Fálkinn - 16.12.1949, Blaðsíða 10
Til vinstri: Upprunalega, voru engar svalir á
Aulestad, þeim megin sem vissi niður aö Gaus-
dalnum. En eitt sinn er Björnson kom heim úr
löngu feröalagi uppgötvaöi hann aö svalir voru
komnar á húsið, þeim megin, sem hann var van-
astur að horfh mest gegnum gluggann. „Alltid
skal du vœre det dejligste menneske paa jorden,
Karolinesagöi hann þá. Nú þurfti hann ekki
aö njóta útsýnisins frá húsinu „gegnum gler“.
e XX XX XX XX XX XX XX XX XX XX XX XX XX XX XX XX XX XX X Jölablað falkans 1949
Til hægri: Skrifstofa Björnsons. — Myndin af
Goethe hátt uppi á veggnum, lengst til vinstri.
Auhsiad - heimili Kirtline og Björnstjtrnc Björnsons.
Eftir Skúla Skúlason
ÉTTUR aldarfjórðungur var
liðinn siðan óg, nýkominn
til Noregs í fyrsta sinn,
sá Brekke Museum í Skien
og lyfjabúSina gömlu í Grimstad, þeg-
ar ég sá Aulestad í Gausdal núna í
haust. í Skien var Henrik Ibsen fædd-
ur og því hefir bærinn talið sér sóma
að því, að safna sem flestu af þvi,
sem snerti höfund Péturs Gauts, sam-
an á safninu á Brekke, sem er utar-
lega i Skien. í gamla apótekinu í
Grimstad — skammt frá Slcien —
starfaði Ibsen sem unglingur, las und-
ir próf og skrifaði „Catilina“ í tóm-
stundunum, þegar hann hafði nætur-
vörslu. Það voru áhrifin frá febrúar-
byltingunni 1848, sem voru að gerjast
í honum. Og svo var hann að lesa
latínu undir stúdentspróf. Þar á meðal
Ciceroræðuna um uppreisnarmanninn
Catalina. Þess vegna er næturvörslu-
klefinn, sem liann skrifaði fyrsta leik-
ritið sitt í, enn til með ummerkjum,
ásamt ýmsu sem snertir Grimsstaða-
vist Ibsens, en hún varð sex ára löng.
I.
A111 þetta rifjaðist upp fyrir mér er
ég kom til Aulestad núna í haust. Eg
hafði ekið þjóðveginn, sjö km. fyrir
neðan þennan stað, oftar en einu
sinni, en alltaf stóð svo á, að ég gat
ekki tekið á mig krókinn og skoðað
stórbýlið, sem Björnstjcrne og Karo-
line kona hans sátu, frá 1874 til dauða-
dags — hans vorið 1909 og liennar
1934. Síðan hin háaldraða húsmóðir á
Aulestad andaðist, hefir staðurinn ver-
ið þjóðareign — heimili Björnsons-
hjónanna stendur enn með ummerkj-
um, eins og það var þegar frú Karo-
Jine dó. Það var Anders Sandvig, hinn
víðkunni stofnandi safnsins á Mai-
liaugen á Lillehammer, „De Sand-
vigske Samlinger“ er sagt liefir verið
itarlega frá hér í blaðinu, sem átti
hugmyndina að því að húsakynni
Björnsons yrðu þjóðareign.
Þáverandi ritstjóri „Aftenposten“ í
Osló, Fröis Fröisland, tók upp þessa
hugmynd og nú var efnt til frjálsra
samskota meðal almennings til þess
að kaupa heimili Björnsons og gefa
það ríkinu. Hér var um að ræða þrjú
hús, sjálft íbúðarhús Björnsons,
geymsluhús, sem stendur ofanvert við
hlaðið (eða tunet, sem Norðmenn
lcalla) og „drengjastofuna", þ. e. í-
búoarhús vinnufólksins. En sjálf jörð-
in, sem er stórbýli, skyldi undanþegin
sölunni, ásamt hinni miklu fjós- og
lilöðubyggingu og íbúðarhúsinu, sem
fylgdi búrekstrinum sérstaklega, varð
í eigu ættarinnar áfram. Þar býr nú
sonarsonur skáldsins, Haraldur, og
rekur hið gamla stórbú af mesta dugn-
aði. Hann keypti búið af föður sínum
fyrir nokkrum árum.
