Fálkinn - 22.12.1944, Side 22
18JÓLABLAÐ FÁLKANS 1944
JÓLASAGA EFTIR EMIL BÖNNELYCKE:
BJÖLLUIRNAIR
SÖRFN MIKKELSEN hafði tekið
sier bólfestu skamt fyrir utan
Silkiborg, i húsi, sem iiann hafði
fengið hjá gamalli húsmannsekkju
þar í sveitinni. Sören og Alma kona
hans voru ung hjón, en þó ung
væri höfðu þau dvalið nokkur- ár
í Canada, en það land hafði bak-
að þeim mikil vonbrigði. Canada
liafði eiginlega rekið þau heim og
skapað þessuin ærukæru ungu hjón-
um það auðmýktarástand, að þau
höfðu orðið að byrja með tvær
nendur tómar i heimalandinu, l)eint
fyrir augunum á fjölskyldu sinni.
Og til þess að þurfa ekki að svara
forvitnu frændfólki til sakar, höfðu
þau leitað liælis í sveit, þar sem
þau voru öllum ókunnug.
Samt minti staðurinn Sören og
Ölmu á vissa staði í Kanada, í aust-
urhluta landsins ]mr sem þau höfðu
dvalið. En eiginlega þótti Sören
ekkert vænl um þessi sviplíkindi,
þvi að þau mintu hann á slys, sem
hann liafði upþlifað í Matawaska-
liéraði. Hann hafði verið í vinnu
á bóndabæ þar upp til fjalla, en
Alma hafði starfað í kaupstað þar
í grendinni. Eina vetrarnóttina, þeg-
ar hann svaf værum svefni á bæn-
um fórust flestir á heimilinu við
að skriða hljóp á bæinn. Húsið,
sem hann svaf í, varð undir aur og
snjó, en þetta var fjósið, sem hann
svaf í, og stoðirnar voru sterkar og
héldu þakinu uppi. En marga klukku
tíma lá hann þarna í jarðorpnu fjós-
inu, milli vonar og ótta.
Hann liafði aldrei getað gleymt
þessum atburði, og orðið fyrir
taugaáfalli af honum — og það hafði
orðið honum ógleymanlegt, að eina
hljóðið, sem hann heyrði meðan
hann lá þarna i grafhýsinu, var
hringingin frá kirkjukjukkunum i
næsta þorpi, sem hann heyrði í
birtingu næsta morgun. Honum
fanst hinn fjarlægi hljómur þess-
ara kirkjuklukkna vera líkastur lík-
hringingu, eins og hann hafði þeg-
ar verið jarðaður — og hann gat
aldrei gleymt honum. Hann átti
bágt með að heyra klukkur hringja,
jafnvel þó mörg ár væru liðin frá
þessum atburði, og altaf fór hrollur
um hann þegar svo bar undir.
Iiúsið, sem þau Alma og liann
höfðu fengið eftir húsmannsekkj-
una, var gamalt og stóð eitt sér
úti á lieiðinni, þar sem gróðurinn
var allra fátækastur, en nokkur
hundruð metra að baki voru dimm-
úðugar brekkur og ásar, með djúp-
um giljum, þar sem stormarnir gátu
brugðið á leik. Sören Mikelsen hafði
gert við húsið, sem hann hafði
fengið fyrir lítið, enda var það orð-
ið mjög lasburða. Þau Alma höfðu
átt heima þarna i tvö ár og unnið
baki brotnu að jarðræktinni, en
eina hvassa vetrarnótt vaknaði
Sören við það, að honum fanst
norðurgaflinn, sem svefnherbergið
vissi út að, vera að láta undan.
Hann fór á fætur þarna um hánótt;
úti var fárviðri og með liryllingi
mintist hann vetrarnæturinnar í
Matawaska, þegar húsið varð und-
ir skriðunni . . . Enginn furða þó
að hann yrði alvarlegur. Þó mint-
isl hann ekkert á þetta við konuna
sína daginn eftir; en hann skoðaði
múrhleðsluna í gaflinum og þakið
gaumgæfilega, kannaði öll sam-
skeyti en gat ekki séð nokkra rifu
í múrnum. Næstu dagana hjelt ó-
veðrið áfram með sama ofsanum.
