Fálkinn - 16.12.1949, Page 31
JÖLABLAÐ FÁLKANS 1949 g
Stjörnustjakinn.
Þennan stjaka getið þið búið tii
fyrir tvö eða þrjú kerti, eftir þvi
sem þið viljið. Undir botnplötuna
eru settir tveir klossar, sem fætur,
og svo færð þú þér skaft, jafn gilt
og kertin, sem stjakinn er ætiaður
fyrir. Göt eru boruð á botnplötuna,
mátulega stór fyrir skaftendann. Svo
eru það stjörnurnar. Þær eru sag-
aðar út úr 1 cm. þykkum krossviði
og borað gat á þær, hæfilegt fyrir
skaftið. Síðan eru sagaðir bútar af
skaftinu, mismunandi langir, fyrir
stjaka með þremur kertum er !iæfi-
legt að tveir bútarnir séu 4 cm.
langir og einn (5 cm. Bútarnir c u
svo límdir í götin á botnfjölinni,
og á efri bútendann eru stjörnurn-
ar festar, þannig að búturinn gangi
aðeins upp í mitt gatið og liola sé
fyrir kertið. Bútarnir eiga að vera
með silfurbronslit. Og svo er botn-
fjölin skreytt með lyngi.
Þrír jólaenglar.
Þeir eru teiknaðir með kalkerpappir
á pjötlu, og síðan er jaðarinn faldað-
ur. Líka má klippa þá út hvern og
einn og sauma þá t. d. á pentudúk,
smekk eða nota þá sem bókamerki.
Með því að teikna myndirnar hvað
eftir annað á langa ræmu má búa
til borða tii að skreyta stofuna með.
Pyngja úr skinnpjötlum.
Úr skinnpjötlum, sem þið getið
klippt úr gömlum hönskum, hand-
töskum og öðru þessháttar, má búa
til allra iaglegustu buddu fyrir smá-
peninga, perlur og hnappa. Þið þurf-
ið niu pjötlur og eina fallega snúru,
og lielst þurfið þið að hafa talsvert
stóra nál og grófan þráð til að sauma
með. Fyrst klippið þið ykkur snið úr
pappír, eftir teikningunni sem þið
sjáið hérna, þið sjáið stærðina á senti-
metramálinu, sem er á stykkjunum.
Svo klippið þið 4 liliðarstykki af
hvorri gerð og einn botn. Áður en þið
byrjið að sauma gerið þið tvö göt á
hvert stykki að ofan, — helst með
gatatöng. Fyrst eru svo öll hliðar-
stykkin saumuð saman, stykkin II og
III á vixl. Ranghverfan er látin snúa
saman á jöðrunum og svo sáumað með
þéttum nálsporum að utanverðu. Þeg-
ar öll hliðarstykkin eru komin saman,
er botninn saumaður í. Og loks er
snúran þrædd gegnum götin og perl-
ur festar á báða enda hennar, svo að
hún geti ekki þræðst úr.
Útstoppað dýr.
Efnið í þetta er pjatla með sterkum
litum og fallegu mynstri, og ull eða
hey til að stoppa með.
Það eru ekki nein tiltekin mál á
teikningunni, svo að þið getið sjálf
ráðið stærðinni á dýrinu. Teikningin
er krosstrikuð og þessvegna getið þið
sniðið pjötiuna í hvaða stærð sem
þið viljið, en fyrst skuluð þið búa til
pappírssnið og ldippa pjötiuna eftir
þeim. Hliðarstykkin tvö eru klippt
samtímis og pjatlan lögð tvöföld á
meðan, með réttliverfuna inn. Tung-
una (2), augun (3), eyrun (4) og
rófuna (5) ræð ég ykkur til að hafa
úr einlitu efni. Ræman, sem hliðar-
stykkin eru fest saman með, á að
vera 3—4 sinnum breiðari cn rófan.
Á mynd II sjáið þið hvernig þes'si
ræma er saumuð við hliðarstykkin.
Við afturlappirnar er skilið eftir op,
svo að hægt sé að snúa „pokanum“
við þegar búið er að sauma.
Á mynd III er sýnt hvernig dýrið
er stoppað. Það er áriðandi að stoppið
fylli vel út í öll hornin. Og svo er
opið að aftanverðu saumað saman.
Loks eru eru, augu, tunga og rófa fest
á. Takið eftir að rófan er tvöföld.
Og svo er sú jólagjöf tilbúin.