Fréttablaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 20
20 26. september 2009 LAUGARDAGUR
Í
Bretlandi hafa stúlkur
um langt skeið staðið sig
betur í skóla en drengir.
Viðbrögðin við þessu mis-
jafna árangri hafa verið af
ýmsum toga og hafa einn-
ig orðið til þess að ýmiss konar
alhæfingum hefur verið slegið
fram, til að mynda að drengir og
stúlkur þrífist í ólíku umhverfi og
það að konur séu í meirihluta kenn-
arastarfa hafi dregið úr árangri
drengja. Alhæfingarnar eru
fæstar réttar, segir Mike Younger
sem staddur var hér á Íslandi til
að halda tölu á ráðstefnu um jafn-
réttisfræðslu í skólum sem hér var
haldin í vikunni.
Að sögn Mikes hefur þróunin
í Bretlandi verið sú að stúlkum
gengur betur í námi en drengjum.
„Þegar tekið var upp nýtt prófa-
kerfi í Bretlandi árið 1988 kom
berlega í ljós að drengjum gekk
miklu verr en stúlkum í námi. Að
ellefu ára aldri átti þetta eink-
um við kunnáttu í móðurmálinu
ensku en við fjórtán ára aldur
voru stúlkurnar orðnar fremri
drengjum í öllum námsgreinum
að meðaltali.“
Kyn kennara skiptir ekki máli
Í fyrirlestrinum sem Mike hélt
á ráðstefnunni áðurnefndu benti
hann meðal annars á að umræðan
um drengi og áhyggjur af þeim og
skólagöngu þeirra hafi verið allsráð-
andi í þjóðfélags- og menntaumræðu
í Bretlandi og þannig hafi árangri
stúlknanna ekki verið hampað.
Ýmsar skýringar á muni kynjanna
hafa verið dregnar á flot, til dæmis
að fjöldi kvenna í kennarastétt skili
sér í betri árangri stúlkna.
„Það hafa engar rannsóknir sýnt
fram á að sú sé raunin. En vissu-
lega hefur þetta verið í umræð-
unni og haft afleiðingar. Breska
ríkisstjórnin hefur til dæmis
reynt að fá fleiri karlkynskennara
til starfa í skólum til að vega upp
á móti þessari þróun. En því hefur
ekki verið gefinn nægur gaum-
ur hvernig karlmenn er verið að
tala um. Er verið að tala um karl-
mannlega karla, sem hafa til að
bera eiginleika sem eru sagðir
dæmigerðir fyrir karlmenn, eins
og áhugi á íþróttum og keppnum.
Eða erum við að tala um næma og
umhyggjusama karlmenn? Raunin
er síðan sú að þegar maður talar
við börn um nám þá kemur í ljós
að kyn kennarans skiptir ekki
máli heldur hversu góður kennar-
inn er. Málið er auðvitað hversu
hæfir kennararnir eru og hversu
vel þeim tekst að miðla námsefn-
inu til barnanna.“
Strákar eru ekki allir eins
Annað sem hefur verið hent á lofti í
Englandi og reyndar líka á Íslandi
er að ólíkar kennsluaðferðir henti
kynjunum og því sé jafnvel best að
aðskilja þau í skólanum.
Mike segir mjög mikilvægt að
átta sig á að þessi aðferð sé ekki
töfralausn. „Það að skilja að drengi
og stúlkur getur jafnvel aukið bilið
á milli þeirra.“ Í fyrirlestri sínum
benti hann á að kynjaskipting krefj-
ist undirbúnings og ef hún er skyn-
samlega úr garði gerð geti hún skil-
að árangri fyrir bæði kynin. En
meðal þess sem þá þurfi að passa
sé að námsefni kynjanna sé hið
sama.
Mike segir mikinn áhuga hafa
sprottið í Bretlandi á misjöfnum
árangri kynjanna og meðal ann-
ars hafi sú hugmynd verið komin
vel á rekspöl hjá stjórnvöldum að
leggja mikið fé í að þróa kennslu-
aðferðir og námsgögn fyrir annars
vegar drengi og hins vegar stúlk-
ur. Þessar hugmyndir byggi á því
að kynin nemi með ólíkum hætti
og þurfi því ólíkar kennsluaðferðir
og nálgun. Rannsóknir styðji hins
vegar ekki þessa ályktun og hann
og hans rannsóknarhópur hafi bar-
ist gegn því að þessi leið verði farin
hjá stjórnvöldum.
