Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 33

Stúdentablaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 33
STÚDENTABLAÐ 33 töluðu báðir í ljóðum. Þeir sem gleggst vita telja að samkom- an hafi heppnazt allvel, en að endingu var stigin dans. Aðrir fagnaðir Áttadagsgleði var haldin á ný- ársnótt í kjallara Háskólabíós. Formaður gleðinefndar var Sig urður Björnsson stud. med. — Gleðin þótti heppnast með á- gætum. Sumarfagnaður fór fram á Hótel Borg að kvöldi síðasta vetrardags, 21. apríl. Þar unnu sunnanmenn norðan- menn léttilega í spurningar- keppni er Friðrik Sophusson stjórnaði. Heimir Pálsson heils- aði sumri og Ómar Ragnarsson skemmti. Áður um kvöldið höfðu háskólastúdentar séð um dagskrá í Ríkisútvarpinu að vanda. Vetrarfagnaður stúd- enta fór fram að Hótel Borg 1. vetrardag 23. október síðastlið- inn og var sem sumarfagnaður- inn og jólagleði, haldinn af f j áröf lunarnef nd félagsheimilis stúdenta. Jón E. Ragnarsson stud. jur. fagnaði vetri og Erl- ingur Vigfússon og Jón B. Gunnlaugsson skemmtu. Með- al annarra stúdentafagnaða á árinu má nefna árshátíð garð- anna, svo og tvö garðsböll í febrúar og marz. Bókmenntakynningar og málfundir Hinn 13. apríl síðastliðinn gekkst bókmenntakynningar- nefnd fyrir kynningu í setu- stofu Gamla Garðs. Var þar kynntur veraldlegur kveðskap- ur Hallgríms Péturssonar. Málfundanefnd gekkst fyrir almennum umræðufundi um leikhúsmál í Sigtúni, 22. nóv- ember ’64. Höfðu þar framsögu leikhússtjórarnir Guðlaugur Rósinkrans og Sveinn Einars- son, svo og Þorleifur Hauksson stud. mag. Umræður urðu mjög fjörugar og skemmtileg- ar. Hinn 1. apríl gekkst mál- fundanefnd í samvinnu við Stúdentafélag Reykjavíkur fyr- ir almennum fundi um stór- iðju og erlent fjármagn, að Hótel Borg. Framsögu höfðu þeir ritstjórarnir Eyjólfur K. Jónsson og Magnús Kjartans- son. Umræður urðu fjörugar, en þó furðu málefnalegar. Var fundurinn mjög vel sóttur. Almennir stúdentafundir Skilafundur fráfarandi stúd- entaráðs fór fram 5. marz. Fluttu þar Auðólfur Gunnars- son stud. med. fráfarandi for- maður og Geir Gunnlaugsson stud. polyt. fráfarandi gjaldkeri skýrslu sína. Almennur stúdentafundur var haldinn 12. marz og var sá mun fjölsóttari. Hafði Jón E. Ragnarsson framsögu um utanríkismál, en Már Péturs- son um mögulegar fjáröflunar- leiðir til hins fyrirhugaða fé- lagsheimilis. Skemmtilegar um- ræður urðu. Þá var og almenn- ur stúdentafundur 13. október síðastliðin til þess að kjósa í nefndir þær, er annast skyldu hátíðahöld stúdenta 1. desem- ber og útgátfu stúdentablaðs sama dag. Fullt samkomulag náðist um kiör fulltrúa í báð- ar nefndir. Hátíðanefnd skipa; formaður Aðalsteinn Eiríksson stud. theol., Friðrik Sophusson stud. jur., Sverrir Kristjánsson stud. oecon., Páll Þórðarson. stud jur. og Björn Þorsteinsson stud. philol. Stúdentakórinn Starfsemi Stúdentakórsins er nú með blómlegasta móti. Á skírdag í vor, hélt kórinn söng- skemmtun í Sigtúni, við góðar undirtektir. Ennfremur söng kórinn á háskólahátíðinni. — Þessi blómlega starfsemi