Stúdentablaðið - 17.06.1945, Síða 36
36
STtJDENTABLAÐ
Akcrdemiskur annáll
Merkasti vi&burðurinn.
Enn hefur stúdentamóts þess, er haldið var
í Reykjavík 18.—19. júní 1944 eigi verið get-
ið í Háskólaannál. En samkvæmt. upplýsing-
um próf. Ágústs H. Bjarnasonar gerðist
þetta helzt á móti þessu:
Ávörp þeirra próf. Ágústs H. Bjarnasonar
um landsmótið og próf. Ölafs Lárussonar: Um
þátttöku íslenzkra stúdenta í sjálfstæðisbar-
áttu þjóðarinnar. Því næst hófust umræðu-
erindi. I. Um stofnun bandalags ísl. stúdenta,
málshefjandi Páll S. Pálsson; II. Sjálfstæði
islands og afstaða þess til annarra landa, máls-
hefjandi Ásgeir Ásgeirsson alþm. og banka-
stjóri; III. Viðnám við erlendum áhrifum,
málshefjandi Gylfi Þ. Gíslason dósent; og IV.
Skólamál og menntun stúdenta, málshef jandi
Ágúst H. Bjarnason prófessor. I öllum þess-
um málum voru teknar ýmsar ályktanir og
samþyklct að stofna Stúdentasamband Is-
lands og því sett bráðabirgðalög.
Um tilgang Sambandsins segir svo í 3. gr.:
Tilgangur sambandsins er: a) Að koma fram
fyrir hönd ísl. stúdenta á opinberum vett-
vangi, b) að vinna að aukinni kynningu og
samstarfi meðal stúdenta og c) að standa
vörð gegn öllum þeim öflum og áhrifum, sem
sjálfstæði þjóðarinnar, auðlegu, efnalegu og
stjómarfarslegu getur stafað hætta af. Kosn-
ir voru í bráðabirgðastjórn: Próf. Ágúst H.
Bjarnason, form., Egill Sigurgeirsson, vara-
form., Klemens Tryggvason, fundarritari, Sig-
urður Ólason, féhirðir, og ungfrú Rannveig
Kristjánsdóttir, bréfritari.
1 fulltrúaráð voru þessir kosnir, búsettir í
Reykjavík: Ágúst H. Bjarnason' prófessor.,
Björn Sigurðsson læknir, Egill Sigurgeirsson
hrlm., Eiríkur Pálsson lögfr., ungfrú Guðrún
Benediktsdóttir, Klerriens Tryggvason hagfr.,
Lúðvík Guðmundsson skólastjóri, Páll S. Páls-
son stud. jur., Rannveig Kristjánsdóttir kenn-
ari, Sigurður Ólason hrlm., Sigurður Thorla-
cius skólastjóri og Unnsteinn Beck fulltrúi;
en búsettir utan Reykjavíkur: Arnljótur Guð-
mundsson bæjarstjóri, Akranesi, Haukur
Helgason bankam., Isafirði, Sigurður Sigurðs-
son sýslumaður, Sauðárkróki, Jóhann Jó-
hannsson skólastj., Siglufirði, Sigurður Egg-
erz bæjarfógeti, Akureyri, Steindór Stein-
dórsson kennari, Akureyri, Hjálmar Vil-
hjálmsson bæjarfógeti, Seyðisfirði, Eiríkur
Helgason prófastur, Bjarnanesi, Gísli Sveins-
son sýslumaður, Vík, Hinrik Jónsson bæjar-
stjóri, Vestmannaeyjum, Páll Hallgrímsson
sýslumaður, Selfossi, og Garðar Þorsteinsson
prestur, Hafnarfirði.
MötuneyliS.
Eins og mörgum stúdentum mun kunnugt
vera, var starfsfyrirkomulagi og stjórn Mötu-
neytis stúdenta komið á nokkurn annan
grundvöll og traustari vorið 1944. Starfs-
hættir þessir hafa gefið svo góða raun,
að frekar mun vera um ábata en halla að
ræða af rekstrinum, síðan þeir komust á.
Mötuneytið mun samt ekki starfa í sumar,
þar sem reynslan hefur sýnt, að rekstur þess
er allótryggur á þeim tíma árs, sem Háskól-
inn starfar ekki.
Doklorar.
Steingrímur Þorsteinsson magister hefur
hlotið doktorsnafnbót fyrir rit sitt, Jón Thor-
oddsen og sMldsögur hans, og Björn Guð-
finnsson, magister, fyrir rit sitt, Mállýzkur I.
Fengu þeir undanþágu frá því að verja rit-