Fréttablaðið - 26.09.2009, Side 16
16 26. september 2009 LAUGARDAGUR
É
g hitti Gunnar í Krossin-
um. Þetta er mikil miðstöð
í Hlíðarsmáranum í Kópa-
vogi. Þegar húsnæðið var
tekið hér í notkun árið 1995
var þetta eitt fárra húsa á
svæðinu. Gunnar segir mér að starf-
semi Krossins hafi byrjað árið 1979
og að hann hafi alltaf verið forstöðu-
maður safnaðarins. Hann sýnir mér
húsakynnin og ég passa mig á að segja
ekki að þau séu „helvíti flott“.
Auðvelt að vera sannfærður
„Við leggjum mikið upp úr tónlistar-
lífinu hérna,“ segir Gunnar og dregur
plastábreiðu ofan af forláta hljóð mixer
í salnum. Hann bendir: „Það eru sex
kamerur hérna í loftinu til að taka upp
predikanir.“
Krossinn er í nánu samstarfi við
Omega, en ég horfi aldrei því ég er
heiðingi. Ég er ekki kominn til að
frelsast (þótt Gunnar hafi sagt í gríni
að hann myndi hafa laugina tilbúna
þegar ég kæmi), og ég er ekki kom-
inn til að rökræða trúmál við Gunnar.
Enda algjörlega vonlaust, bæði vegna
þess að mér hundleiðast rökræður
um trúmál og svo er erfitt að ímynda
sér sannfærðari mann en Gunnar. Er
aldrei erfitt að vera svona rosalega
sannfærður? spyr ég hann þegar við
erum sestir inn á kontór.
„Nei, það er akkúrat hið öndverða.
Það er þægileg staða,“ svarar Gunnar.
„Menn draga bara fram heilaga ritn-
ingu og þar er endanlegur sannleikur.
Það gefur augaleið að það er þægileg
staða í heimi sem er fullur af spurning-
um og óvissu. Það er engu líkt.“
Eigum ekki orð yfir ástandið
Eilífðarmálin sækja stundum á mig.
Ég spyr Gunnar hvernig honum verði
innan brjósts þegar hann sér ljós-
myndir af óravíddum og óendanleika
alheimsins teknum með fullkomnustu
stjörnukíkjum.
„Ég geri mér grein fyrir mikilleika
Guðs,“ segir hann. „Hér erum við á
þessari skrítnu plánetu, lifandi þessu
undarlega mannlífi, vitandi það að
Guð er almáttugur. Og þetta er bara
fordyri þess sem koma skal. Hið eigin-
lega líf hefst að loknu þessu lífi. Það er
nú kenning ritningarinnar.“
Er dauðinn þá fersk byrjun?
„Dauðinn samkvæmt heilagri ritn-
ingu er að vera fjarri Guði. En þegar
líkaminn deyr þá verða andinn og sálin
frjáls og hinn endurleysti maður fer í
paradís lifandi Guðs.“
En bara hinir trúuðu komast í þessar
trakteringar, ekki satt?
„Sko, allir lifa að loknu þessu lífi.
En aðeins þeir sem trúa fá návist við
Guð, sem er keppikeflið. Hinir missa
af því sem Guð hefur upp á að bjóða og
því gríðarlega ævintýri sem er fram
undan.“
Ímyndar þú þér stundum hvernig
þetta eftirlíf er?
„Páll postuli fór til þriðja himins,
fór inn í þessar víddir. Það sem hann
sá og heyrði er ósegjanlegt. Hann gat
ekki lýst því. Ég held að ástandið sé
þannig að við eigum ekki orð – ekki
einu sinni á íslensku – til að lýsa því
sem koma skal. En við vitum að Jesú
sagði við ræningjana á krossinum: Í
dag muntu verða með mér í paradís.