En það er sonardóttir Björnsons,
ungfrú Else Björnson, sem hefir um-
sjón með liinum gömlu húsakynnum
safnsins. Hún hefir gegnt þvi starfi
siðan „heimilið varð safn“ og hver
sá gestur á Aulestad, sem veit að það
er kona, sem annast um þessa dýru
arfleifð þjóðskálds Norðmanna, hlýt-
ur að játa með sjálfum sér, að kven-
fólkið sé stundum fullt eins góðir
þjóðminjaverðir og karlmennirnir.
Á Brekke lians Ibsens var aðeins
safn. Á Aulestad hans Björnsons er
í raun réttri ekkert safn. Það er
lifandi bústaður þeirra Björnstjerne
skálds og frú Karoline og maður gríp-
ur sjálfan sig í þvi að láta sér finnast,
að maður sé að heimsækja lifandi
manneskjur, sem séu ekki heima ein-
mitt þann daginn, sem maður kemur,
en séu væntanleg heim einhvern næstu
daga úr einhverri ferðinni suður í
lönd — eða kannske þau hafi skropp-
ið til Osló.
II.
Eg lýsi ekki liúsum á Aulestad. —
Þetta er alls engin höll, eins og sum-
ir bústaðir gamalla verslunarhöfð-
ingja í strandbæjum Noregs, með
tugum af herbergjum og stóruin söl-
um, heldur aðeins gott og skemmti-
legt stórbýlishús í sveit. Björnson
langaði til þess, er hann komst að
fertugu, að eignast býli i sveit og
eiga þar heima. Norski bóndimi var
mergurinn í þjóðinni, fannst honum.
í árslok 1873 eru Björnsonshjónin
nýkomin til Firenze í Ítalíu, eftir
langa dvöl í Schwaz i Tyrol. Þau
dveljast í matsölugistihúsi i Firence
fram eftir janúar 1874. En 2. jóladag
hafa þau fengið bréf frá ungum guð-
fræðikandidat, sem er kennari við
Iýðskólann í Vonheim i Gausdal eystra
og kunnugur þeim. Þar segir, að jörð
sé föl þar i sveit, Olstad heiti hún.
Hvort Björnson vilji ekki setjast þar
að, þvi að þar eigi hann marga vini
og aðdáendur, svo sem Christopher
Bruun (skólastjórann), Kristofer Jan •
son (skáldið) og fleiri.
Karoline var ólm í þetta en Björn-
stjerne hugsaði málið. En mánuði síð-
ar var Olstad orðinn lians eign — 15
þús. spesiudali kostaði jörðin, stór-
fé, þvi að ekki var hann rílcur, þó
hann hefði dágóðar tekjur í þann tíð.
Hann var sem sé laus á fé lika. T.
d. hafði hann skömmu áður hitt þýska
baróninn Ilarro Harring, auralausan
hugsjónamann, sem barðist fyrir lýð-
ræðishugsjóninni, og gefið honum 3
þús. dali til þess að berjast gegn aftur-
haldinu og kirkjuvaldinu á Spáni!
Björnson var líka lýðveldissinni og
umfram allt — hann var stríðsmaður
frelsisins. Aleigu handa Harro!
Ilin fjárhagslega stoð lians var
Ilegel gamli í Kaupmannaliöfn, sem
var stoð og stytta þeirra liöfunda sem
eitthvað gátu. Stjórnandi „Gylden-
dalske Bogliandel“, þessa Sesams, sem
lika liefir opnað íslenskum rithöf-
undum dyr fram á okkar minni. —
Björnson treysti sér, Gyldenda! og
ýmsum fleiri aðilum, sem þá höfðu
áhuga á leikritum hans sérstaklega,
til þess, að liann gæti staðið í skilum
með borgunina. Þarna var um að
Setustofa Björnsons á Aulestad. Yst til hægri sést málverk af Bergljótu, dóttur
konu skáldsins, síöar giftri Sig. Ibsen.