Eitt helsta rannsóknarsvið Mikes
er á sviði kynja og náms og því veit
hann hvað hann syngur í þess-
um efnum. Hann stýrði um fjög-
urra ára skeið verkefninu Árang-
ur drengja bættur (Raising Boys´
Achievement) sem sett var á lagg-
irnar til þess að reyna að rétta hlut
drengja í grunnskólum Bretlands.
„Í brennidepli verkefnisins var að
auka árangur drengja í námi sem af
einhverjum ástæðum höfðu misst
áhugann. En hér er mjög mikilvægt
að það sé ljóst að við töluðum um
að auka færni drengja en vildum
ekki ýta stelpunum út í horn. Við
vorum með öðrum orðum að reyna
að þróa kennsluaðferðir sem skil-
uðu árangri hjá drengjum án þess
að stúlkum þætti þær vera gerðar
hornreka.“
Þetta segir Mike að sé mikil-
vægt vegna þess að hvorki drengir
né stúlkur séu einsleitur hópur, það
sé ekki hægt að alhæfa um kynin.
Ef það sé gert sé hættan sú að ein-
hvers konar steríótýpa kynjanna
taki yfirhöndina, sem henti alls
ekki þeim úr hópunum sem sam-
svari sig ekki með steríótýpunum.
Nýjar kennsluaðferðir
En hverjar eru þessar kennslu-
aðferðir?
„Við höfðum til dæmis mjög
mikinn áhuga á því að auka rit-
færni drengja. Það reyndum við
til dæmis að gera með því að beita
nýstárlegum aðferðum, gagnvirk-
um aðferðum; nota til dæmis skap-
andi greinar eins og leiklist til að
hjálpa okkur.“ Mike segir skapandi
greinar mjög mikilvæg kennslu-
tæki til þess að ná til drengja sem
hafa misst áhugann á námi; þar hafi
komið til sögunnar leiklist, dans og
ekki síst tónlist.
„Drengir sem eru önnur kyn-
slóð innflytjenda frá Karíbahafs-
eyjunum hafa til dæmis verið á
meðal þeirra sem gengur mjög illa
í skóla, í þeirra tilfelli hafi notk-
un á karíba tónlist í kennslu skilað
góðum árangri.“ Mike segir list-
greinar geta náð til drengja þannig
að þeir fái betri tilfinningu fyrir
því að tilheyra hópnum, og hjálpað
þeim til að finnast þeir taka meiri
þátt í skólastarfinu. Þessar aðferðir
henti einnig mörgum stúlkum.
En hvers vegna heldur þú að
drengir standi sig verr í prófum?
Kynjaskipting er ekki töfralausn
Mike Younger, deildarforseti menntavísindadeildar Cambridge-háskóla, segir afar varhugavert að alhæfa um drengi og stúlkur
í skólum. Engar rannsóknir styðji að kynin nemi með ólíkum hætti. Hann sagði Sigríði Björgu Tómasdóttur frá því hvernig hann
kom í veg fyrir að breska ríkið verði fjármunum í það að þróa ólíkar kennsluaðferðir fyrir kynin.
MIKE YOUNGER Segir notkun listgreina við kennslu henta vel til að ná til hópa sem hafa misst áhugann á námi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
1. Goðsögn: Strákar eru öðruvísi en stelpur.
Raunveruleiki: Það eru litlar sannanir fyrir því að strákar læri og nemi
öðruvísi en stúlkur. Sannanir benda frekar til þess að ef litið er á stráka
og stelpur sem einsleita hópa þá verði margir í hópnum út undan.
2. Goðsögn: Stelpur og strákar læra með öðruvísi hætti, hafa ólíka lærdóms-
aðferð.
