Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1958, Blaðsíða 29

Fálkinn - 12.12.1958, Blaðsíða 29
JÓLABLAÐ FÁLKANS 1958 ^#^#^*^*^*^*^*^*^*^*^*^*^#^* 23 Iíarlander tók utan um konuna sína ... að þetta átti að koma eins og þjófur á nóttu. Á eftir fór frú Karlander inn í veit- ingahús og náði sér i horð i dimm- asta horninu. Þótt hún iiefði verið að undirskrifa samning um hjónaskilnað hefði lhin ekki verið órórri en hún var nú, út af þessu skrefi, sem hún hafði stigið. Ilún dró ungmeyjarspari- sjóðsbókina sína upp úr töskunni eins og þjófur og starði á talnadálk- inn: jú, þarna liöfðu verið teknar út G50 krónurl Og þœr voru borgaðar. Og afganginn þóttist liún viss um að geta staðið i skilum með, ef hún spar- aði matarpeningana, og eftir 26 mán- uði vœri píanettan þeirra löglcg eign, frjáls og kvittuð. Daginn eftir færði hann henni ó- vænt öryggi. Hve mikla unun það mundi veita að hljóðfæri væri í stof- unni. Nú gætu börnin lært að lcika á hljóðfæri i tæka tíð. Og Hans mundi njóta að fullu þeirrar lífsgleði sem í honurn bjó, en annars muitdi moltna úr honum og verða að reyk og ösku, auminginn, sem hvorki hafði álniga á stjórnmálum, dansi eða spila- mennsku! Það var synd og skömm að hann skyldi ekki í öll þessi lijúskapar- ár hafa haft tækifæri til að iðka tón- listina; nú fyrst mundi hans innri maður.fá að njóta sin ... En um sama lcyti varð frú Karland- er líka skelkuð. Það var fyrir einbera tilviljun: Birna, sú elsta, kom eitt kvöldið inn með dagblaðið fyrir aftan bak, og spurði upp úr þurru: „Pabbi, hvers óskar þú þér í jóla- gjöf?“ „Bíls, handa mér einum, og svo aftanihnýting handa ykkur öllum hinum.“ „Æ, nei, pabbi, þú verður að svara í alvöru.“ „Vrikilega failcga pennaþurrku, því að sjálfblekungurinn minn er svo slæmur með að klessa. Eða stóra eld- húsöskju með eldspýtum, því að littu stokkarnir eru alltaf tómir.“ „Hvað viltu að bún mamma gfefi þér?“ spurði Knútur, sem lielst vildi aldrei tala um annað en dýrar gjafir. „Mamma?“ sagði Karlander .. . ég veit hvað hún mamma gefur mér. Hún ætlar að gefa mér píanettu." Frú Karlander lirökk við, en Knútur liélt áfram: „Pjane ... hvað segirðu?" spurði hann. „Hvers vegna beldurðu það?“ sagði Birna. „Hún mamma þin liefir unnið i happdrættinu," sagði faðirinn. „Er það satt, Mamma?“ spurði Birna hátíðlega. „Bull!“ sagði frú Karlander og grúfði sig yfir saumakörfuna. „Mamma þarf ekki einu sinni að eiga miða i happdrættinu til að vinna,“ sagði Karlander. Þetta er óhugsandi, hugsaði frú Karlander um kvöldið, þegar þau höfðu tekið á sig náðir . . . liann getur ekki vitað neitt um þetta. Hann — getur — ekki — vitað . . . neitt . . . En Karlander var ekki þannig gerð- ur, að hann skammaðist sín fyrir að gera að gamni sínu. Svo mikið er vist, að dagana fram til jóla barst píanett- an hvað eftir annað í tal. „Þetta er einstaklega fallega liugsað af þér, gæskan min,“ sagði hann og tók utan um konuna sína ... „en i rauninni höfum við alls ekki efni á því.“ „Snertu mig ekki!“ sagði hún og bandaði honum frá sér ... „ég er orðin leið á þessu stagli. Þú veist ofur- vel, að ég hefði gaman af að gefa þér eitthvað dýrt, svo að það cr illa gert af þér að vera að gantast að mér jiótt ég geli það ekki.“ En karlmennirnir eru harðsvírað fólk, og beim er oft ljúfara að segja lélega fyndni en hlifa konunni sinni við ertni. Ivarlander liélt áfram upp- teknum liætti. Og ef frú Karlander hefði ekki verið búin að borga þessar 650 krónur mundi hún liafa farið til hljóðfærasmiðsins og afbeðið pianett- una, sem nú var í þann veginn að spilla allri jólagleðinni fyrir lienni. Þvi að — ef til vill höfðu þau alls ckki efni á þessu, ef að var gáð. Hún varð daufari í dálkinn með liverjum deginum, og steinhætt að hlakka til gjafarinnar góðu. En Karlander hélt áfram. „Nei,“ sagði hann ísmeygilega við börnin, „i ár verður ekki um aðrar gjafir að ræða en pianettuna, sem hún mamma ykkar ætlar að gefa mér. Og svo verðum við lildega að setja grind- verk kringum liana, svo að þið eyði- leggið hana ekki. Hvað haldið þið að kaupmaðurinn segi, sem við skuldum stórfé, þegar hann sér að hljóðfærið er flutt inn til okkar?