Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Qupperneq 24

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Qupperneq 24
24 STtJDENTABLAÐ beztu menn, sem fáanlegir eru á hverjum tíma. Flestir þeirra hafa doktorspróf. Nokkrir af helztu vísindamönnum Evrópu hafa flúið til Ameríku síðasta áratuginn og starfa við háskóla þar. Margir prófessorar hafa einn eða fleiri að- stoðarmenn við kennslu, og fer það eftir fjölda nemenda og eðli kennslugreinar. Algengt er að stúdentar, sem eru að vinna að doktorsprófi, aðstoði við kennslu í sínum aðalnámsgreinum, oftast við yfirheyrslur eða verklegar æfingar. Slíkt lengir að vísu námstímann, en þeir vinna um leið fyrir sér að nokkru eða öllu leyti. Sam- keppni um slíkar aðstoðarstöður var allhörð fyr- ir stríð og völdust því að jafnaði í þær duglegir menn. Kennaralið við Cornell háskólann, miðað við fjölda nemenda, er að mun meira en við þá evrópiska skóla, sem ég hefi kynni af. Meðalaldur stúdenta, er þeir innritast í skól- ann, mun vera um 18 ár. Hafa þeir þá lokið prófi frá fjögurra ára skóla, er nefnist „high school“. Hægt er að velja nokkuð um náms- greinar í þessum skólum með tilliti til fram- tiðaráætlana. Nemendur hafa meðal annars að- gang að allskonar verkstæðum og vinnustofum. Þessi undirbúningsmenntun er þvi skemmri en undirbúningsmenntun hér á landi. Einkum læra menntaskólanemendur hér stórum meir í málum. Við innritun í háskólann kýs nemandi sér leiðbeinanda um skipuleggingu náms og val „kúrsusa" fyrir hvert semester. Ráðunaut þess- um, sem að jafnaði er prófessor í aðalgrein nemenda, ber að fylgjast með vinnu stúdents- ins og leysa úr vandamálum eftir getu. Val á „kúrsusum“ er misjafnlega frjálst í hinum ýmsu skólum. Það er t. d. bundnara í verkfræði en í fagurfræðum. 1 öllum greinum er þó nokkuð frjálsræði um val, og geta nem- endur sótt hvaða „kúrsus“ við skólann sem er, svo fremi að þeir fullnægi settum skilyrðum um undirstöðukunnáttu. Þess er krafizt, að stúdentar mæti að jafn- aði í timum, enda þykir slíkt sjálfsagt, og má segja, að það séu óskrifuð lög meðal nemenda. Stúdentum er haldið að vinnu með sífelld- um smáprófum. Er tekið tillit til allra slikra prófa við lokaeinkunn. Einkunnir eru gefnar í prósentum, og er 59 eða lægra falleinkunn í hverju einstöku fagi. Kennarar gefa einkunnir án prófdómara. Nemendur verða að hverfa frá skólanum, ef þeir stunda nám sitt slælega að dómi kennara. Háskólanám til „bachelor“-prófs er yfirleitt 4 ár, eða 8 semester, en þó 5 ár í einstökum greinum, svo sem efnaverkfræði. Tvö önnur próf — eða gráður — eru gefin við ameríska háskóla: „masters“-próf og doktors- próf. Hið fyrra krefur að jafnaði eins til eins og hálfs árs náms frá „bachelor“-prófi, hið sið- ara þrjú ár skemmst frá „bachelor“-prófi, eða tvö ár frá „masters“-prófi. Það má segja, að doktorspróf sé nauðsynlegt þeim, sem ætla að leggja stund á kennslu við háskóla eða vinna að vísindastörfum. II. Að lokinni þessari stuttu lýsingu á fyrir- komulagi Cornell háskólans, vil ég drepa á fá atriði, sem vöktu athygli mína. Milli kennara og nemenda ríkir hispurslaus- ara og frjálsmannlegra andrúmsloft, bæði í kennslustundum og utan þeirra, en ég átti að venjast frá Kaupmannahöfn. Kennarar gera sér far um að fylgjast sem bezt með vinnu hvers nemanda, enda eru stúdentar algjörlega ófeimn- ir að leita til þeirra um hjálp. „Akademiskt frelsi“ er eklci við skólann í þeim skilningi, að nemendur þurfi ekki að mæta í tímum nema þegar þeim sýnist, og fannst mér þetta óviðkunnanlegt fyrst í stað. Það má þó teljast sanngirniskrafa af hálfu hvaða skóla sem er, að nemendur mæti í kennslustundum. 1 reynd getur slík krafa aðeins skert „frelsi“ þeirra lötu, og er hæpið að ætla, að þeir þrosk- ist á því að svíkjast um störf sín. Próf við Cornell háskóla valda yfirleitt minna' taugastríði en títt er um próf við íslenzka skóla. Ástæðan mun m. a. vera sú, að stúdentar eru sífelldlega að taka próf, en þó einkum, að þeir taka lokapróf í enda hvers semesters í þeim

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.