Stúdentablaðið - 17.06.1945, Qupperneq 41
41
STÚDENTABLAÐ
Rússagildið var 17. nóv. að þessu sinni.
Magister bibendi var próf. Gunnar Thorodd-
sen. Árni Pálsson prófessor, ávarpaði hina
nýkomnu stúdenta, en Geir Kristjánsson stud.
mag. bauð rússana velkomna í hóp háskóla-
stúdenta. Fyrir hönd rússanna talaði Jón P.
Emils, stud. polyt. Fleiri tóku einnig til máls.
Var mikið líf og fjör þarna eins og stúdent-
um sæmir og mikið sungið og hressilega.
M. a. voru sungin frumort kvæði eftir Ragnar
Jóhannesson cand. mag. og Svein Ásgeirsson
stud. jur. Að lokum var svo stiginn dans fram
eftir nóttu.
1. desember var hátíðlega haldinn að vanda.
Skrúðganga farin, samkomur haldnar í Tjarn-
arbíó og Hátíðasalnum. Um kvöldið var hóf
mikið að Hótel Borg.
Áramótadansleikur var haldinn á gamla-
árskvöld (eða réttara sagt nýársnótt) að
venju síðari ára, sem mjög er vinsæl orðin.
Áramótaræðuna hélt próf. Ágúst H. Bjarna-
son.
Kvöldváka. 1 marzmánuði hafði stúdenta-
ráð kvöldvöku að Hótel Borg, sem var vel sótt
og þótti góð skemmtun.
Sumarfagnaður stúdenta síðasta vetrardag
var að Hótel Borg, haldinn að tilhlutun stú-
dentaráðs og Stúdentafélags Reykjavíkur.
Formaður hins síðar nefnda, Einar Ingi-
mundarson, cand. juris, setti samkomuna með
nokkrum orðum, en Knútur Arngrímsson
skólastjóri fagnaði sumri. Þá skemmti tvö-
faldur stúdentakvartett undir stjórn Þorvald-
ar Ágústssonar stud med. við mikla hrifn-
ingu áheyrenda.
Ctvarpskvöldvaka.
Síðasta vetrardag var einnig kvöldvaka á
vegum stúdentaráðs í útvarpinu. Þar flutti
formaður þess, stud. juris Guðmundur Vignir
Jósefsson, ávarp, Ölafur Öiafsson stud. mag.
flutti erindi um skáldamál, Jón P. Emils stud.
polyt, flutti háskólaþátt, og Emil Björnsson
stud theol. las frumsamda sögu. Leikfélag
stúdenta stóð fyrir flutningi leikritsins: Lagt
á borð fyrir tvo. Tvöfaldur kvartett, sá er áð-
ur hefur verið getið um, lét frá sér heyra, og
Brynjólfur Ingólfsson stud. jur. söng einsöng.
Þótti vaka þessi takast með ágætum.
Tímarit stúdenta.
1 fyravetur var borin fram í stúdentaráði
tillagan um það, að hafinn yrði undirbúning-
ur að útgáfu tímarits stúdenta, og skyldi það
koma út fimm sinnum á ári að minnsta
kosti.
Var í þessu skyni skipuð sjö manna rit-
nefnd og auglýsti hún eftir efni, en varð lítið
ágengt og var fallið frá þessari hugmynd að
því sinni. I vetur var það almennt álit full-
trúanna í Stúdentaráði, að nauðsynlegt væri
að byrja á því að ráða ritstjóra, sem yrði svo
jafnframt ábyrgðarmaður ritsins. Taldi ráðið,
að þessi tilhögun mundi reynast happasælli en
að fela framkvæmdir stórri og svifaseinni rit-
nefnd.
Fór síðan stjórn ráðsins að svipast um eftir
færum manni og tókst núverandi stjórn að
fá Ragnar Jóhannesson cand. mag. til að taka
að sér starfið. Munu stúdentar almennt fagna
því, að tekizt hefur að velja svo hæfan mann
fyrir ritstjóra, en Ragnar hefur, sem kunnugt