Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.12.1965, Qupperneq 16

Stúdentablaðið - 01.12.1965, Qupperneq 16
16 STÚ DENTABLAÐ Dr. theol. Jakob Jónsson: Húmor og íroníai I Biblíunni i. Það er ekki auðvelt að rita um húm- or og íroníu á íslenzku. Tungumál vort á engin orð, sem svara fullkom- lega til hinnar útlendu merkingar eða hafa réttan blæ. Auk þess mun flestum koma saman um, að erfitt sé að skýrgreina hugtökin á fullnægj- andi hátt. I stórum dráttum tel ég að skýra megi húmorinn þannig, að frumtilfinningin sé leikgleðin, glað- værðin, sem verður húmoristisk, þegar hún beinist að einhverju bros- legu. Húmor er ekki einkenni á hlut, heldur er hann háður persónulegum smekk og tilfinningum, að sínu leiti eins og fegurðarskynið. Hér kemur einkum þrennt til greina, sem sé hugarástand mannsins, viðhorf hans til hlutarins og viðhorf hans til lífs- ins (Philosophy of life). Sá maður- inn illgjarn, breytist húmorinn í háð, spé, jafnvel kaldhæðni. Próf. Harald Höffding benti, á sínum tíma, á sambandið milli húm- ors og lífsskoðunar, og hélt því fram, að húmor gæti orðið „livsanskuelse", eða „Lebensgefiihl". Þá er húmorinn svo rótgróinn í tilfinningalífi manns- ins, að honum er eiginlegt að sjá tilveruna yfirleitt í Ijósi hans. I sönn- um húmor er samúð, og góðgjarnir menn brosa ekki eða gleðjast, nema það, sem brosað er að, sé óskaðlegt. Menn geta hlegið að óhöppum og ágöllum náungans, jafnvel sinna beztu vina og saklausra barna, en þó því aðeins, að í vitundinni felist full- vissa um, að óhöppin eða ágallarnir séu þrátt fyrir allt ekki þess eðlis, að óbætanlegt tjón leiði af þeim. Þess vegna er húmorinn eðlilegri hjá mönnum með bjartsýna og sam- úðarríka Iífsskoðun og trú. Kristin- dómurinn ætti því að skapa góð skil- yrði fyrir húmor, en vera fjarlægur illgjörnu háði. II. Ironía er ekki jafn-háð tilfinning- um og húmorinn. Hin gríska „eir- oneia" birtist bæði í leikbókmennt- um Forn-Grikkja og í frásögnum Platós af Sókratesi. — „Alaðsón", gortarinn, monthaninn, hefir hald- ið sér gegnum aldirnar í evrópskum bókmenntum, og lætur töluvert á sér bera hjá Moliére og Holberg, og kemur Ijóslifandi fram hjá Matthí- asi í Skugga-Sveini. En andstæða gortarans og merkikertisins er „eir- ón", hinn yfirlætislausi, sem leynir á sér, en gengur þannig frá gortar- anum, að hann fellur á sjálfs síns bragði. Sókrates kemur fram við spekinga sinnar aldar eins og hinn fáfróði og fávísi „gnagleri", sem spyr vitringana í þaula, þangað til þeir hafa sjálfir orðið berir að fá- vísi eða heimsku. Þannig er íronía. Hún er í því fólgin að tala þvert um hug sér, en ekki eins og hræsnarar tala þvert um hug sér, heldur þann- ig, að allir geti séð, að maðurinn meinar alveg þveröfugt við það, sem hann segir. Höffding hefir sagt, að íronía sé alvara með „spaug" að baki, en að baki spauginu sé svo aftur alvara. Ironía getur mótast af allskonar tilfinningum, og falið í sér húmor eða kaldhæðni eftir atvikum. III. Getum vér vænzt þess að finna húmor og íroníu í Biblíunni? Það slíkri spurningu sé svarað skilyrðis- þarf engum að koma á óvart, þótt laust neitandi af mörgum. Og