Við vitum að paradís er staður þar sem
vilji Guðs er fullkominn og hann ræður
ferðinni. Við vitum að okkar fyrstu
foreldrar voru í fullkomnu ástandi og
lifðu í dýrlegum fögnuði áður en synd-
in kom. Það ástand verður upphafið á
ný, en meira … Við vitum ekki um nein
smáatriði.“
Hefur þér aldrei dottið í hug að
mannkynið sé bara ekki nógu gáfað til
að geta skilið alheiminn?
„Jú, ég er algjörlega þeirrar skoð-
unar að við, þessi tegund, höfum ekki
greind til að skilja áætlun Guðs. Guð
getur ekki svarað okkur af því að við
Ég neita því ekki að ég er karlmaður
MAÐUR Á TÍMAMÓTUM Gunnar Þorsteinsson í Krossinum bíður eftir að Guð leiðbeini sér við næstu skref. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Gunnar í Krossinum
stendur á tímamótum.
Hann er skilinn við eigin-
konu sína til 38 ára og bíð-
ur eftir að Guð leiðbeini
sér við næstu skref. Dr.
Gunni skrapp í Kópavog-
inn og hitti Gunnar.
skiljum ekki svörin. Þess vegna segir
drottinn: Fylg þú mér. Og þeir risu upp
og fylgdu honum. Ef þeir hefðu spurt:
Geturðu útskýrt þetta aðeins betur, þá
hefði verið fátt um svör.“
Guð hatar hjónaskilnaði
Gunnar var 19 ára „menntaskóla-
heiðingi“ í MH þegar hann frelsaðist.
Það var árið 1971. Gunnar segir um
350 manns vera virka félaga í Kross-
inum, en skráðir meðlimir eru mun
fleiri. Hann fullyrðir að fólk með lif-
andi trú á Krist komi sterkara en aðrir
út úr bankakreppunni. „Núna þegar
ógnin steðjar að og okkur er sagt að
vetur verði harður, þá er áríðandi að
hafa sterka hönd í lífi sínu sem maður
getur treyst. Hjá okkur er það Drott-
inn. Hann opinberar sig í sálmi 91. Þar
segir hann að engin ógæfa muni henda
mig. Ég gisti öruggur í tjaldi hans og
hann mun bera mig á höndum sér. Þetta
eru fyrirheit Guðs og á þeim hvíli ég.“
Þetta er þá væntanlega það sem þú
reiðir þig á nú í þínu persónulega lífi.
Það er jú orðið opinbert að þú ert skil-
inn við konuna þína.
„Líf okkar hjónanna steytti á skeri.
Þetta er harmleikur. Gríðarlega sár
og erfið reynsla. Og ég horfi á það
þeim augum að hafa gefið heit og verið
kvæntur í 38 ár, að auðvitað hefði
maður átt að geta klárað það. En svo
skoða ég sjálfan mig og segi; hvernig
stendur á því að okkar mál fóru í þau
hjólför að við náðum þeim ekki upp úr
þeim? Ég hlýt að ásaka sjálfan mig, því
á einhverjum tímapunkti hefði ég getað
gert betur sem eiginmaður þrátt fyrir
ólíkar áherslur og vaxandi ágreining
til margra ára.“
Og hvað segir nú Biblían um þetta?
„Biblían er mjög ljós. Guð hatar
hjónaskilnaði. Það er ekkert öðruvísi. Sá
sem gengur í gegnum þetta skyldi vita
að þetta er ekki það sem Guð vill. Og
það veldur mestum sársauka. Að brjóta
boð Guðs. Svo er þetta erfitt fyrir fjöl-
skylduna, börn og barnabörn, og vini
hér í samfélaginu og í kristna geiran-
um. Þetta er allt mjög erfitt og þungur
baggi að bera. Síðan kemur á móti að
Guð er miskunnsamur og náðar ríkur.
