Fálkinn


Fálkinn - 16.12.1949, Blaðsíða 19

Fálkinn - 16.12.1949, Blaðsíða 19
JÓLABLAÐ FALKANS 1949 £ ££ £« 3HE S“S 5« » 3Ht 5« « 3HE 3HE 3»E 5« 5« 3Sr* 15 ust ekki sjá þau. Til þess að vekja athygli gerði Doré málverkin sín stærri og stærri, margra metra há með ógrynnum af myndum í eðlilegri stærð. En það stoðaði ekkert. Þegar hann hafði tekið þátt i sýningunni í átján ár var loksins minnst á liann i „Gazette des Beaux Arts“ og þar fékk hann að vita það, sem hann hafði grunað gagnrýnendurna um að álíta: að hann væri ekki neinn málari. Gustave Doré teiknaði nálægt 10 þúsund myndir og hafði um 7 mill- jón franka upp úr þeim. Hann var með ríkustu listamönnum sinnar tíðar í Frakklandi. Skoðun hans á lífinu og viðfangsefnum samtíðarinnar var jafnan fremur barnaleg. Hann hélt áfram að vera undrabarn, bráðþroska en aldrei fullþroska, hungraður eftir lífi en aldrei fyllilega lifandi. Móðir hans virðist hafa haft mikil áhrif á hann -—liún fór alltaf með hann eins og hann væri barn. Eigi verður séð að hann hafði orðið fyrir áhrifum af öðru kvenfólki en móður sinni og fóstru, hann var jafnan dálætisbarn — eins eftir að hann var orðinn pip- arsveinn. Hann var 49 ára þegar móð- ir hans dó og sjálfur lifði liann aðeins fáum árum lengur. Húsið við Saint Dominique varð miðdepill tilveru hans, — á sumrum fór hann með einhverjum kunningj- um sínum til Spánar, Sviss eða Ítalíu til að fá hugmyndir að teikningnm og umhverfi. En sjaldan gerði hann teikningar í þessum ferðum, hann virtist geta geymt allt sem hann sá í hugskotinu og teiknað það eftirá. Þegar hann kom til Parisar undir haustið skipti hann sér milli starfsins og skemmtananna og ákafinn var sá sami við hvorttveggja. Hann var jafn fimur í skrokknum og gekk jafn vel á höndunum og hann hafði gert í barnæsku. Hann hafði líka gaman af söng og liljóðfæraslætti, lék sjálf- Skógarmynd úr ævintýrum La Fontaine ur á fiðlu og söng þjóðlög frá Elsas. í fimmtudagssamkvæmum vinar síns Theophile Gautiers skemmti hann sér jöfnum liöndum við að leika barna- leikrit með unglingunum, herma eftir eimreiðum og dansa eindansa. Og sunnudagssamkvæmi lians í Saint Dominique voru beinlínis eins og kjötkveðjuærsl í föstuinngangi. Þegar póstmálastjórinn franski var gestkom- andi hjá honum hafði hann breytt borðstofunni í pósthús, pentudúkarn- ir voru brotnir saman eins og um- slög og kökurnar eftirlikingar af símskeytaeyðublöðum. Eitt sinn er frægur málari var gestur hans var gestunum skipað þannig niður í hópa, að það minnti á eitt af málverkum gestsins. í þessum samkvæmum var veitt vel og mikið etið og drukkið. Þar var hljóðfærasláttur og þar voru sýnd „lifandi tabieau.“ Þar kom frægt sam- tiðarfólk svo sem Rossini, Kristina Nilsson, Adelina Patti, Franz Liszt, Alexander Dumas eldri og yngri, Gon- courtbræður, Victor Hugo og fleiri. En það var tvennt sem aidrei mátti tala um i samkvæmum Doré: stjórn- mál og málverkalist. Því að þegar á þetta var minnst fannst húsbóndan- um að liann hefði lent á skakkri öld. Það eru til þrjár myndir af Doré, sem vert er að minnast á. Sú fyrsta er ljósmynd, tekin er hann var nær 27 ára, af einum samverkamanni hans lijá Pliilipon, teiknaranum og ljós- myndaranum Nadar. Þar er hann eins og barn með laglegt yfirskegg og dreymandi augnaráð, trefillinn laus úti á öxlum að þeirra tima „bohéme“ hætti, og andlitið hvítt eins og gips undir svörtu hárinu. Önnur myndin er skopmynd, gerð tiu árum siðar af André Gill, í blaðinu Eclipse. Hún er dálítið