kórs- ins hlýtur að vera öllum gleði- efni. og er vonandi að hún eigi eftir að bera ríkulegan ávöxt. Fyrirlestrar í nóvember ’64 hófst fyrirlestr- arhald fyrir almenning á veg- um stúdentaráðs. Fyrst flutti Hörður Ágústsson listmálari 3 fyrirlestra um sögu íslenzkrar byggingarlistar. Síðari hluta vetrar flutti Tómas Helgason prófessor fyrirlestur um geð- sjúkdóma á íslandi, Sveinn Einarsson leikhússtjóri um helgileika og herranætur, Björn Th. Björnsson listfræð- ingur um íslenzka myndlist og Sigurbjörn Einarsson biskup um trú og vísindi. Föstudaginn 5. nóvember síðastliðinn flutti Þórhallur Vilmundarson próf- essor fyrirlestur um hið svo- kallaða Yale-kort. Gagnrýndi hann vinnubrögð þeirra Yale- manna er um kortið höfðu fjallað, en taldi þó fund þess hinn merkilegasta. Fyrirlestrar þessir hafa að jafnaði verið haldnir í I. kennslustofu Háskólans og oft- ast verið afar fjölsóttir. Þá má í þessu sambandi nefna fund þann, er stúdentaráð gekkst fyrir í nóvember síðastliðnum, um efnið Háskóli Islands. Sá fundur fór fram í hátíðarsaln- um og var mjög fjölsóttur. — Framsögumenn voru; dr. Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráð- herra, Ólafur Johannesson próf essor, Ólafur Björnsson prófess- or og Ingi R. Helgason lögfræð- ingur. Að framsöguræðum loknum svöruðu frummælend- ur fyrirspurnum fundarmanna. Erlent Stúdentasamstarf I apríl í vor sótti Helgi Guð- mundsson stud. jur. stúdenta- seminar í Stradsburgh, — og Sigurður Björnsson stud. med. þáði fyrir Islands hönd heim- boð til júgoslavneskra stúd- enta. Halldór Gunnarsson þáði fyrir hönd S. H. I. boð til Osló, á þjóðhátíðardegi Norðmanna, 17. maí síðastliðinn. Þá er nú Karl F. Garðarsson í ferð um Bandaríkin, en utanríkisráðu- neytið í Washington bauð nú í haust einum íslenzkum stúd- entaleiðtoga í IV2 mánaðar kynnisferð þangað vestur. For- mannaráðstefna Norrænu stúd- entasamtakanna var haldin í Kongsberg í Noregi 2.—4. maí síðastliðinn. Fyrir Islands hönd sóttu hana Vésteinn Ólason og Gunnar Sigurðsson. Síðari formannaráðstefnan var haldinn í Oulu í Norður- Finnlandi, dagana 1.—3. nóv- ember. Hana sóttu fyrir hönd S. H. I. Björn Teitsson stud. mag., Helgi Guðmundsson stud jur. og Gunnar Benediktsson teknolog, sem nemur í Stokk- hólmi. Skipulagsbreytingar Sunnudaginn 17. október síð- astliðinn var haldin á Gamla Garði ráðstefna um breyting- ar á stjórnarmálefnum stúd- enta. Til ráðstefnunnar voru boðaðir rúmlega 30 fulltrúar. Ráðstefnan féllst í höfuðatrið- um á frumdrög þau sem 3 manna nefnd skipuð af stúd- entaráði hafði gert. Nú hefur stúdentaráð skipað aðra þriggja manna nefnd til þess að gera formlegar tillögur til lagabreyt- inga. Mjög víðtækar breyting- ar eru fyrirhugaðar. Núverandi formenn norrœnu stúdentasambandanna fimm. Fró vinstri: Carl-Olaf Homén (Finnland) standandi, Björn Teitsson (Island), Ove Junl Jorgensen (Danmörk), Curt Ivarsson (Svíþjóð) og Sigurd Cjulbrandsen (Noregur). Myndin er tekin ó formannaróðstefnunni í Oulu.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.