Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 20
við úrvalslið úr íþróttafélögunum í Reykjavík
og Hafnarfirði. Var það 25. okt. 1942 í hálf-
leik á knattspyrnukappleik, sem fram fór milli
úrvalsliðs stúdenta og úrvalsliðs félaganna í
Reykjavík. tJrval félaganna vann knattspyrn-
una eftir mjög harðan og tvisýnan leik, með
3 : 2. Boðhlaupið unnu þeir einnig, en aðeins
2/10 úr sek. á undan stúdentum, á 1:41,5 mín.
Árið 1936 hófu stúdentar hópferðir á skíði.
Hafði Iþróttafélagið gengizt fyrir kaupum á
skíðum og lánaði þeim stúdentum skíði, sem
engin áttu. Vinsældir þessara ferða jukust
smám saman og hafa stúdentar keppt á skíðum
hin síðustu ár fyrir Iþróttafélag Háskólans og
getið sér góðan orðstír. Fimleikar hafa verið
æfðir frá stofnun félagsins, fyrst fyrir félags-
menn og nú síðan 1941 sem skyldugrein fyrir
stúdenta á fyrsta og öðru námsári. Frá sama
tíma hafa stúdentar einnig verið skyldir að
sækja vissan tímafjölda í sundi og ljúka próf-
raun í þvi.
Þó að segja megi og það með sanni, að íþrótta-
líf stúdenta hafi ekki staðið með þeim blóma,
sem æskilegt hefði verið, hefir þó margt drifið
á dagana síðan stúdentar hófu sínar fyrstu æf-
ingar 1927. Skortur á húsnæði til hvers konar
íþróttaæfinga hefir frá upphafi verið erfiður
Þrándur í Götu og því tæplega von til, að fjöl-
skrúðugt íþróttalif hafi náð að blómgast meðal
stúdenta.
Síðan 1939 hafa farið fram athuganir á
möguleikum fyrir íþróttahússbyggingu. Sérstök
húsbyggingarnefnd hefir starfað að þessum
málum og áttu sæti í henni fráfarandi rektor,
Jón S. Hjaltalín, prófessorarnir Alexander Jó-
hannesson og Jón Stefensen og Benedikt Jak-
obsson, íþróttakennari Háskólans. Að undan-
förnu hefir hr. Jón Halldórsson, arkitekt, starf-
að að teikningum fyrir nefndina og birtast hér
myndir af sal, sem fyrir skömmu hefir verið
samþykkt að byggja. Þetta mun verða stærsti
og bezti fimleikasalur á landinu, þegar byggingu
hans er lokið, sem væntanlega verður á kom-
andi vori.
Nú munu sumir telja, að þörfum stúdenta
sé þar með fullnægt, en því fer fjarri. Eins og
að framan getur eru stúdentar skyldir að ljúka
prófi í sundi. Á undanförnum árum hefir geng-
ið í mesta basli með að fá heppilegan tíma i
Sundhöll Reykjavíkur, '■'egna þess, hve mikil
aðsókn er þar. Ég tel pví mjög aðkallandi, að
Háskólinn byggi yfirbyggða sundlaug hið fyrsta.
Æfingavöllur og iþróttaskáíi fyrir innanliúss-
mót er svo næsti áfanginn. Háskóla Islands ber
að keppa að því marki, að verða vígi líkamlegrar
menningar, ekki síður en andíegrar.
Fram til ársins 1940 voru háð ýmis konar
íþróttamót milli hinna ýmsu háskóla á Norður-
löndum. Mót þessi áttu drjiigan þátt í því, að
kynna stúdenta frændþjóðanna, efla samlmg
þeirra og samstarfsvilja og oft á tíðum að
tengja þá órjúfandi böndum.
Menntun okkar og menning er af norrænum
toga spunnin, og er oss meiri þörf nú að treysta
hin fornu vináttubönd við Norðurlönd, eftir
langa einangrun frá norrænum kynnum.
Nú á næstu mánuðum munu háskólar Norð-
urlanda hefja kynni sín að nýju. Einn liður í
þeirri kynningu verða íþróttamót.
Með nýjum og batnandi skilyrðum til hvers-
konar náms, á íslenzkum stúdentum að vera
það vorkunnarlaust, að taka upp keppni við
frændur sína á Norðurlöndum á komandi árum.