Fréttablaðið - 26.09.2009, Side 47
heimili&hönnun ●
heimili
Þ etta skemmtilega taflborð eftir spænska hönnuðinn Jaime
Hayón, sem nefnist The Tournament,
er á meðal þess sem var til sýnis á ný-
afstaðinni hönnunarhátíð í London.
Samanstendur taflborðið af 32
tveggja metra háum taflmönnum
sem gnæfðu yfir gesti og gangandi
sem áttu leið um Trafalgar-torg í
miðborginni.
Mikil vinna liggur að baki verkinu
og við gerð þess átti Hayón í nánu
samstarfi við sérfræðinga Bosa, ít-
alska keramíkframleiðandans. Engir
tveir taflmenn eru eins; á einhverja
hefur hönnuðurinnn handmálað
tákn sem vísa í sögu London. Aðrir
minna í útliti á þekktar byggingar
þar í borg, turna, spírala og fleira.
Sjálfur segist hönnuðurinn hafa
búið í London í þrjú ár og á þeim
tíma hafi hann uppgötvað ýmislegt
sem hafi komið honum gjörsam-
lega í opna skjöldu. Hann vildi láta
verkið endurspegla þessar uppgötv-
anir ásamt því að fá borgarbúa sjálfa
og auðvitað ferðamenn nálgast sögu
borgarinnar á nýstárlegan hátt.
Frumleg framsetning
Hönnuðurinnn hæstánægður með taflið sem var til sýnis á hönnunarhátíð í London.
● LÆRT AÐ PRJÓNA það
hefur væntanlega ekki farið fram-
hjá nokkrum manni að það er í
tísku að prjóna þessa dagana. En
til er fólk sem ekki kann að velja
prjóna sem henta garninu sem
prjóna á úr og hefur aldrei fitj-
að upp eða notið þess að taka
sér prjóna í hönd á síðkvöldum.
Þetta fólk þarf ekki að gráta örlög
sín heldur bara að taka prjónana
í sínar eigin hendur og byrja. Það
getur fundið upplýsingar á net-
inu svo sem á knittinghelp.com
eða farið á námskeið hjá fagfólki. Í hannyrðaversluninni Storknum er til
dæmis boðið upp á fjölbreytt námskeið í prjóni, hekli og bútasaumi í
vetur. Á dagskrá eru komin nokkur námskeið sem hefjast í september
og október en upplýsingar um þau má finna á síðunni storkurinn.is.
LJÓSIN LOGA HJÁ ÓLA PRIK
Sænski hönnuðurinn Marie-Louise
Gustafsson fékk þá hugmynd að
breyta blýantsmjórri skissu af Óla
prik í lampa sem hefur fengið nafnið
MAÑANA. Útkoman er óneitanlega
spaugileg en hugmyndin þó ekki al-
vitlaus enda minna lampar á fæti með
skerm óneitanlega á slánalegan karl.
- ve
A
T
A
R
N
A í september
Glæsilegar vörur nú á
Tækifærisverði.
Láttu drauminn rætast.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Skoðið Tækifæristilboðin á
www.sminor.is
Umboðsmenn um land allt.
Tæki færi
Yfirburðir Fréttablaðsins staðfestir!
Fréttablaðið er með 106% meiri lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublaði á höfuðborgarsvæðnu, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009.
Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna
dagblað landsins með glæsilegt forskot
á samkeppnisaðila sinn eins og síðasta
könnun Capacent Gallup ótvírætt sýnir.
Við erum auðvitað rífandi stolt af þessum
góða árangri og bendum auglýsendum
á að notfæra sér forskot okkar þegar
þeir velja auglýsingamiðil.
MORGUNBLAÐIÐ
35%
FRÉTTABLAÐIÐ
72%
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2009