Fálkinn - 22.12.1944, Síða 25
JÓLABLAÐ FÁLKANS 1944 21
í§land§ >11 di
Heiðbláv himingeimur,
hrein og skjólsæl fjöll,
hárra fossa hreimur,
uoldug vatnaföll.
Hlíð og hömrum undir
arænar dalagrundir,
ojörk við bjarta flúð.
Hraun og víðiheiðar,
hvannalinda skrúð.
Ljósgrænn liggur mosinn,
við lækjarbunu úð.
í fjarska jökulbungur breiðar, —
bær við enda leiðar
þar sem öllum að er hlúð.
Svo er lslands yndi.
Þar leikur flest í Igndi.
Ef við heimsins ógn og stríð
augum fyrir syrtir
aftur birtir
er þér fagnar íslensk birkihlíð,
merluð blómum bláum,
rík af anganreyr,
Ijós af lækjum smáum,
hlý af klettum háum,
þar sem fuglar syngja tveir og tveir.
Enga snáka óttast þarf
undir viðarrótum,
engin váleg villidýr
á verði í djúpum gjótum.
Þú getur sofnað sætt und bjarkarrótum.
Víðlend mýri, vötnin blá
víða í óbyggð skiftast á.
Dimmgrænt fergin, stararstrá
stillt sig spegla í votri gljá,
svigna hægt i sumarblæ
er svífur yfir storð,
hvísla að vegi og vegfaranda
vinarorð.
t lyngmó, þar sem berin blá
bjóða svölun Ijúfa
er gott að á,
því gestaborð er grænmjúk lyngsins þúfa
berin svört og blá á sjerhver þúfa.
Ilminn leggur yfir storð
af ótal smáum blómum,
humlar glóa, —
um holt og móa
hljómar fuglakvak.
Yfir öllu landi hvelfist
loftsins bláa þak.
Svo er Islands yndi
allra meina bót.
Fold og himinn, haf og sól
þín hugarbót.
Hulda.