Fálkinn - 16.12.1949, Blaðsíða 11
jölablað fálkans 1949 5 55 55 55 55 55 55 55 55 5-5 55 5555 55 55 55 55 55 7
BaÖstofan á Aulestad var ekki stór, en vistleg var hún.
ræða bestu jörðina i Gausdal með allri
áhöfn — 50 nautgripum, 6 hestum,
7 svinum og 25 geitum — og svo seii
til fjalla með veiðivatni og mörgum
varphólmum í því, sex þurrabúðum,
einni hjáleigu og svo ógrynnum af
skógi i þokkabót! — Svo segi ég ekki
þá jarðarkaupasögu lengri. En þetta
gerðist snemma ársins 1874, um lílct
leyti og Sveinbjörn Sveinbjörnsson
sat i Edinborg á Skotlandi og var
að semja lagið við „ó, Guð vors
lands.“
Olstad hét jörðin. Björnson þóttist
vita að hún hefði heitið Álastaðir að
fornu, og breytti þvi nafninu í það
form, sem norskur nútima ritháttur
krafðist, en hann er stundum hjá-
kátlegur í augum þeirra, sem enn
kunna gamla og góða norsku. Aulestad
er ekki kenndur við „aula“ heldur við
„Ála“, sem var algengt mannsnafn
í Noregi að fornu.
III.
Lág regnský hvildu yfir Gausdal,
er ég kom þangað í haust. Dalurinn
er hliðarkvísl, sem liggur frá suð-
vestri niður á láglendið sem breiðist
út frá mynni Guðbrandsdals, og áin
úr Gausdal rennur út í Mjörs, sem
Snorri kaliaði rétt, en nú kallast
Mjösa. — Gausdalur er ekki breiður
né djúpur, en hlíðarnar eru aflið-
andi og brattalitlar, eftir þvi sem
gerist i norskum dölum, — akrar eru
sánir þar langt uppeftir, en þó er
dalurinn öllu fremur skógarbyggð en
búskapar.
Og uppi i miðri hlíð er Aulestad.
Vegurinn liggur staðarins megin í
dalnum — að norðan verðu í hlíð —
og ekki nema nokkur skref upp að
hliðinu að helgidómi skáldsetursins.
Hér niðri við veginn rak ég mig á
bifreiðastæði, sem rúmar að minnsta
kosti þrisvar sinnum fleiri farartæki
en nokkurt þeirra, sem til var í
Reykjavík, þegar ég var þar seinast.
Þau kunna að vera orðin stærri nú.
En þarna niðri á stæðinu sé ég
auglýsingar um, hvenær „safnið“ sé
opið og á hvaða tímum árs. — Það er
með öðrum orðum „safngestagangur“
hér á Aulestad. Og það versta er, að
ég sé að ég kem ekki á réttum heim-
sóknartíma. — En læknirinn í Gaus-
dal, sem flutti mig á bilastæðið og sem
ég gisti hjá i nótt, eftir að hafa hald-
ið fyrirlestur um ísland og hlustað á
miklu betri ræðu fyrir íslandi, sem
skáldið Inge Krokann hélt, — hefir
greitt úr öllum vanda, svo að „kon-
servator" Else Björnson tekur á móti
mér þegar ég kem í dyrnar, og kynn-
ir mér konu, frú „overrettssakförer
Andersen frá Osló“, sem ætli að ganga
með mér um bústað Karoline og
Björnstjerne Björnson.
Það kemur brátt á daginn að frú
Andersen er góður leiðbeinandi. Hún
talar ekki of mikið, útskýrir ekki
mikið, en lofar mér að spyrja. Mér
finnst eitthvað svo kunnuglegt við
hana, alveg eins og ég liafi séð ættar-
mót hennar einhverntíma áður, og
það heyri ég vel að hún talar norsk-
una með dönskum hreim.
Við skoðum fyrst dagstofuna. í
stólunum og sófanum hefir margt
frægt fólk setið á liðnum kvöldum —
en þó einkanlega kvenfólk, því að
karlmennirnir flýðu þá inn i „Grise-
huset“ aðra vistarveru á Aulestad,
sem var sú eina á bænum, sem leyfi-
legt var að reykja í. Þá reykti kven-
fólk ekki og Björnson var illa við
að tóbaksreykjareimur væri i stofun-
um á Aulestad, nema i „Grisehuset“.
