofnun félagsins voru sem að undan-
fömu æfðir fimleikar undir stjórn Björns Jak-
obssonar, auk þess veitti Sigurjón Guðjónsson
tilsögn í glímu.
Sumarið 1928 fór Björn Jakobsson utan og
var erlendis næsta vetur. 1 stað hans var þá
ráðinn Júlíus Magnússon til að annast fimleika-
kennsluna.
Vorið 1928 var ráðgert að haldið yrði íþrótta-
mót fyrir stúdenta frá Norður-Þýzkalandi og
Norðurlöndum. Keppnin skyldi háð í Kiel.
Framkvæmdaráð þessa móts ritaði Stúdentaráði
bréf og bauð íslenzkum stúdentum þátttöku í
mótinu. Boðinu var hafnað. Móti þessu var
frestað til vorsins 1929. Skrifaði þá fram-
kvæmdaráð mótsins aftur og lét i ljós ósk um
það, að íslenzkir stúdentar sýndu glímu. Þessu
boði var tekið og glímukennari ráðinn Guð-
muudur Kr. Guðmundsson. Öhætt mun að
þakka honum það, að fært reyndist að senda
flokk glímumanna til sýningar á mótinu. Eftir-
taldir stúdentar tóku þátt í förinni: Fararstjóri
var Guðmundur Karl Pétursson stud. med.,
Bjarni Oddsson stud. med., Einar Guttormsson
stud med., Hallgrímur Björnsson stud. med.,
Haraldur Sigurðsson stud. med., Hinrik Jóns-
son stud. med., Jóhannes Björnsson stud. med.,
Öskar Þórðarson stud. med. og Jón Þorvarðsson
stud. theol.
Flokkurinn hlaut góða dóma í Þýzkalandi,
enda vakti glíman athygli á mótinu sjálfu.
Á þessu sama ári gaf Iþróttasamband Islands
standmynd úr silfri af sjómanni, sem Sir Thom-
as Hohle sendiherra hafði gefið því, fylgdu þau
fyrirmæli, að keppa skyldi árlega um styttuna
í íslenzkri glimu.
Sunnudaginn 27. marz 1930 var keppt í
fyrsta skipti um styttu I. S. f., Sjómanninn.
Þátttakendur voru sjö, fimm úr íþróttafélagi
Háskólans og tveir úr Glímufélagi Reykjavík-
ur. ÍJrslit urðu þau, að fyrstur varð Hallgrimur
Björnsson, hlaut hann styttuna og nafnbótina
„Glímukóngur stúdenta.“
Næsta keppni um þessa styttu fór fram 3.
apríl 1931. Þátttakendur voru þá aðeins fjórir.
Sigurvegari varð Ölafur Geirsson stud. med.
Eftir þetta féllu glímuæfingar niður og hefir
ekki verið keppt um styttuna síðan.*
Veturinn 1930 fór fram undirbúningur að
keppni í knattspyrnu milli Háskólans og
Menntaskólans og sunnudaginn 4. apríl fór svo
keppnin fram í fyrsta skipti og lauk með sigri