Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 32

Stúdentablaðið - 01.12.1965, Blaðsíða 32
32 STÚDENTABLAÐ OI.AAMMA Háskólahátíð Háskóli Islands var settur laug- ardaginn 23. október og fór at- höfnin að venju fram í Há- skólabíó, að viðstöddu mörgu stóivnenni. Rektor, prc;fessor Ármann Snævarr flutti setning- arræðu, auk þess sem hann á- varpaði nýstúdenta og afhenti háskólaborgarabréf. Af hálfu nýstúdenta svaraði í þetta sinn Eiríkur Guðnason, stud. oecon, Laugarvatnsstúdent. Strengjasveit undir stjórn Björns Ólafssonar lék í upp- hafi hátíðarinnar, Stúdentakór- inn söng nokkur lög, og enn- fremur söng Guðmundur Jóns- son einsþng. I lok hátíðarinn- ar var þjóðsöngurinn sunginn. Hér fara á eftir nokkur atriði úr ræðu rektors um kennaralið háskólans, byggingarfram- kvæmdir, gjafir og gesti svo og nýstúdenta. ■ '' c- Háskólakennarar Skipaður hefur verið einn nýr prófessor frá síðustu háskóla- hátíð, dr. Jóhann Axelsson* í lífeðlisfræði. Þá var dr. Ólafur Bjarnason dósent settur próf- essor í veikindaforföllum próf. Níelsar Dungals. Dr. Vilhjálm- ur Skúlason lyfjafræðingur var ráðinn fastur kennari í lyfja- fræði lyfsala, og Arinbjörn Kol- beinsson læknir, hefur að nýju verið ráðinn lektor í meina- fræði. í sambandi við nýja kennsluskipan í íslenzkum fræðum, hafa verið ráðnir þar tveir nýir lektorar, þeir cand. mag. Andrés Björnsson í bók- menntum og mag. art. Baldur Jónsson í málfræði. Þá hefur cand. mag. Helgi Guðmunds- son verið ráðinn til þess að annast íslenzkukennzlu fyrir erlenda stúdenta í stað cand. mag. Davíðs Erlingssonar. Á síðastliðnu ári tók Jónas Thor- arensen tannlækn. við kennslu í tannlæknisfræðum og aðrir nýir eða nýlegir kennarar í Læknadeild eru læknarnir Árni Björnsson, Baldur John- sen, Jón Þorsteinsson, Kolbeinn Kristófersson, Þórarinn Sveins- son og Þorkell Jóhannesson, svo og Guðjón Axelsson tannlæknir. í efnafræði hafa nýlega tekið við kennslustörf- um efnafræðingarnir Bragi Árnason, dr. Guðmundur Guð- mundsson og Gunnlaugur Elí- asson svo og Sigurður R. Guð- mundsson efnaverkfræðingur. í meinafræði hefur Jónas Hall- grímsson tekið við kennslu- starfi. í viðskiptadeild eru ný- ir eða nýlegir kennarar, frú Steinunn Einarsdóttir B. A., dr. Alan Bucher, Jón E. Þor- láksson cand. act. og Valdimar Hergeirsson cand, oecon. I verk- fræðideild hafa nýlega hafið kennslu Björn Kristinsson cand polyt, Bragi Árnason efnaverk- fræðingur og Guðmundur Björnsson verkfræðingur, Har- aldur Ágústsson teiknikennari, Helgi Sigvaldason lic. techn., dr. Oddur Benediktsson, Páll Theodórsson eðlifræðingur og Þórir Einarsson cand. oecon. — Ennfremur þeir Jóhannes Guð- mundsson verkfræðingur og Svein’ojörn Björnsson eðlis- fræðingur. Bandaríski sendikennarinn prófessor Paul Taylor hefur látið af starfi hér eftir 3 miss- eri og við hefur tekið prófess- or Ralph Curry. Þá hefur danski sendikennarinn, Laurs Djörup, látið af störfum. 1 hans stað hefur verið skipaður Preb- en Meulengrath Sörensen, sem tekur við starfi 1. febrúar næst- komandi, en til jóla kennir í hans stað stud. mag Thorkild Damsgárd-Olsen. Við háskólann starfa nú alls 41 prófessor, 27 dósentar, 9 lektorar og 29 aðrir aukakenn- arar. Byggingarframkvœmdir Byggingu húss yfir Raunvís- indastofnun Háskóla íslands hefur miðað svo vel, að álit- ið er að unnt verði að flytja í bygginguna á fyrri hluta næsta árs. Lokið er að mestu teikn- ingum á handritahúsinu, sem háskólinn og handritastofnunin hyggjast reisa sameiginlega á lóð milli Nýja Garðs og háskól- ans. Húsið á að verða 600 ferm. á 4 hæðum. Gjafir og gestir Vesturþýzki vísindasjóðurinn gaf háskólanum mikla bóka- gjöf 1. desember síðastliðinn. Þá hefur sjóðstjórn Háskóla- sjciðs, hf. Eimskipafélags ís- lands, afhent háskólanum 50 þúsund krónur að gjöf. Við andlát prófessors Alexanders Jóhannessonar beitti háskóla- ráð sér fyrir stofnun minning- arsjóðs um rektor. Sjóðnum hafa borizt margar ágætar gjaf- ir. Gjöfum er veitt móttaka á skrifstofu háskólans. Þá gáfu erfingjar Skúla Han- sens, tannlæknis, háskólanum hið geypiverðmæta hljómplötu- safn hans. Er það nú varðveitt á Háskólabókasafninu og er vonandi að háskólakennarar og stúdentar fái von bráðar að njóta góðs af þessari einstöku rausnargjöf. Á árinu hafa alls 15 gestir heimsótt skólann og haldið alls 30 fyrirlestra. Nýstúdentar Alls innrituðust til náms í haust 324 stúdentar þar af 29 erlendir stúdentar. Nýstúdent- ar skiptast þannig. guðfræði 6, læknisfræði 52, lyfjafræði 5, tannlækningar 0, lögfræði 38, B. A. 72 (þar með teljast ísl. fræði), heimspeki 62, íslenzka fyrir erlenda stúdenta 26, verk fræði 34 og viðskiptafræði 29. Alls eru skráðir 1116 stúdent- ar. Á síðastliðnu ári tóku loka- próf við H. í. 70 kanditatar, þar af 8 konur. I vor útskrifuðust hérlendis 310 stúdentar eða 9,5G af 20 ára aldursflokknum, sem er snöggtum lægri hlutfallstala en á hinum Norðurlöndunum. Rússagildi Stúdentafél. Háskólans gekkst fyrir rússagildi fimmtudaginn 14. október í Sigtúni. Magister bibendi var cand. mag. Jónas Kristjánsson, en ræðu kvölds- ins flutti cand. jur. Gestur Páls- son. Kristinn Jóhannesson, stud. mag. ávarpaði nýstúdenta, en af þeirra hálfu svaraði Sigurð- ur Guðmundsson stud. theol, og

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.