Fréttablaðið - 26.09.2009, Síða 66
42 26. september 2009 LAUGARDAGUR
Breska eitíshljómsveitin Spandau
Ballet ætlar í nóvember að gefa
út sína fyrstu plötu í tuttugu ár.
Platan nefnist Once More og er
titillag hennar á leið í útvarps-
spilun. „Þegar við komum aftur
saman og miðasalan á tónleikana
fór af stað trúðum við ekki þess-
um ótrúlegu viðbrögðum,“ sagði
söngvarinn Tony Hadley. „Þegar
okkur gafst tækifæri til að fara
í hljóðver og spila tónlist saman
gátum við ekki sleppt því.“ Síð-
asta plata Spandau Ballet kom
út 1989 og af henni voru gefin út
fimm smáskífulög.
Ári síðar lagði sveitin upp laup-
ana. Alls átti Spandau Ballet tíu
smáskífulög á topp tíu listanum í
Bretlandi á árunum 1979 til 1990,
þar á meðal True, Gold, Only
When You Leave og Through the
Barricades.
Fyrsta platan í 20 ár
SPANDAU BALLET Nýleg mynd af sveit-
inni sem sló í gegn með lögum á borð
við True og Through the Barricades.
NORDICPHOTOS/GETTY
Skagahljómsveitin Cosmic Call
gaf nýverið út sjö laga plötu sem
er sú fyrsta úr hennar herbúðum.
Grammy-verðlaunahafinn Richard
Dodd, sem hefur unnið með lista-
mönnum á borð við Green Day,
Kings of Leon, Red Hot Chili Pepp-
ers og George Harrison, sá um að
leggja lokahönd á gripinn. Cosmic
Call og Sigurður Ingvar Þorvalds-
son stjórnuðu upptökum.
„Ég hafði samband við hann.
Ég var búinn að athuga hvort ein-
hverjir menn úti gætu gert þetta og
leist best á hann,“ segir Sigurmon
Hartmann Sigurðsson, söngvari og
gítar leikari Cosmic Call. „Hann
var mjög áhugasamur að gera þetta
með okkur.“ Það voru hljómsveit-
armeðlimirnir sjálfir sem fram-
leiddu plötuna og fengu þeir vini
sína og fjölskyldur til aðstoðar.
Plötuumslagið var saumað úr lér-
efti og voru eitt þúsund eintök búin
til. „Amma var sérstaklega dugleg
en við unnum öll hörðum höndum
að þessari plötu. Stelpurnar sáu að
mestu leyti um saumaskapinn en
það kom sá tími sem maður greip í
saumavélina. Það er samt ekki mín
sterkasta grein,“ segir Sigurmon.
Cosmic Call er nýkomin úr tón-
leikaferð um landið sem kallað-
ist Rokkinnrásin þar sem Nögl
og Dead Model tróðu einnig upp.
Sveitin er á fullu að semja nýtt efni
en næstu tónleikar hennar verða á
Iceland Airwaves-hátíðinni um
miðjan október. - fb
Fengu hjálp frá Grammy-hafa
COSMIC CALL Rokkhljómsveitin frá Akra-
nesi hefur gefið út sjö laga plötu.
Ólafur Arnalds fær átta í ein-
kunn af tíu mögulegum hjá
breska tímarit-
inu Clash Music
fyrir plötu sína
Found Songs.
Á plötunni er
safn laga sem
Ólafur samdi
í vor á óvenju-
legan hátt.
Hann samdi
þau til á píanó,
tók upp og gaf
út eitt lag á
Netinu ókeypis á hverjum degi í
heila viku.
„Hugmyndin á bak við þessa
plötu er hjartnæm. Að taka sjö
einföld píanólög og gefa eitt út
í einu á Twitter í hverri viku,“
segir í dómnum. „Þetta er spenn-
andi, árangursríkt og vel heppn-
að. Frábær tilraun.“ - fb
Ólafur fær
góða dóma
ÓLAFUR ARNALDS
Tónlistarhátíðin Réttir
er í fullum gangi. Trausti
Júlíusson fylgdist með
fyrstu tveimur kvöldum há-
tíðarinnar og var ánægður
með útkomuna.
Þó að aðstandendur tónlistarhátíðar-
innar Rétta hafi lagt áherslu á að
hún væri annars eðlis en Iceland
Airwaves-hátíðin þá er samt margt
líkt með þessum tveimur viðburð-
um. Eins og Airwaves fara Rétt-
irnar fram samtímis á nokkrum
tónleikastöðum í miðborginni og
hátíðargestir valsa á milli til að sjá
sem flest. Og það er óhætt að segja
að Réttirnar hafi byrjað af krafti.
Á miðvikudagskvöldið var dagskrá
á sex stöðum og maður strax kom-
inn í valkvíðakast.
