Fréttablaðið - 26.09.2009, Page 58
34 26. september 2009 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Útvarpsleikhúsið hefur vetrardag-
skrá sína á morgun kl. 14 með
frumflutningi á nýju verki: Guð
blessi Ísland – útvarpsleikrit eftir
Símon Birgisson og Malte Scholz.
Þetta er fyrsta verk Símons sem
flutt er í útvarpi og samið með
ramma heimildarverksins en fjallar
eins og nafnið gefur til kynna um
fjármálahrunið. Sögusviðið er lítill
bær á Íslandi. Þar hefur verið fram-
inn glæpur og þeir seku ganga enn
lausir. Við kynnumst bæjar búum
sem allir hafa sínar hugmyndir
um glæpinn. Bæjarstjórinn
hefur tapað lífeyrissparnaðinum,
lögreglu maðurinn syngur íslensk
ættjarðarlög, sparnaðarráðgjafi
bæjarins neitar að borga lánin sín. Í Bæjarleik-
húsinu er verið að sýna Kardemommubæinn og
leikritið Milljarðamærin snýr aftur – sem fjallar líka
um glæp, siðferði og mannlegt eðli.
Leikritið verður rauði þráður sögu
bæjarbúa sem standa einnig frammi
fyrir erfiðum valkostum þegar lífs-
grundvelli þeirra er ógnað.
Meðal leikenda eru Ellý
Ármannsdóttir, Gísli S. Einarsson og
Geir Jón Þórisson. Hljóðvinnsla er
í höndum Hjartar Svavarssonar en
Símon stjórnar sjálfur.
Verkið er það fyrsta sem tekur
beinlínis á hruninu í dramatísku
formi en von er á fjölda verka sem
hafa hrunið í forgrunni og verður
fróðlegt að heyra hvað leikskáld
okkar, kvikmyndagerðarmenn og
aðrir listamenn hafa um atburðina
fyrir ári að segja. Verkið verður
aðgengilegt á hlaðvarpi RÚV í tvær vikur eftir
útsendingu. það er svo endurflutt fimmtudaginn 1.
okt. kl. 22.15.
Guð blessi Ísland í leikritsformi
ath. kl. 15
Rithöfundurinn Sigurður Pálsson
kynnir ljóðabók sína, Ljóðorkuþörf,
og les upp úr bókinni í bókaverslun
Eymundsson við Skólavörðustíg
milli kl. 15-16 í dag. Sigurður er í
fremstu röð sem ljóðskáld, prósa-
höfndur og leikskáld en hann hlaut
Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir
Minnisbók árið 2007 og Grímuverð-
launin sem leikskáld ársins fyrir
Utan gátta árið 2009. Ljóðorkuþörf
er fjórtánda ljóðabók hans. LEIKLIST Símon Birgisson
deilir sinni sýn á hrunið í
Útvarpsleikhúsinu á morgun.
MYND/FRÉTTABLAÐIÐ
Í dag verður opnuð sýning á Ljósmyndasafni
Reykjavíkur á verkum eins mesta ljósmyndara
allra tíma, André Kertész, og nefnist hún Frakk-
land – landið mitt (Ma France). Sýningin kemur
frá hinu virta safni Jeu de Paume í París. André
Kertész var Ungverji. Hann kom til Parísar árið
1925, sem á þeim tíma var borg ljóðskálda og list-
málara. Á næstu árum myndaði hann París og
mannfólkið þar og skóp hina klassísku og sílifandi
mynd af borginni sem háborg áranna milli stríða.
Hinar klassísku ljósmyndir hans af Eiffel-turn-
inum, vinnustofu Mondrians og hin einstaka ljós-
mynd af dansmey í skopstælingum voru upphaf
stíls sem meðal annars starfsfélagar hans og sam-
tímamenn, Brassaï og Cartier-Bresson, tóku upp.
„Allt sem við höfum gert gerði Kertész á undan
okkur,“ sagði Cartier-Bresson eitt sinn um kol-
lega sinn en hinn lýríski stíll Kertész varð til þess
að hann var stundum kallaður „ljóðskáldið með
myndavélina“.
André Kertész fæddist í Búdapest árið 1894.
Hann tók sína fyrstu ljósmynd árið 1912 og tók
fjölmargar myndir af ættingjum sínum og vinum
sem og sveitum Ungverjalands. Eftir stríðið sett-
ist hann að í París og komst í Montparnasse-
hverfinu í kynni við ungverska listamenn og
margt af þekktasta fólkinu í bókmennta- og list-
heiminum (Mondrian, Eisenstein, Chagall, Calder,
Zadkine, Tzara, Colette). Hann var einn af fyrstu
ljósmyndurunum sem notuðu 35 mm myndavél af
Leica-gerð og nýtti sér hið myndræna frelsi sem
þessi merka myndavélartegund bauð upp á. Ljós-
myndir hans voru víða birtar í frönskum fjölmiðl-
um (Vu, Art et Médecine) og í Þýskalandi (Uhu,
Frankfurter Illustrierte).