illgirnisleg og sýnir skoðun samtiðarinnar á hinum framgjarna, rika listamanni: feit, tröllvaxin brúða Það mætti þykja líklegt að ungur listamaður af því tagi sem Doré var liefði heilsað febrúarbyltingunni 1848 með eldmóði og hyllt komu II. lýð- veldisins, eins og t. d. Daumier gerði. En það var öðru nær. í augum Dorés var byltingin ekki annað en skríls- uppþot sem vakti megnasta viðbjóð lijá lionum. Hann sagoi að einu hlunn- indin scm hann hefði af byitingum væru þau, að þær gæfi honum tækifæri til að kynna sér hvernig múgur liti út — og það gat hann notað sér í hópmyndum sínum. Þegar Gustave var seytján ára varð móðir hans ekkja, og fluttist árið eftir til Parísar og leigði sér þar hús i Rue Saint-Dominique. Með henni komu systkini Dorés og gömul fóstra hans. Þannig varð Gustave framfærandi aðeins átján ára gamall, og varð því að afla fjár. Honum var þetta auð- leikið, jafn mikil og vinnugleði lians og vínnuþrek var, en það er ekki ó- liklegt að list hans hefti orðið sam- ræmdari og fágaðri, ef hann hefði lif- að við önnur kjör. Hann hafði jafnan talið starf sitt hjá Philipon — en það var í þvi falið að teikna myndir úr Parísarlífinu og einfaldar skopmyndir — sem hreina „blaðamennsku". Eftir að þáttaskipti urðu í ævi hans eftir að hann hafði sigrað með teikningum sínum í Gar- gantua og Pantagruel 1854, hætti liann líka að vinna lijá sinum fyrsta vinnu- veitanda, er liafði komið lionum á framfæri og „uppgötvað“ hann. Á- form hans var að gera myndaflokk úr öllum hinum klassisku bókmenntum Evrópu. Og nú komu þau verk, sem urðu hyrningarsteinarnir að lífsstarfi hans: Skemmtisögur Balzacs 1855, Inferno Dantes og Ævintýri Peraults 1861, Lygasögur Miinchausens 1862, Don Quixote 1863, Biblían 1866, Sögur La Fontaine og Paradísarmissir Mil- tons 1867. Þessir stórflokkar mynda i ýms meistaraverk bókmenntanna urðu til á aðeins tólf árum. En jafnframt teiknaði hann kynstrin öll af léttara taginu — hann var hræddur um að einhverjum keppinaut kynni að skjóta upp þar og bola honum frá, og tók því allt að sér sem hann komst yfir, teikn- ingar i rómana og fréttateikningar (hann teiknaði m a. fjölda mynda úr Krím-stríðinu), sem hann gerði heima í vinnustofu sinni eftir ljósmyndum. Hann hafði ótrúlega mikið vinnuþrek. Einn af félögum hans liefir gefið brot úr lýsingu á honum, sem hér skal vitnað í: „Eg hefi séð Gustave Doré vinna sér inn tiu þúsund franka á einni morgunstund. Hann hafði 15 til 20 teikniblöð fyrir framan sig og gekk á milli þeirra og teiknaði til skiptis, svo fljótt og örugglega að það var ótrúlegt. Hann fullgerði sjaldan teikn- ingu í einni lotu, heldur hljóp í marg- ar á víxl. Einn morguninn gerði hann eigi færri en 21 ágæta teikningu og lauk við þá síðustu þegar klukkan var að slá tólf. Svo henti hann penslinum frá sér hlæjandi, kastaði höfðinu aft- ur með sinum sérstaka hætti, svo að hárið lagðist í öldur, og sagði við mig í gamni: — Þetta var nú eklci sem afleitast morgunverk. Hér er nóg af pappír handa lieilli fjölskyldu til að lifa á i heilt ár. Finnst þér ég hafi unnið til að fá mér vel útitátinn mat- arbita? Svei mér ef ég er ekki soltinn. Eigum við að fara?“ Doré fékkst við tréskurðarteikning- arnar á morgnana en síðdegis helg- aði hann sig því, sem hann unni mest: málverkinu. Frá þvi að hann var 17 ára hafði hann jafnan sent mál- verk á árssýninguna, en hann seldi aidrei neitt, og gagnrýnendurnir virt- Frá, höfninni í London
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.