Hann var dauðhræddur um að
húsið mundi hrynja þá og þegar ..
Nú liafði hann stritað við að lappa
upp á þetta hreysi, bæði í ár og
mánuði, og þau Alma bæði, til þess
að gera úr þvi þolanlegan samastað.
En var það svo sterkt að það þyldi
slorminn? Það var spurningin, sem
Sören hvarf aldrei úr liuga.
I" öllum þrengingunum og einstæö-
ingskapnum urðu þau þó einnar
gleði aðnjótandi. Þau eignuðust
barn. Ofurlitla stúlku, sem var skírð
Metta. Það gerði minst til þó að
þau væru ekki rík, þvi að nú liöfðu
þau fengið annað til að hugsa um,
nefnilega barnið og uppeldi þess.
Hið mikla yndi, sem þeim veittist
daglega i sambandi við barnið, úl-
rýmdi smátt og smátt áhyggjunum
og heilabrotunum. Það kom sumar
og svo nýr vetur, og nú var Metta
byrjuð að ganga og babla fyrslu
orðin. Og Sören fanst það öllum
auði betra að eiga svona litið barn,
sem vagaði um fátækleg húsakynn-
in og dreifði áhyggjunum frá.
En annars virtist nú þyngja fyr-
ir. Það var komið að jólum, og
Sören braut heilann um hvar hann
ætti að fá peninga til að gera sjer
og sínum dagamun um liátiðina.
Svo veitti túninu ekki af að fá
inergil, því að án hans gat mngurt
lieiðarlendið aldrei komist í rækt
og gefið uppskeru. Og ekki dvínuðú
áhyggjurnar, er liann uppgötvaði
það viku siðar, að sprunga var kom-
in í gaflmúrinn á lnisinu, eftir
einn óveðursdaginn.
Nóttina eftir dreymdi liann að
hann væri staddur í Matawaska:
liann sá fyrir sjer bóndabýlið þar
og fann ofan á sjer fallnar stoðir og
snjó —og aurbing á bringunni á sér,
svo að hann gat varla dregið and-
ann. Hann var að kafna — og alt
í einu, í fjarska — klukknahljómur
barst að eyrum hans. Það voru
kirkjuklukkurnar í þorpinu, sem
hringdu .... langt burtu í fjarska
.... í Matawaska ....
Hann spratt upp úr rúminu, með
ákafan hjartslátt, og hlustaði. Nú
heyrði hann ekkert nema veinið í
vindinum, sem gnauðaði á húsinu.
JEG ætla með áætlunarbílum til
Nörre Snede, sagði Alma nokkr-
um dögum fyrir jól, og næ í eitt-
hvað af vörum og ofurlitið jólagling-
ur. Og svo borgum við þetta með
eggjum eftir áramótin.
Sören varð einn eftir með barn-
ið, og hann notaði tímann til að
hræra út kalk í bala og taka nokkra
steina úr gaflinum og múra þá vand-
lega aftur. Hann var ánægður með
verk sitt þegar hann liafði lokið þvi.
Alma kom úr kaupstaðnum með
fangið fullt af bögglum og pinkl-
um. Og andlitið á henni ljómaði
meðan hún var að taka utan af
þessu umbúðirnar.
— Sjáðu livað jeg hefi keypt til
að skreyta stofuna. sagði liún. Þess-
ar ætla jeg að hengja í loftið, sína
undir hvorn bitann.
Þetta voru tvær bjöllur, dumb-
grænar á lit og skreyttar með gull-
bronsi; auk þess voru á þeim greni-
kvistir og rauð bönd. Innan i bjöll-
unum voru litlir kólfar úr leir, og
þegar maður liristi bjöllurnar i
hendi sjer eða gaf kólfunum sel-
bita, heyrðist i þeim veikur, hrjúf-
ur ómur.
Sören sagði ekkert um þetta, setti
ekki út á þær, en ljet Ölmu skreyta
stofuna.
— Veistu livað jeg ætla að gera,
Sören — spurði lnin þegar hún
hafði stigið upp á stólinn til þess
að hengja bjöllurnar upp.
— Ha? sagði liann annars hugar.
En hvað Alma Ijet sjer ant um þetta
glingur.