til þess liggja ýmsar ástæður. Biblían er bæði samkvæmt trú Gyðinga (G. T.) og kristinna manna (Bæði G. T. og N. T.) sérstök opinberun Guðs. Það vill því gleymast, að hún hefir sína mannlegu hlið, eins og hverjar aðrar bókmenntir. Ennfremur erum vér kunnugastir Biblíunni af helgi- lestri. Prestur, sem les texta fyrir altarinu, les „liturgiskt", og þá hverfa þau blæbrigði, sem annars birta ýmiskonar tilfinningar, þar á meðal tilfinningu húmorsins. Loks er vert að veita því athygli, sem próf. Clavier benti á fyrir alllöngu, að hin byzantiska Kristsmynd hefir að mestu náð yfirhöndinni í trúar- lífi og kitkjulegri túlkun, og hún er fjarri því að vera sönn mynd meist- arans og spámannsins, eins og hann hefir hreyft sig í daglegu umhverfi síns eigin tíma og í átökum sinnar eigin kynslóðar. — Sé ritskýrandinn aftur á móti ekki allt of háður hinni byzantisku tegund Kristsmyndarinn- ar, finnur hann sennilega, að Jesús frá Nazaret var bæði spámaður og rabbi, og notaði í predikun sinni og viðræðum samskonar ræðustíl og fræðslu-aðferðir eins og samtíma- menn hans yfirleitt. Sá munur, sem er á honum og þeim, liggur aftur á móti í sérstöðu hans sem Messíasar. Vegna skyldleika hans við bæði spá- menn og fræðimenn, er því eðlilegt að skýra húmor hans og íroníu út frá þeim húmor og íroníu, sem finnst annars vegar í Gamla Testamentinu og hins vegar í hinurn rabbinsku bókmenntum, Talmud og Midrash. Erfðir þessarra ritsafna eru svo forn- ar, að mjög mikið af efni þeirra á rætur sínar í andlegu lífi Gyðinga fyrir daga Krists. IV. Við athugun á húmor og íroníu Nýja testamentisins, kemur í Ijós, að þar er um að ræða allmiklar hlið- stæður við hinn rabbinska húmor. Mest ber á þeim í hinum samstofna guðspjöllum þrem (Matt., Mark., Lúk.). Jóhannes hefir eiginlega lít- inn sem engan húmor, en mikið af sérstakri tegund af íroní. Páls-bréf- in hafa hvortveggja, og þar er um að ræða meiri persónuleg blæbrigði en annarsstaðar í Nýja testamentinu. Sérkenni hvers fyrir sig verða tæp- lega skýrð í örstuttri grein. En ég geri ráð fyrir, að margir hafi einna mestan áhuga á því að vita eitthvað um húmor og íroníu Jesú. Ekki sízt vegna þess, hvernig tekið hefir ver- ið til orða í dagblöðunum í sam- bandi við bók mína um þessi efni, vil ég taka það mjög skýrt fram, að háð og spott finn ég ekki í þeim orð- um, sem guðspjallamennirnir leggja Jesú í munn, en hann fylgir venju fræðimannanna í því að nota dæmi, sem sýna ýmist broslegt fólk (frá al- mennu sjónarmiði), brosleg atvik eða broslegar og fjarstæðar hug- myndir. Það má heldur enginn hugsa sér, að Jesús hafi stráð „bröndurum" á báða bóga. Hann gerir aldrei að gamni sínu vegna húmorsins eða aðeins til að koma mönnum til að hlæja. Hins vegar notar hann í kennslu sinni og predikun ýmiskon- ar „fígúrur", sem eru kímnilegar, ef þær eru skoðaðar í réttu ljósi, og íronía hans er þess eðlis, að oft verða andstæðingar hans broslegir vegna sem Sókrates átti í höggi við. Sjálf- eigin aðgerða, líkt og spekingarnir, sagt eru sumar samlíkingar hans og myndir til áður, og aðrar eru þess

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.