Raunveruleiki: Lærdómsaðferð er umdeilt hugtak. Rannsóknir draga
það í efa og rannsóknir hafa ekki sýnt fram á að kynin tileinki sér náms-
efni með ólíkum hætti. Þó að stúlkur kjósi ef til vill hópastarf svo dæmi
séu tekin frekar en drengir er það val kannski afleiðing félagsmótunar.
3. Goðsögn: Drengjum vegnar vel í samkeppnisumhverfi.
Raunveruleiki: Það getur allt eins verið að slíkt umhverfi fái drengi til að
missa áhuga á náminu, ef þeir komast ekki í raðir efstu nemenda.
4. Goðsögn: Strákar vilja heldur lesa um staðreyndir en skáldsögur.
Raunveruleiki: Rannsóknir sýna að þeir drengir eru í miklum minnihluta
sem vilja lesa fræðitexta, flestir kjósa skáldsögur og ævintýri.
5. Goðsögn: Ef námsskráin verður meira löguð að drengjum þá munu
drengir ná betri árangri í námi.
Raunveruleiki: Engar sannanir styðja þessa kenningu. Hún getur aftur á
móti ýtt undir steríótýpur kynjanna og orðið til þess að kennarar hunsi í
raun þarfir nemendanna og takmarki val drengja og stúlkna.
*HEIMILD: FYRIRLESTUR MIKES YOUNGER
GOÐSAGNIR OG RAUNVERULEIKI*
Niðurstöður í samræmdum próf-
um á Íslandi, sem reyndar hafa
verið afnumin, hafa verið þær að
stúlkur standa sig betur en drengir
í þeim. Einnig hefur PÍSA-könnunin
svonefnda sýnt sömu niðurstöður. Í
riti Námsmatsstofnunar, Kynjamunur
í PÍSA, og samræmdum prófum 10.
bekkjar sem gefið var út árið 2007
segir meðal annars:
„Stúlkur eru betri en drengir í öllum
fjórum greinunum [stærðfræði, lestur,
náttúrufræði og þrautalausn] og í
engu landi eru yfirburðir stúlkna meiri
í samanburði við drengi í sama landi.
Niðurstöður PISA um kynjamun
eru í samræmi við niðurstöður
samræmdra prófa á Íslandi. Stúlkur
eru að meðaltali betri en drengir á
samræmdum prófum 10. bekkjar.
Samræmi milli niðurstaðna PISA og
samræmdra prófa styður réttmæti
beggja prófa og sýnir að kynjamun-
urinn er raunverulegur, ekki afsprengi
þess mælitækis sem notað er við
námsmatið.“
ÍSLENSKIR DRENGIR OG STÚLKUR
Í PRÓFUM Nemendur í Hliðaskóla þreyta samræmt próf árið 2006.
„Ég held að hér sé mjög mikilvægt
að átta sig á því að við erum að tala
um að sumir strákar standa sig verr
en stelpur. Það er mjög mikilvægt
að við hættum að tala um stelpur
og stráka eins og þetta séu einsleit-
ir hópar. Bæði strákum og stelpum
úr verkamannafjölskyldum gengur
til dæmis illa í skóla á Englandi. En
bæði drengjum og stúlkum úr hópi
kínverskra innflytjenda gengur vel
svo dæmi séu tekin og hvítum stúlk-
um úr millistétt,“ segir Mike.
Betri árangur en ekki laun
En hefur það einhverja þýðingu að
drengir standi sig verr í námi en
stúlkur?
„Þetta er sannarlega áhugavert
sjónarmið. Það er nefnilega ekki
endilega vandamál að drengir
standi sig verr en stúlkur. sú
staðreynd að þeir gera það hefur
samt valdið miklum umræðum
og áhyggjum. Ef horft er tuttugu
ár aftur í tímann þá má vissulega
segja að á þeim tíma hafi staða
kvenna batnað mjög mikið. Það eru
augljóslega betri tækifæri fyrir
konur en áður var. En ef litið er á
vinnumarkaðinn þá er ekki hægt
að segja að betri árangur kvenna
í námi skili sér út á vinnumarkað-
inn og betri árangur í skóla hefur
sannarlega ekki skilað sér í því að
konur hafi hærri laun.“