Ég hóf kvöldið á stærsta staðn-
um, Nasa. Þar spiluðu strákarnir
í For a Minor Reflection. Þeir
eru enn að fullkomna post-rokkið
sitt og voru í fínum gír, en lista-
maðurinn Kilford málaði mynd
upp á sviði á meðan þeir spil-
uðu. Á Grand rokk var dagskrá-
in í höndum Brak-plötufyrirtæk-
isins. Það voru frekar fáir mættir
þegar hjónabandið Létt á bárunni
flutti jaðarskemmtipoppið sitt við
góðar undirtektir, en það hafði
fjölgað mikið í salnum þegar stuð-
rokksveitin Skelkur í bringu steig
á svið. Húmorískt band með hæfi-
leikaríka söngkonu og óvenjumik-
inn áhuga á slími. Á Batteríinu
voru hinir ungu Kid Twist að klára
sýrurokkkeyrslu þegar ég kom á
svæðið, en hápunktur kvöldsins
var hiklaust stórtónleikar Hjalta-
lín á Nasa. Sveitin tók bæði ný lög
og gömul, þau síðarnefndu mörg í
aðeins breyttum útgáfum. Öryggi
og spilagleði ásamt mátulegum
skammti af kæruleysi einkenndi
settið þeirra. Á Jacobsen voru
Ruxpin og Oculus í fínum gír hvor
á sinni hæðinni á Weirdcore-kvöldi
en kvöldið endaði á rappsveitinni
Fallegum mönnum á Nasa. Efnileg
sveit, en virkar einhvern veginn
ekki alveg enn. Það vantar herslu-
muninn.
Fimmtudagskvöldið var sömu-
leiðis þétt skipað og margt gott
í boði. Dr. Gunni spilaði stutt en
gott gigg með bandinu sínu í upp-
hafi kvöldsins á Nasa. Fáir mætt-
ir, en þetta band svínvirkar og
sérstaklega gaman að hafa Heiðu
með. Hún setti mikinn svip á
útkomuna. Á Batteríinu var Magn-
oose (áður Mongoose) að spila raf-
tónlistarsvítu undir gamalli jap-
anskri skrímslamynd. Frábær
tónlist, fersk og tilraunakennd
og greinilegt að maður verður að
fylgjast vel með Magnoosi í fram-
tíðinni. Morðingjarnir spiluðu sitt
fyrra sett af tveimur sama kvöld-
ið á Sódómu og gerðu vel. Á Batt-
eríinu spilaði danska sveitin The
State, The Market, The DJ og
eftir groddann í Morðingjunum
hljómaði gæðatónlist þessara við-
kvæmnislegu drengja hálf mátt-
laus í byrjun, en hún vann á. New
Yorkarinn Jesse Hartmann spil-
aði svo nokkur lög nýkominn af
heimsfrumsýningu á kvikmynd-
inni sinni á RIFF og salurinn fyllt-
ist af skvaldrandi kvikmyndaá-
hugamönnum sem klöppuðu af
ákefð á milli laga. Jesse var einn
á sviðinu með gítarinn, en fékk
af og til liðsinni munnhörpuleik-
ara sem var falinn bak við súlu.
Þokkalegt alveg, en þeir sem ekki
voru á staðnum voru ekki að missa
af neinu. Þetta hefur allt heyrst
hundrað sinnum áður. Á Nasa
kláruðu Hjálmar kvöldið með
þriggja manna blásarasveit. Troð-
fullur salurinn söng með og vagg-
aði sér. Hjálmar eru alveg á toppn-
um núna og eiga það fullkomlega
skilið. Massíf sveit.
RÉTTIR BYRJA AF KRAFTI
TÓNLEIKAR
Réttir
Miðvikudags- og fimmtudags-
kvöld Bogi Jónsson þrjóskast við að
halda eign sinni á Hliði á Álfta-
nesi. Þar var hann búinn að koma
upp veitingahúsi og nuddstofu
á myntkörfulánum rétt áður en
allt hrundi. „Jú jú, það er allt
í hálfgerðri stórsteik ennþá og
það þarf kraftaverk til að maður
verði ekki gjaldþrota. En maður
þrjóskast við,“ segir Bogi.
Hann opnaði kaffihúsið Café
Álftanes í veitingahúsinu í
sumar. Á sunnudaginn verður
opnuð þar sýning á myndum
pabba Boga, náttúrufræðings-
ins Jóns Bogasonar, af örsmáum
sjávarlífverum við Íslandsmið.
„Umhverfisráðherrann ætlar að
mæta og ég er að spá í að gefa
henni slotið,“ segir Bogi. „Sú gjöf
er nú ekki eins höfðingleg og
ætla mætti því íslenska ríkið á
þetta allt hvort sem er!“ - drg
Örsmáar lífver-
ur á kaffihúsi
RÉTTIR Á NASA Megas og Senuþjófarnir tróðu upp á fimmtudagskvöldið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Veljum íslenskt
NÝ ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
Óskar
Sími: 895-9801
oskar@sbd.is
www.sbd.is
Ertu í vandræðum
með uppskeruna
Rúma 25-35 kg.
af grænmeti.
Tvær stærðir
25 kg. 5.500 kr.
Verð nú 4.000 kr.
35. Kg. 6.500 kr.
Verð nú 5.000 kr.
Wallfl ower
Conceal Hilla
Felicity
Wallfl utter
30% AFSLÁTTUR AF UMBRA-VÖRUM - GLÆNÝ SENDING
Holtagarðar
Opið: Laugardag 10-17
Sunnudag 13-17
Kringlan
Opið: Laugardag 10-18
Sunnudag 13-17
TEKK COMPANY
Sími 564 4400
www.tekk.is
Lunas Frame