Fréttablaðið - 26.09.2009, Síða 64
40 26. september 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Kvikmyndin Algjör Sveppi
og leitin að Villa var frum-
sýnd á fimmtudagskvöldið.
Fjöldi ungmenna lagði
leið sína í Álfabakka til
að fylgjast með því þegar
margar skærustu stjörnur
barnanna gengu inn í kvik-
myndahúsið eftir rauðum
dregli.
„Þetta var alveg hrikalega flott og
alveg meiri háttar skemmtilegt. Ég
gæti ekki verið ánægðari,“ segir
Sverrir Þór í samtali við Frétta-
blaðið. Hann upplýsir að mynd
númer tvö sé í smíðum og reyndar
fá þolinmóðir kvikmyndahúsagest-
ir nasasjón af því sem koma skal.
„Það kemur brot úr næstu mynd á
eftir kreditlistanum.“ Sverrir & co
eru augljóslega ekkert að tvínóna
við hlutina og ætla að leggjast í
handritsskrif þegar frumsýning-
arhelgin er liðin.
Sverrir kveðst ekki að halda bíó-
myndin muni gera hann ríkan eða
hjálpa honum að greiða niður mynt-
körfulánið. „Ég efast um það, þetta
er aðallega gert til að gleðja börnin.
Mynd númer 2 verður hugsuð til að
græða og greiða niður þetta lán,“
segir Sverrir og skellihlær. Annars
kveðst hann eiginlega vera í skýj-
unum yfir þessu öllu; honum þyki
nefnilega svo ótrúlega skemmti-
legt að horfa á sjálfan sig á hvíta
tjaldinu.
„Það er alveg rosalegt kikk að
líta yfir fullan sal af fólki sem er að
horfa á eitthvað rugl eftir mann,“
segir Sverrir sem svífur augljós-
lega um á bleiku skýi. - fgg
SVEPPI 2 Á
TEIKNIBORÐINU
STÓRVINIRNIR MÆTA TIL LEIKS Þeir Auð-
unn Blöndal og Hugi Halldórsson voru
að sjálfsögðu meðal gesta og drógu
ungviðið með sér inn í kvikmyndasali
Sambíóanna.
MIKIL SPENNA Þessi drengir áttu erfitt
með að hemja spennuna og eftirvænt-
inguna þegar þeir biðu eftir því að
komast inn í bíóið til að horfa á Algjöran
Sveppa.
Í VONDUM FÉLAGSSKAP Skoppa og
Skrítla hafa eflaust kennt ræningjunum
úr Kardimommubænum sitthvað um
hvað er rétt og hvað er rangt.
ÍÞRÓTTAÁLFURINN ALLTAF VINSÆLL Ein
helsta útflutningsafurð Íslands, Íþrótta-
álfurinn, mætti á svæðið. Ekki var það
þó Magnús Scheving sem klæddist bláa
búningnum heldur staðgengill hans.
NÝ KYNSLÓÐ Einhverjar vinsælustu stjörnur barnatímans Stundarinnar okkar mættu
á svæðið, þeir Gunni og Felix. Og nú er spurt; eru Vilhelm Anton og Sverrir Þór
arftakar þeirra? FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
> ORÐIN BLÖNK
Kynbomban Pamela Anderson
á víst í fjárhagskröggum. Hún
skuldar verktökum 1,2 millj-
ónir Bandaríkjadala auk þess
sem hún skuldar skattinum
dágóða summu.Það er ef til vill
kominn tími til að hún vinni
sér inn aura til að greiða skuld-
ir sínar.
„Fjallabræður og Magnús eiga ein-
hvern veginn saman – við erum búnir
að eignast nýjan bróður,“ segir Hall-
dór Gunnar Pálsson, kórstjóri vest-
firska kórsins Fjallabræðra.
Tónlistarmaðurinn Magnús Þór
Sigmundsson hefur tekið kórinn
undir sinn verndarvæng og
samið handa honum lögin Til
fjalla og freyja. Magnús kom
fram með kórnum í söfnunar-
þættinum Á rás fyrir Grensás
í gærkvöldi.
Sagan af upphafi samstarfs-
ins hefst í Hveragerði, þar
sem Fjallabræður tróðu upp fyrir vest-
firska eldri borgara á Hótel Örk.
„Við tókum alltaf Ísland er land
þitt [eftir Magnús] til að komast í fíl-
ing. Svo ræddum við um að það yrði
gaman að hitta karlinn og spyrja
hvort við mættum nota lagið á
plötunni okkar,“ segir Gunn-
ar. Magnúsi var þá boðið að
koma á Hótel Örk og hlusta
á flutninginn og tókust þá
góð kynni með honum og
Fjallabræðrum, kynni sem
bera ávöxt á fyrstu plötu
bræðranna sem er væntan-
leg.
Gunnar er gríðarlega
ánægður með samstarfið
og vefst tunga um tönn
þegar hann er beðinn um
að lýsa Magnúsi. „Hann er svona …
Ég veit ekki hvernig ég á að lýsa því.
Hann segist vera álfur og hann er nátt-
úrulega af öðrum heimi. Hann hugsar
öðruvísi en flestir – hugsar skemmti-
lega. Það er mjög gaman að vinna með
honum.“ - afb
Magnús Þór semur fyrir Fjallabræður
FJALLABRÆÐUR Senda frá sér plötu fyrir jól.
„Þetta var nú bara hugmynd sem við vorum að
gantast með í sumar, að ganga frá Ísafirði til
Reykjavíkur til að kaupa ís. Svo létum við slag
standa!“ Þetta segir Jón Björnsson, sem ásamt
Hjálmari Forna Steingrímssyni lagði af stað fót-
gangandi til Reykjavíkur á fimmtudaginn í síð-
ustu viku. Unglingurinn Hjálmar dvaldi með
Jóni á Hornströndum í sumar, en þar er Jón
landvörður. Hann sást á dögunum í þætti Gísla
Einarssonar, Út og suður. Þar kom fram að hann
skokkar um allt á stígvélum. „Við erum nú bara
í venjulegum strigaskóm í ferðinni, enda erum
við léttir og það er lítið álag á skónum. Á Vest-
fjörðum gengum við beint af augum yfir fjöll og
firnindi. Þarna eru fá landbúnaðarsvæði og auð-
velt að komast um, engar girðingar og slíkt. Eftir
að við komum á þjóðveginn göngum við bara eftir
honum. Það er styst og auðveldast.“
Jón segir þá félaga gista í tjaldi, en stundum í
svefnpokagistingu. Þetta er um 450 kílómetra leið
og mun taka tíu daga þegar upp er staðið, 45 km á
dag. „Við komum í bæinn á morgun, en við erum
ekki búnir að ákveða hvar við fáum okkur ís – og
ekki einu sinni hvernig ís. Það koma margir staðir
til greina.“ - drg
Ganga 450 kílómetra til
Reykjavíkur til að kaupa ís
FERÐIN NÝHAFIN Hjálmar og Jón ofan Hattardals, milli Álfta-
fjarðar og Hestfjarðar.
MAGNÚS ÞÓR Samdi
ekki eitt, heldur
tvö lög fyrir
Fjallabræður.