Stúdentablaðið - 17.06.1945, Page 27
STÚDENTABLAÐ
27
Stúdentar útskrifa&ir úr Menntaskólanum á Akureyri 1944.
t
komna, að þeir dæma ástand og kollega sína,
sem heima eru, of hart. Þeir hafa ekki nægilega
kynnt sér, hvað gert hefir verið hér í þeirra
grein, né þau vinnuskilyrði, sem hér hafa ríkt.
Það er mikil nauðsyn að samvinna megi tak-
ast á milli nýliðanna og þeirra eldri. Hvor aðil-
inn getur nokkuð af hinum lært og við höfum
ekki efni á því að misnota sérfrótt vinnuafl.
Ameríkumenn hafa um langt skeið haft það
álit í Evrópu, að þeir væri miklir yfirborðsmenn
og skrumauglýsendur. Má vera, að fólk hér
álykti, að íslenzkt námsfólk, sem sækir háskóla
véstan hafs, muni smitast af slíkum eigindum.
1 þessu sambandi vil ég aðeins benda á, að ég
hefi hvergi verið, þar sem skrum og mont var
minna áberandi en við Cornell háskólann.
#
Hér að framan hefir verið leitað nokkurra
skýringa við þeim orðrómi, að íslenzkir stú-
dentar í Bandaríkjunum muni yfirleitt vera
miklir yfirborðsmenn. Ég verð að álykta, að það
sé að mjög litlu leyti þeirra sök, enda ómaklegt
að þeir sæti slíkum ásökunum. Það verður ekki
dregið í efa að þeir hafa góða aðstöðu til náms
á hvaða sviði sem er. Það ætti því að vera ósk
og von Islendinga, að vesturfararnir megi að
námi loknu leggja virka hönd á að fegra og
byggja betur okkar land.