Ég hef það á tilfinningunni að hann eigi
líka náð handa mér í þessari stöðu sem
og í öðrum erfiðum aðstæðum sem ég
hef verið í í lífinu. Ég geri mér grein
fyrir því að þeim sem ekki vill vera í
hjónabandi verður ekki haldið þar gegn
vilja sínum. Hjónabandið er ekki þræla-
viðjar í þeim skilningi eins og Páll post-
uli segir.“
Finnst þér þetta mál veikja stöðu þína
sem trúarleiðtoga?
„Ég lifi þessa dagana í mikilli óvissu.
Ég er að leita Guðs með framtíð mína.
Það er mikill sársauki. Ég hef bent á það
áratugum saman að ég er fjarri því að
vera fullkominn. Það er enginn maður
fullkominn. Það verður öllum á í lífinu.
Auðvitað hefur mér orðið á og þarf á
fyrirgefningu Guðs að halda.“
Nú hefur mörgum sárnað ýmislegt
sem þú hefur sagt í gegnum tíðina, til
dæmis samkynhneigðir. Er verið að
skjóta á þig út af þessu – glerhúsið og
allt það?
„Eflaust er þetta rætt á einhverj-
um bloggsíðum, ég efast ekki um það.
En ég hef ekki sýnt samkynhneigðum
hörku, þótt það hafi komið þannig fram
í fjölmiðlum. Ég hef eingöngu síterað í
heilagar ritningar og hef ekkert umboð
að breyta þar einu né neinu. Ég legg
áherslu á það, gagnvart mér og öðrum,
að Guð hatar syndir okkar og afbrot, en
hann elskar syndarann. Við verðum að
greina þar á milli, hvort sem það er ég
í minni stöðu eða einhver annar í ann-
arri stöðu. Við getum alltaf snúið okkur
að kærleika Guðs og gengið frá því skip-
broti sem líf okkar er.“
Seldi jeppann
Ekki er því að neita að Gunnar er karl-
mannlegur með skeggið og sannfæring-
una. Útlitinu fylgja karlmannleg áhuga-
mál.
„Ég seldi reyndar stóra jeppann fyrir
nokkrum árum,“ segir hann. „Þegar
snjóflóðin féllu í Súðavík kom þjóð-
in saman á Ingólfstorgi og bað Guð
um náð og miskunn. Eftir það snjóaði
ekki í fimm ár. Þá var ekkert hægt að
fara til fjalla svo ég seldi jeppann. Ég
stunda veiðar og ég stunda sjóinn og ég
hef yndi af útivist. Ég neita því ekki að
ég er karlmaður.“
Mér er sagt að þú eigir einhverja
svaka skútu?
„Við félagarnir eigum bát sem er
kallaður lystisnekkja í fjölmiðlum. En
þetta er nú bara tíu metra Gáska-bátur
sem við notum félagarnir til að skjóta
fugla og veiða í soðið. Ég hef gríðarlega
gaman af að fara á sjó og að vera úti í
náttúrunni að njóta þess sem Guð gaf.
Landið okkar er stórfenglegt og sjórinn
hér í kring er yndislegur.“
Rétt! Þótt við eigum kannski enga
peninga, þá eigum við þó að minnsta
kosti fallegt land.
„Þegar harðindi sækja Ísland heim
eins og þessa dagana getum við bætt
allt upp sem við missum með því að
sýna hvert öðru meiri kærleika. Það
sem maðurinn þráir er kærleikur og
umhyggja, ekki peningar. Við förum
aldrei á hungurmörk. Hér mun enginn
svelta. Við skulum bara auka yndi okkar
með því að elska náungann eins og
sjálf okkur og elska Guð af öllu hjarta.
Þannig farnast þessari þjóð vel.“
DREPIÐ Í DROTTINS NAFNI! Gunnar á nýskotnum tarfi austur á Héraði við Sandvatn. Í bak-
grunni sést annar sem hann skaut líka. Gunnar vill kalla þessa mynd „Þrír tarfar“.
MYND/REIMAR ÁSGEIRSSON
Biblían er
mjög ljós.
Guð hatar
hjónaskiln-
aði. Það er
ekkert öðru-
vísi.