Fálkinn


Fálkinn - 16.12.1949, Síða 12

Fálkinn - 16.12.1949, Síða 12
8 « « « « « « « 3H£ « K $* JÖLABLAÐ FÁLKANS 1949 Hið fræga danska skáld, Johannes Jörgensen, sem var kaþólskrar trúar, hefir samið fjöldann allan af ljóðum og sögum trúarlegs efnis. Hér cr ein af hinum snjöllu helgisögum skáldsins. — Fjórði vitringurinn frá Austurlöndum „Og vitringarnir fceröu honum gull, reykelsi og mirru.“ 'VS^T>Æáf F® ÞESSI heyrir söfn- uðurinn um jólin undir kirkjuhvelfingunni, og sé það gömul kirkja, sem orðin hljóma í, er ekki ósennilegt að á einhverjum veggnum eða stoðinni sjáist gömul mynd af Jesúbarninu í faðmi móður sinnar, og vitring- arnir þrir krjúpandi á kné fyrir framan þau. Sá fyrsti er Kaspar, hann fær- ir gjöf úr gulli: Kaleik, vígðan blóði — ef til vill á einhver engill að nota hann á Golgata til þess að taka við blóðdropunum, sem drjúpa úr höndum hins kross- festa. Bak við hann fellur Melchior á hné, nafn hans minnir á Melchi- sedeck, prestinn frá tíð hins gamla sáttmála, prestakónginn í Salem, sem Abraham gerði sér ferð úr Mamreslundi til þess að heim- sækja, en Melchisedeck gekk fyr- ir altarið og bar fram hina heilögu fórn brauðs og víns, og kirkju- faðirinn gekk til altaris hjá hon- um árla morguns er dögg var á jörðu, undir pálmunum í Salem. Melchior er í prestaskrúða og veif- ar reykelsiskerinu til Jesúbarns- ins. En aftast er blámaðurinn, hinn svarti Baltasar. Hvaða sól hefir litað þig svo dökkan, hrokkin- hærði, varaþykki Baltasar? Kem- ur þú frá Indíalandi, úr ríki Jó- hanns prests, þar sem fuglinn Rok verpir logarauðu sól-eggi á hverj- um morgni við strönd hins kyrra hafs? Eða komstu hingað frá Saba, eins og drottning lands þíns gerði einu sinni, — til að finna þann, sem var Salómon meiri? Fórst þú um eyðimerkur Arabíu — safnaðir þú mirrunni, sem þú kemur með, undir grýttu Sínai- fjalli — og hugsaðir þú þá til dagsins sæla fyrir mörgum öldum, þegar fjallið allt hristist og spjó reyk, af þvi að Jahve steig niður á tind þess og talaði augliti til auglitis við Móses? Safnaðir þú mirrunni þinni þar — mirrunni, sem María á að geyma eins og vinber milli brjósta sér, þangað til sá dagur kemur, að sonur henn- ar og Guðs heilags anda hangir þyrstur á krossi sínum og honum verður rétt mirrublandað vatn? Kaspar, Melchior, Baltasar — allar myndir sýna ykkur — frá fátæklegu steinmyndinni í Fjenn- eslev til hins töfrandi málverks Gentile da Fabrianos í Firenze. Og helgir dómar ykkar hvíla i eðalsteinsskrýddum kistum í Kölnar-dómkirkju, og á hverjum degi að lokinni hámessunni ganga hinir æruverðu dómherrar að kistum yðar til að sýna beinum yðar virðingu.------------ --------En gömul saga segir, að þegar þið lifðuð hér á jörð og tókuð ykkur ferð á hendur til Betlehem og komuð inn í fjár- húsið og funduð barnið og móður þess, og færðuð barninu gjafir ykkar-------- hafi barnið ekki vilj- að brosa til ykkar. Hinn heilagi Jósef varð glaður þegar hann sá gullkaleikinn — Maríu þótti heið- ur að reykelsinu, sem var brennt eins og á reykelsisaltarinu í Jerú- salem, þar sem hún hafði verið í æsku — og með tárin í augun- um stakk hún mirrunni inn á brjóst sér. En barnið Jesús teygði ekki fram litlu hendurnar eftir hinu gljáandi gulli, og það fékk hósta af reykelsislyktinni en sneri sér undan er það sá mirruna, og kyssti tárin af augum móður sinn- ar Og hinir þrír heilögu konungar stóðu upp og kvöddu, eins og menn, sem finnst að þeim hafi ekki verið tekið að verðleikum. En þegar höfuð og háls síð- asta úlfaldans var horfið bak við hólinn — þegar síðasti kliðurinn i bjöllunum á reiðtygjum þeirra var þagnaður, á leiðinni til Jerú- salem — þá kom fjórði vitring- urinn. Hann átti heima í landinu við hinn persneska flóa — þaðan hafði hann með sér þrjár dýr- mætar perlur — þær áttu að vera gjöf til konungsins, sem fæddur var í Vesturlöndum, og sem átti stjörnuna, sem hann hafði séð —

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.