“ „Ætlarðu þá ekki að spila á það?“ sagði Birna. „Jú, ég eyði öllum mínum frístund- um í að gera hávaða, svo að enginn geti sofið á nóttinni. „Þá skaltu ekki gefa honum það, mamnia," sagði Knútur. „Þegiðu,“ sagði frú Karlander. „Hann er bara að erta okkur.“ Hún spurði sjálfa sig ótal sinnum, hvort hann væri að þessu út i bláinn, eða hvort hann hefði snuðrað ]ietta m.eð einhverju óskiljanlegu móti. „Það er hvergi pláss fyrir ótæt- ið,“ sagði Karlander ... „Það fer liklega svo að við verðum að setja það upp á endann þarna milli glugg- anna.“ Nei, liann gat ekki látið ógert að minnast á píanettuna. Því að ef satt skal segja hafði liann með mestu leynd keypt hljóðfæri hjá Cliristian- sen ... borgað helming út i hönd, hinn helmingurinn afborgun. Hann hafði ekki getað gleymt þessari hug- mynd síðan í sumar, þegar henni skaut upp í honum á leiðinni úr gleðskapn- um og þau gengu innan um syngjandi lævirkja og iðandi kornakra og hún liallaði höfðinu að öxlinni á lionum. Söng lnin nokkurn tíma núna, eins og i byrjun búskaparins? Aldrei! Væri ekki hvatning fyrir hann að hafa hljóðfærið í stofunni, þegar börnin voru í skólanum allan fyrripartinn? Víst skyldi lnin fá piancttu. Það væri skrítið ef hann væri ekki maður til að borga liljóðfærið. Og þegar hann fengi jólagjöf húsbóndans i desember, fékk liann eiginlega hljóðfærið ókeyp- is. Hann minntist ekkert á þá gjöf heima. Svo kom aðfangadagskvöldið. Og það leið að svo stöddu eftir áætlun. Þau voru að útbýta jólagjöfunum þeg- ar dyrabjallan liringdi. Birna þaut út. Og inn komu tveir menn og báru á milli sin pianettu i eins konar axla- böndum. Þeir settu gripinn niður í stofunni milli gangdyranna og borð- stofudyranna. Svo fóru þeir. Einlivern veginn var því líkast og gestur væri kominn í stofuna, mjög fínn gestur. Jólagjafir barnanna, sem búið var að taka utan af urðu svo ó- verulegar. Frú Karlander fékk hjart- slátt ... liugsum okkur, ef Iians fynd- ist þetta nú vera óforsvaranleg eyðsla! Hann settist strax við liljóðfærið og fór að glamra „Hátt uppi á grein sat kráka ...“ Iiljóðfærið fékk það sem eftir var af kvöldinu, en ekki börnin. Karlander var límdur við hljóðfærið. Þegar börn- in áttu að fara að hátta rétti liann aðeins fram kinnina til að bjóða góða nótt. Þegar frú Iíarlander hafði tekið til í stofunni settist liún í hornið og fór að hlusta á hljóðfærasláttinn. Kar- lander hafði náð i allar gömlu nótna- bækurnar sínar og spilaði og spilaði. Stundum var hann að hugsa til þess, að konan hans hefði ekki þakkað fyr- ir gjöfina ennþá, en það var stundum svona, þegar hún fékk eitthvað, sem henni þótli verulega vænt um. Svo gleymdi hann lienni aftur því að hann var að liugsa um Beethoven. Klukkan sló tólf áður en hann leit við. Án þess að liann tælci eftir liafði liún læðst út og farið að hátta. Og hún svaf þegar hann kom inn. Hálf von- svikinn.en þó hrærður háttaði liann sig og skreið i bólið. Og sofnaði með bros á vörunum. Jólamorgun! Frú Karlander liafði ekki sofnað fyr en seint. Hún liafði legið hálfsnöktandi undir yfirsæng- inni og verið að hugsa um, að Hans hefði verið svo hugfanginn af gjöfinni að hann hefði steingleymt að þakka fyrir, en að liinu leytinu var auðséð live vænt honum þótti um gjöfina. Hún lét sem liún svæfi þegar liann kom inn. Nú var hún vöknuð, þreytt og angurvær og lilustaði á kyrrðina. Þetta þrusk þýddi vafalaust að Birna væri komin fram í stofu og farin að leika sér að gjöfunum sínum. Knútur mundi ekki bæra á sér fyrr en Iiann væri orðinn svangur. Frú Karlander lá kyr og leit við og við á fallega Framhald á bls. 43. „Hvað gafstu henni mömmu eiginlega í jólagjiif, pabbi?“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.