Þar máttu allir púa eins og þeir vildu.
En einn af „stamgestunum“ setti sig
út yfir boð og bann húsbóndans, svo
þrálátt að Björnson gafst alveg upp
við að láta hann hlýða sér. Það var
Alexander Kielland. „Ilann var sá
eini gestur á Aulestad, sem fékk að
reykja hvar í húsinu, sem liann vildi,“
segir frú Andersen og brosir.
Við göngum næst inn í borðstofuna.
Ilún er ekki ýkja stór, en einstaklega
björt og skemmtileg. Og svo förum
við niður í kjallarann og lítum á
eldhúsið. Þar blasa við spegilfagrir
katlar og könnur úr eir á eldavélinni
og yfir lienni, en úti við gluggann er
lílið, dúkað borð, þar sem oft var
matast þegar fáir voru heima af fjöl-
skyldunni. Og stundum kom það fyr-
ir að skáldið settist við þetta borð,
þegar liann kom svangur utan að, og
fékk sér matarbita, — lnigsa ég mér.
En ckki sagði frú Andersen það.
Svo förum við upp stigann aftur.
Og nú er ferðinni heitið inn í þá stof-
una, sem mig langaði mest til að sjá:
skrifstofu skáldsins á Aylestad.
Þarna stendur skrifborð, bkki stórt,
eins og blaðamönnum finnst þeir þurfi
að hafa, til þess að hrúga gögnum
kringum sig. Heldur hæfilega lítið en
fallcgt skrifborð, útskorið á frain-
hlið og með tveimur standmyndum,
sinni á hvoru horni. En á veggnum
hátt yfir skrifborðinu er marmara-
mynd af Grundtvig. „Honum fannst að
af öllum mönnum ætti hann mest
Grundtvig að þakka,“ segir frú And-
ersen, um leið og hún sýnir mér þess-
ar hvítu höfuðmyndir.
En skammt frá glugganum á nor.ður-
veggnum blasir við annað mannshöfuð
úr marmara yfir borðinu i liorninu,
þar sem þau settust svo oft, Karoline
og Björnstjerne til áð rökræða mál-
efni og hugmyndir. Þar las liann
stundum upp úr sér, en hún sat og
skrifaði eftir honum. Hún skrifaði
yfirleitt mikið fyrir manninn sinn
— m. a. hreinskrifaði hún um langt
skeið handritin hans, er senda skyldi
forlaginu. En myndin sem ræður hús-
um í þessu horni er af Goethe.
Á veggnum andspænis Goetheveggn-
um er einnig stór brjóstmynd. Eg
ætlaði varla að þekkja hana fyrst í
stað en tókst það þegar ég hafði horft
á hana um stund. Ástæðan var sú,
að mér fannst yfirskeggið á mann-
inum miklu hrjúfara og ólögulegra
en ég átti að venjast á þessum manni,
sem ég þekkti þó svo vel af myndum,
sem ég hafði séð af honum á ýmsuin
ahlri. — Alexander Kielland.
-----Og næst skoða ég svo „Grise-
huset". Og það var kannske skemmti-
legast af öllu saman. Ekki svo að
skilja, að ég þyrði að kveikja i pípu
þar, þó að slíkt væri sjálfsagt „til
forna“. Heldur af því að þarna voru
veggirnir einna mest lifandi, af öllum
veggjum í húsinu. Krökkt af myndum
— litlum málverkum, sem skáldinu
liöfðu verið sendar sem minningar frá
frægum listamönnum eða nýgræðing-
um, málverk, sem áttu að sýna skáld-
ið sjálft eða hugmyndir, sem fram
koma i verkum lians. Málverk og
gamlir, sjaldgæfir niunir, stærri og
smærri. Og ljósmyndir! Af öllu því
Framhald á bls. 9.
Svefnherbergiö, þaö eina af þremur, sem varöveitt er á Aulestad.
„GrísahúsiÖ". T. h. sést arinninn meö ýmisskonar forntœkjum, en á múrhlífinni
myndir, sem ýmsir heimilisvinir hafa málaö á þær. T. h. húsgögn, sveitasmíöi,
og á veggnum fyrir ofan litlar vatnslitamyndir, geröar af gestunum.
EldhúsiÖ á Aulestad. Yfir eldavélinni standa á hillu allar tekönnurnar, en á
veggnum t. h. ýms eldhúsáhöld.