Árið 1933 gerði hann hina frægu myndröð sína
Afmyndanir (Distortions). Árið 1936 þegar hann
var á hátindi síns listræna ferils ákvað hann að
flytja til New York. Frá árinu 1949 starfaði André
Kertész fyrir ritstjóra Condé Nast-útgáfufyrir-
tækisins og voru myndir hans birtar reglulega í
tímaritinu House and Garden. Snemma á sjötta
áratugnum fór hann að taka myndir í lit. Hann tók
myndir af hverfinu sem hann bjó í og færði sig
smám saman af strætunum og tók að ljósmynda
úr glugganum á íbúðinni sinni sem sneri að Wash-
ington Square. Árið 1963 fundust í Suður-Frakk-
landi filmur hans frá þeim tíma er hann bjó í
Ungverjalandi og Frakklandi. Hann nýtur mikill-
ar virðingar um allan heim fyrir hæfileika sína,
sínar fjölmörgu sýningar sem og bækur sínar
með röðum mynda. pbb@frettabladid.is
Sýning á myndum Kertész
LJÓSMYNDIR Ein frægasta mynd Kertész frá Parísarárunum af
Kiki. MYND LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
Í dag opnar Guðjón Ketilsson mynd-
listarmaður sýningu í Listasafni
ASÍ á Skólavörðuholti í Ásmundar-
sal. Á sýningunni sýnir Guðjón nýja
skúlptúra og teikningar, þar sem
hann tekur fyrir byggingarrými og
húsgögn, hlutverk þeirra og hlið-
stæður við mannslíkamann.
Guðjón er menntaður við Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands og
Nova Scotia College of Art and
Design í Halifax, Kanada og hefur
hann haldið tugi einkasýninga og
tekið þátt í samsýningum á Íslandi,
í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Hol-
landi, Spáni, Ástralíu og víðar. Hann
á verk á öllum helstu söfnum lands-
ins og víða erlendis og hefur dval-
ið og unnið á ýmsum alþjóðlegum
vinnustofum og verið valinn í fjölda
samkeppna um útilistaverk. Guðjón
hlaut Menningarverðlaun DV árið
2000 og verðlaun Listasafns Einars
Jónssonar árið 2001.
Guðjón kallar sýninguna Hlutverk
og í inngangi segir sýningarstjórinn
Ólöf K. Sigurðardóttir: „Listaverk
greina gjarnan kunnuglega hluti
frá sínu venjulega umhverfi og
gefa þeim nýtt hlutverk. Þau krefja
áhorfandann um afstöðu til þess
sem er þekkt en kynna einnig nýja
möguleika og hugmyndir sem leiða
hugann á óþekktar brautir. Þannig
sýna verk Guðjóns Ketilssonar á
sýningunni Hlutverk ekki eingöngu
áhuga hans á að athuga fyrirbæri í
umhverfi okkar í því skyni að lýsa
þeim eins og þau koma fyrir honum
sjónir heldur líka til að kanna hvaða
nýja hlutverk má finna þeim eða
hvaða nýja skilning má fá á hlut-
verki þeirra.“ - pbb
Guðjón í ASÍ
MYNDLIST Ein teikning Guðjóns á
sýningunni Hlutverk sem verður opnuð í
dag í Ásmundarsal. MYND/GUÐJÓN KETILSSON
Tvær danssýningar verða í boði
um helgina: í Hafnarfjarðarleik-
húsinu er á ferðinni gestasýn-
ing. Efnið – Barbara – er mörgum
kunnugt hér bæði af samnefndri
sögu og kvikmynd. Barbara er
færeysk-dönsk sýning, afsprengi
listræns samstarfs danska dans-
höfundarins Ingrid Tranum og
færeyska tónskáldsins Trondar
Bogasona. Sýningin er innblásin
af skáldsögu Jörgens Fritz
Jacobsen sem ber sama nafn og
var valin framlag Dana á heims-
sýningu EXPO.
Danssýningin var frumsýnd á
EXPO, heimssýningunni í Zara-
goza sumarið 2008. Uppfærslan
er unnin í samvinnu danska dans-
leikhússins, Saga Dance Dance
Art Collective og færeyska kórs-
ins Mpiri. Héðan fer sýningin til
Færeyja og verður sýnd í Norð-
urlandahúsinu í Þórshöfn. Tvær
sýningar í Hafnarfjarðarleikhús-
inu verða 26. og 27. september.
Á sunnudagskvöld hefjast
sýningar á Fjölskyldusýningu
Íslenska dansflokksins en þar má
líta aðgengileg og skemmtileg
brot úr verkum á sýningarskrá
flokksins. Sýningin er ætluð allri
fjölskyldunni og er markmiðið að
kynna nútímadans fyrir fólki og
þá sérstaklega yngri kynslóðinni.
Þess vegna er börnum 12 ára og
yngri boðið ókeypis inn á sýning-
una og 13-16 ára fá miðann á hálf-
virði.
- pbb
Listdans um helgi
LISTDANS Fjölskyldusýning Íslenska dansflokksins er ætluð allri fjölskyldunni og
verður á fjölum næstu fjóra sunnudaga. MYND/ÍD.
Ævintýraleg og spenn-
andi saga af ánauð
og frelsun sterkrar
konu. Steinunn setur
Tyrkjaránið og hugar-
heim forfeðra okkar,
nyrðra og syðra, í
spennandi samhengi í þessu heillandi
skáldverki. Skyldueign á hverju heimili.
Metsölubók Steinunnar Jóhannesdóttur
um ævi Guðríðar Símonardóttur
er loksins fáanleg að nýju.
> Ekki missa af
sýningu í Listasafni Árnesinga
sem lýkur nú um helgina en
hún er helguð Gerði og Nínu,
tveimur konum sem voru í
fylkingarbrjósti óhlutbundinnar
listar hér á landi um miðja
síðustu öld, en leiðir þeirra
skárust fyrst í París og síðar
í skreytingum í kirkjunni í
Skálholti. Á sunnudag kl. 15 er
leiðsögn.