Stúdentablaðið - 17.06.1945, Qupperneq 23
STÚDENTABLAÐ
23
Dr. Björn Jóhannesson:
Um nám í Ameríku
og íslenzk viðhorf
til þess
Ég hefi orðið við málaleitun Stúdentablaðs-
ins um að skrifa greinarkorn um ameriska
skóla. Litlar almennar upplýsingar munu liggja
fyrir um þá hér, enda virðast mér umræður um
nám og námsmenn vestra oft bera merki handa-
hófs og lítils kunnugleika. Þótt ég hafi hvorki
ástæður né næga þekkingu til að gera málinu
full skil, vona ég, að grein þessi megi verða
til nokkurra úrbóta.
I.
Ég dvaldist aðeins við einn skóla í Banda-
ríkjunum, Cornell háskólann í Iþöku í New
York ríki. Ég vil því leyfa mér að bregða upp
mynd af þessum skóla, en hún ætti í aðalatrið-
um að gilda um aðra skóla þar í landi, þvi að
þeir munu flestir vera mjög áþekkir um skipu-
lag og starfsaðferðir.
Við háskólann eru að jafnaði um 7000 stú-
dentar, en um 1200 prófessorar og aðstoðar-
fólk þeirra við kennslu og rannsóknir. Háskól-
inn er í rauninni safn fjölda skóla, sem eru að
meiru eða minna leyti sjálfstæðar stofnanir.
Má nefna meðal þeirra verkfræðiskóla, land-
búnaðarskóla, dýralæknaskóla, lagaskóla,
kvennaskóla, arkitektaskóla og hotelskóla. Sum-
ir þessara skóla greinast síðan í fleiri deildir
(departments). Sérstakar deildir eru fyrir stærð-
fræði, eðlisfræði, efnafræði, jarðfræði, leiklist
og mætti þannig lengi telja.
Cornell háskólinn er rik stofnun og nema
tekjur hans nokkru meir en tekjur íslenzka rik-
isins fyrir stríð. Er skólinn því vel búinn að
byggingum og áhöldum og vinnuskilyrði yfir-
leitt mjög góð.
Kennsla fer fram með svipuðum hætti og
við evrópiska skóla: með fyrirlestrum, yfir-
heyrslum og verklegum æfingum.
Mikil verkaskipting um kennslu og rannsókn-
ir einkennir Cornell, a. m. k. ef borið er sam-
an við verkfræðiskólann í Kaupmannahöfn, en
ég nam við þann skóla í nokkur ár. Hver pró-
fessor sér um kennslu á tiltölulega takmörk-
uðu sviði, og er honum því auðveldara að fylgj-
ast með nýjungum og framförum í sinni grein.
Slíkt fyrirkomulag er sérstaklega ákjósanlegt
fyrir þá, sem stunda framhaldsnám á tiltölu-
lega takmörkuðum sviðum.
I prófessorsstöður veljast að sjálfsögðu hinir