Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 17

Stúdentablaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 17
STÚDENTABLAÐ 17 Ólafur Björnsson, prófessor: ísland og aðstoðin við þpounarlðndin „Þróunarland“ er nýtt hugtak á vettvangi efnahags- og stjórn- mála, og þar sem skilgreining nýrra hugtaka, er að jafnaði ekki eins fast mótuð og þeirra, sem lengi hafa verið notuð, tel ég rétt að gerð verði grein fyrir því í upphafi, hvaða merking hér verður í hugtak- ið lögð. Með því verður átt við þau lönd þar sem þjóðartekjur á einstakling eru undir á- kveðnu marki. Álita mál getur auðvitað verið, hvaða mark skuli miða við í þessu efni, en algengast mun vera nú að miða við 4—500 dollara þjóð- artekjur á einstakling. Má til samanburðar geta þess að, þjóðartekjur á mann nema nú hér á íslandi um 1200 dollur- um á mann. Langflest hinna svonefndu þróunarlanda eru þó langt undir áðurgreindu marki. Þótt aðstoð við þróunarlönd- in sem alþjóðlegt málefni eigi sér stutta sögu, eða varla lengri en síðustu 15—20 ár, þá eru þau vandamál, sem þessari aðstoð er ætlað að leysa, eng- an veginn ný. En flest þeirra landa er nú eru talin til þró- unarlanda voru áður nýlendur einhverra stórvelda og var efnahagsaðstoð til þeirra — að því leyti sem um hana var að ræða — talið einkamál þess stórveldis, sem með völdin fór í nýlendunni. En þar sem ný- lendunum var að jafnaði stjórn- að fyrst og fremst með hags- muni móðurlandsins fyrir aug- um, varð meginreglan sú að vandamál fátæktarinnar hélt áfram að vera óleyst. Eft- ir síðari heimstyrjöldina hafa flestar nýlendurnar hinsvegar eins og kunnugt er fengið sjálf- stæði. Jafnframt hafa þessi lönd fengið aðild að Samein- uðu þjóðunum þannig, að þær hafa orðið sá vettvangur, sem vandamál þeirra, á sviði efna- hagsmála sem öðrum, hafa eink- um verið rædd á. Þörf hinna gömlu nýlenda fyrir efnahagslega aðstoð er auðvitað sú sama þótt þær séu nú orðnar sjálfstæð ríki. En nýlenduveldin sem áður voru, telja sig auðvitað ekki hafa sömu skyldum að gegna við hinar fyrri nýlendur sínar eft- ir það að hin pólitízku tengsl eru rofin, þannig að nýrra sér- ræða hefir orðið að leita vandamálum þessum til úr- lausnar. Þær ýmsu leiðir sem farnar hafa svo verið í þessu efni hafa svo verið nefndar einu nafni hjálp eða aðstoð við þróunarlöndin. Verður hér á eftir gerð stuttlega grein fyr- ir því hvaða leiðir hafa verið farnar í þessum efnum, en því eðlis, að tilheyrendur gátu sjálfir lesið eitt og annað inn í það, sem sagt var, af því að þeir þekktu eitt- hvað svipað í öðru samhengi. Ég veit, að sumir hafa gert sér svo óraunhæfa sætabrauðsmynd af Jesú frá Nazaret, að ef hún væri sönn, hefði hann aldrei verið líklegur til að segja neitt á þann veg, að and- stæðingum gæti mislíkað, — hvað þá vakið aðra eins baráttu og raun bar vitni um. En Jesús var að því leyti líkur spámönnunum gömlu, að hann gat komið ónotalega við kaun þeirrar þjóðar, sem hann þó elskaði af öllu hjarta. Slíks má finna dæmi í íroniskum myndum, er hann bregð- ur upp. V. Þeim, sem hefðu í huga að kynna sér einstök dæmi um húmor og íroníu í Biblíunni, vil ég vísa til ritgerðar minnar, sem nýlega er komin út hjá Menningarsjóði (Humour and Irony in the New Testament, Illuminated by Parallels in Talmud and Midr- ash). En til skilningsauka á því, sem að framan er sagt, nefni ég einn textai, sem allir eiga að þekkja, Matth. 25, 1 —12. — Það er sag- an af hinum tíu meyjum. Til að setja sig inn í, hvernig atvikið, sem þar er lýst, hefir litið út í augum samtímans, má reyna að gera sér í hugarlund, hvernig svipað atvik — mutatis mutandis — líti út nú á dög- um. Segjum, að svaramenn séu komnir til kirkjunnar, en annar hafi gleymt að hafa fataskifti, hlaupi heim á síðustu stundu, og komi að lokum of seint. Það þætti sjálfsagt ýmsum skopleg sjón að sjá kjól- klæddan svaramann standa úti fyrir luktum kirkjudyrum, þegar allir aðrir eru inn gengnir. Þannig er að- staða stúlknanna fimm, sem áttu að vera með í brúðarfylgdinni, en höfðu gleymt að fá olíu á lampa sína. Nú er mjög sennilegt, að sá, sem í slíku lendir, eigi örðugt með að finna og þaðan af síður að njóta hins „skemmtilega" í atvikinu, fyrr en ef til vill síðar. Tilheyrendurnir, sem upphaflega heyrðu Jesú segja dæmisöguna, vissu vafalaust, að hverjum var stefnt. Þarna gat „alað- són", gortarinn og htokagikkurinn séð sjálfan sig, — sá, sem taldi sig svo mikinn, öruggan og vel búinn undir komu guðs ríkis, að enginn vafi væri á því, að öll hlið stæðu honum opin upp á gátt. Hér er „humoristiskt" atvik úr daglega líf- inu notað þannig, að úr því verður íronía, sem beinist að sérstökum fulltrúum hins andlega lífs. Það get- ur svo auðvitað farið eftir ýmsu, hvort þessir þættir myndarinnar eru skynjaðir með þessum hætti, og auð- vitað er dæmisagan ekki sögð „til skemmtunar", heldur er smábros- legt dæmi úr þjóðlífi samtíðarinnar notað til að boða alvarleg sannindi, sem í reyndinni geta fengið þann svip, að gamanið fari að grána. Gild- ir það jafnt, hvort sem sagan á við reynslu þess manns, sem í dag kenn- ir sig útilokaðan úr samfélagi Guðs ríkis eða dóm hins efsta dags. Jakob Jónsson. (Eg bið afsökunar á því, að í grein þess- ari eru notuð erlendu orðin húmor og íronía. Eg hefi árangurslaust leitað hjálpar margra ágætra íslenzkumanna, en enginn hefir getað fundið íslenzkt orð, er svöruðu til hinna gefnu hugtaka).

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.