Fréttablaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 28
28 26. september 2009 LAUGARDAGUR
Hver er uppáhaldsliturinn þinn?
Arna: Sæblár.
Kristjana: Rauður.
Ertu orðin það sem þú ætlaðir að
verða þegar þú yrðir stór?
Arna: Nei, ég hef ætlað að verða
rauður vörubíll frá því ég var fjög-
urra ára. Það hefur enn ekki orðið.
Kristjana: Ég á nú ekki bóka-
búð sem er líka sælgætisbúð með
súkkulaði, sælgæti og bókum uppi
um alla veggi. En ég starfa samt við
það sem ég hef ástríðu af, útgáfu og
fjölmiðla.
Andi birtist þér og veitir þér
þrjár óskir. Hvað biður þú um?
Arna: Hlébarða, jafnvægi og
ást.
Kristjana: Ég bið um farsæld
handa öllum. Óska þess líka að
konur heimsins njóti réttinda á við
karlmenn og að ég geti sungið.
Hvers konar tónlist hlustar þú
mest á?
Arna: Mest á þögnina, en ef ég
gæti bara haft Ólaf Arnalds sem
undirspil í lífinu þá sameinar hans
tónlist allt sem vekur sterkar til-
finningar með mér.
Kristjana: Þessir tónlistarmenn
eru á fóninum núna: Mary Lou
Williams, Joe Bataan, Jon Luci-
en, Mark Murphy, Two Banks of
Four og Mayer Hawthorne. Elvis
Presley er líka uppáhalds.
Besta kvikmynd sem þú hefur
séð?
Arna: Goonies.
Kristjana: Ég er oftast upprifin
yfir síðustu „bestu“ mynd sem ég
hef séð. En ég verð að viðurkenna
að uppáhaldsmyndin mín er hin
súpervæmna Roman Holiday.
Besta bók sem þú hefur lesið?
Arna: Kafka on the Shore eftir
Haruki Murakami.
Kristjana: Allar bækur Haruki
Murakami.
Hvaða árstíð er í mestu uppá-
haldi hjá þér?
Arna: Haustið.
Kristjana: Haustið.
Hvað veist þú sem við hin vitum
ekki?
Arna: Mögulega hvernig heim-
speki, líffræði og arkitektúr
blandast í skemmtileg form í hug-
anum.
Kristjana: Ég geymi helling af
leyndarmálum.
Eftirminnilegasta tímabil lífs
þíns og af hverju?
Arna: Nýliðin ár því ég hef lært
svo margt.
Kristjana: Núið! Algjört ævin-
týri.
Hvernig matur þykir þér
bestur?
Arna: Fiskur, hrár í þara og
grjónum eða grillaður á kolum.
Kristjana: Ostur. Ég kikna í
hnjánum yfir góðum osti.
En verstur?
Arna: Sagógrjónagrautur.
Kristjana: Spaghettí í sósu úr
dós.
Hverjum ertu þakklátust?
Arna: Manninum mínum fyrir
að deila með mér þeirri lífsskoðun
að lífið eigi að vera fallegt og fullt
af gleði. Ég er líka þakklát Vig-
dísi Finnbogadóttur fyrir að hafa
verið töffari fyrir okkur íslensku
konurnar.
Kristjana: Fjölskyldunni. Kon-
unum sérstaklega, þær eru gáfað-
ar, fallegar og ljónsterkar. Karl-
arnir eru bara gáfaðir!
Hvar vildirðu helst búa, ef ekki
í Reykjavík?
Arna: Nálægt fólkinu mínu, sem
myndi búa í þorpinu sem ég keypti
handa því á Spáni/Kyoto/Kaliforn-
íu … við munum flytja frekar oft.
Kristjana: London eða Aðaldal í
S-Þingeyjarsýslu. Já, eða Sauðár-
króki.
Hvert er versta starf sem þú
hefur gegnt?
Arna: Svei mér þá, mér hefur
þótt allt skemmtilegt. Mér finnst
erfitt að sitja á rassinum. Það er
það versta.
Kristjana: Ætli það hafi ekki
verið þegar ég vann sem nemi við
þrif í aðalútibúi Landsbankans.
Klósettin. Þarf ég að segja meira?
Ef þú ættir tímavél, til hvaða árs
myndirðu þá fara?
Arna: Ég væri til í að kíkja nokk-
ur ár fram í tímann, smella af
mynd og sanna að við þurfum að
hætta umhverfisspjöllum og bregð-
ast við hlýnun jarðar.
Kristjana: Fyrst myndi ég vilja
hitta afa minn Örnólf en hann dó
áður en ég fæddist.
Fallegasta orðið?
Arna: Kátína.
Kristjana: Umburðarlyndi.
Umburðarlyndi og kátína
Á allra næstu dögum bætist Ynjunetið við flóru vefmiðla. Á vefslóðinni www.ynja.net munu konur geta sótt sér innblástur og
fræðslu um alla skapaða hluti – allt frá heilsu þeirra til hagsmuna, sushi-gerðar og bílaviðgerða. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir
skellti systrunum Kristjönu og Örnu Guðbrandsdætrum í þriðju gráðu yfirheyrslu.
YNJUR Systurnar Kristjana og Arna Guðbrandsdætur deila hrifningunni á haustinu og bókum Haruki Murakami. Þær deila líka ýmsu öðru, svo sem fjölmiðlaástríðunni. Þær standa að baki nýju veftímariti ætluðu konum
sem verður hægt að nálgast á www.ynja.net á næstu dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Arna Ösp
Guðbrandsdóttir.
GÆLUNAFN: Agga.
AFMÆLISDAGUR OG HVAÐA
MERKISMANNESKJA DEILIR
HONUM MEÐ ÞÉR: 14. júní 1978.
Ég deili honum eiginlega með
ömmu Böggu sem á afmæli 15.
júní.
FULLT NAFN: Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir.
GÆLUNAFN: Ég er stundum
kölluð Dista.
AFMÆLISDAGUR OG HVAÐA
MERKISMANNESKJA DEILIR
HONUM MEÐ ÞÉR: 29. október
1976. Winona Ryder og langafi
minn, Steingrímur Baldvinsson,
deila honum með mér.