Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.12.1965, Qupperneq 43

Stúdentablaðið - 01.12.1965, Qupperneq 43
Nýar HEIMSKRINGLUBÆKUR Björn Þorsteinsson ÆVINTÝRI MARCELLUSAR SKÁLHOLTSBISKUPS Marcellus de Nieverniis er frægastur þeirra, sem borið hafa bisk- upsnafn í Skálholti, en komst að vísu aldrei til íslands. Hann var talsverður ævintýramaður, lenti fimm sinnum i fangelsi, var eitt sinn dæmdur í lífstíðardýflyssu, einu sinni hengdur, og bann- færður af páfanum sjálfum. Samt sem áður hélt hann biskups- tign til æviloka, og völd ekibiskups hafði hann um skeið í Nið- arósi. Ób. kr. 280.00, ib. kr. 340.00. Jóhannes úr Kötlum VINASPEGILL Safn úr blöðum og tímaritum af bundnu máli og óbundnu, flest frá síðasta aldarfjórðungi: greinar og erindi um bókmenntir, þjóðernismál og íslenzka náttúru, umsagnir um bækur, útvarps- þættir afmæliskveðjur og minningargreinar. Kristinn E. And- résson sér um útgáfuna og hefur valið efnið í samráði við höf- undinn. Ób. kr. 290.00, ib. kr. 350.00. Olafur Jóh. Sigurðsson LEYNT OG LJÓST Tvær sögur sem hlotið hafa mikið lof gagnrýnenda. Um lengri söguna, Bréf séra Böðvars, segir Þórarinn Guðnason: „Hún er ein þeirra sagna sem eiga eftir að leita á hug lesandans löngu eftir að lestri er lokið; séra Böðvar verður okkur minnisstæður af þvi að við þekkjum hann svo vel. Eg held við þekkjum hann til hlýtar. Svona getur enginn sagt sögu nema mikill listamaður. Ób. kr. 230.00, ib. kr. 280.00. Jón Helgason ÚR LANDSUÐRI Þriðja prentun ljóðabókar sem er þegar sígild. Ób. kr. 230.00, ib. kr. 270.00, skb. kr. 330.00. Brynjólfur Bjarnason Á MÖRKUM MANNLEGRAR ÞEKKINGAR ,,Sama spurning, tengsl mannsins við hið óþekkta, tekur sí og æ á sig nýja mynd. Sérhver kynslóð verður að gera þessa spurn- ingu upp við sig á sinn hátt, í samræmi við sitt þroskastig, og lifa lifinu samkvæmt því. í fullkomnun efa, án allra leiðsögu- hugmynda, verður lífinu ekki lifað. Hinar fornu trúarlegu hug- myndir duga mannkyninu ekki lengur. Lífskoðun, sem ekki þol- ir lengur birtu mannlegrar hugsunar eins og hún skín skærast á hverium tíma, á ekki langt líf fyrir höndum." (Ur formála höf- undar). Ób. kr. 300.00, ib. kr. 350.00. Hermann Pálsson EFTIR ÞJÓÐVELDIÐ Þessi bók Hermanns Pálssonar, háskólakennara i Edinborg, er nýjung í rannsóknum íslenzkrar sögu. Þar eru teknar til athug- unar frásagnir fornra annála um síðustu áratugi 13. aldar, upp- runi þeirra og skyldleiki rakinn, heimildargildi þeirra kannað, samanburður gerður á þeim og öðrum söguritum frá sama tíma. Björn Bjarman í HEIÐINNI Þessi bók, sem er frumsmíð höfundar, hefur inni að halda átta smásögur, sem allar gerast i bandarísku herstöðinni á Miðnes- heiði eða hafa hana að bakgrunni. Þorsteinn Valdimarsson LIMRUR Níutiuogníu stutt ljóð i sérkennilegu formi. Teikningar í bók- ina hefur gert Kjartan Guðjónsson. Bjarni Benediktsson STORMUR í GRASINU Leikrit. Vilborg Dagbjartsdóttir SÖGUR AF ALLA NALLA Barnabók. MÁL OG MENNING, Laugavegi 18 r Utvegsbanki r Islands Reykjavík Akureyri ísafirði Siglufirði Seyðisf irði Vestmannaeyjum Keflavík Annast öll venjuleg bankaviðskipti innan lands og utan Tekur ó móti fé í hlaupareikning og til ávöxtunar með sparisjóðskjörum með og án uppsagnarfrests Ríkisábyrgð er á öllu sparifé í bankanum Útibú er í Reykjavík á Laugavegi 105 'Oerndið heimi/iyðgr.... BRUKABÓTAFÉlAtí ÍSLANDS

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.