— Jeg ætla að hengja þær hlið
við lilið í sama bitann. Þær eru
miklu fallegri svoleiðis, en hvor i
sínu lagi.
— Gerðu cins og þjer sýnist, svar-
aði hann stutt.
— Finst þjer það ekki fallegra?
Mjer finst alveg eins og þjer,
Alma. En ljúktu nú við þessar bjöll-
ur.
— Þú kærir þig ekkert um þær,
sagði lhin. — En mér finst þetta
fallegustu jólabjöllurnar, sem jeg
hefi sjeð. Mér þykir svo vænt um
þær. Þetta voru þær síðustu, sem
þeir áttu. Nú á jeg ekki nema eina
ósk og hún er sú, að jeg ætti aðrar
tvær, sem jeg gæti hengt á hinn
bitann, því að þá væri þetta sönn
jólastofa.
— Mjer finst tvær vera meira en
nóg, sagði Sören í dimmum róm,
og óskaði með sjer að konan hætti
þessu bjölluhjali. Og Alma þagnaði,
því að nú mintist hún atburðarins
i Canada fyrir nokkrum áruin.
AÐ var kyrrt og stjörnubjart, og
Sören fór snemma að hátta, því
að á morgun var aðfangadagur. Alma
liafði lokið jólaundirbúningnum. —
Hún var að þvo barninu, áður en
hún færi að hátta.
Um nóttina fannst lionum sjer
verða svo einkennilega innanbrjósts.
Hann sá æfi sina eins og í þoku,
og fannst að mara þunglyndisins
hvíldi á sjer, eins og þegar eitthvað
er í aðsigi, sem mann grunar, en
veit ekki livað er. Hann settist upp
i rúminu, dró gluggatjaldið til hlið-
ar og sá livernig snjóinn skóf upp
að glugganum. Hann heyrði hvininn
af storminum, þegar hann rykti í
gaflinn og þakið. Það hlaut að hafa
gert byl, liræðilegan jólabyl. Og svo
heyrði hann allt í einu að barjð
var á dyrnar. Einhver lilaut að
standa úti fyrir og vilja komast inn.
Á þessum tíma nætur og í þessu
veðrí?
Hann lilustaði. Höggin endurtöku
sig í fjarlægð. Hann fór framúr,
gekk gegnum stofuna og eldhúsið,
fram að dyrunum.
— Hver er þar? spurði hann áður
en hann lauk upp.
Hann heyrði gamla, veika rödd,
að honum fannst.
Sören opnaði út í snjóinn og nótt-
ina, og fyrir utan stóð gamall og
fátæklegur maður, nötrandi af kuþla.
— Gætir þú ekki lijálpað gömlum
manni? spurði hann hljóðlega.
— Hvað er þetta maður? sagði
Sören, — og það á þessum tíma
næturl Hvaðan ber þig að? Og með
hverju get jeg hjálpað þjer?
— Með því að kaupa ofurlitið af
mjer.
— Kaupa? Hvað á jeg að kaupa?
— Ofurlítið jólaskraut. Kauptu
þessar tvær bjöllur--------
— Bjöllur? át Sören eftir, og það
lá við að hann hnykkti við. Eru það
bjöllur, sem þú vilt selja?
— Þessar tvær litlu jólabjöllur --
— Nei, þökk fyrir, tók liann fram
í. — Við þurfum eklti fleiri bjöllur.
— Þetta eru þær síðustu, sem jeg
á — hjelt gamli maðurinn áfram,
og liendur lians titruðu.
Sören ætlaði að lolca dyrunum
og segja gamla manninum að fara
á burt; en allt i einu datt honum i
hug, að Alma liafði óskað sjer, að
hún ætti tveimur bjöllum fleira,
sem hún gæti liengt neðan í liinn
bitann. Hann vorkenndi gamla mann-
inum og keypti báðar bjöllurnar.
— Þökk, þakkir, stamaði gamli
maðurinn og hneigði sig með erfið-
ismunum til hans, framá stafinn
sinn. — En það er. .. .
Rödd hans heyrðist ekki fyrir
storminum, sem hvein í gættinni.
Gamli maðurinn laut að honum og
sagði:
Gætir þú ekki hjálpað gömlum manni? spuröi hann.