Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1958, Síða 34

Fálkinn - 12.12.1958, Síða 34
28 JÓLABLAÐ FÁLKANS 1958 JÓLASKREYTING. Jólaskreytingar eru dýrar, þegar .þær eru keyptar í búSum, en sem bet- ur fer geta þeir, sem tíma hafa til þess, búið þær til sjálfir. Klippið út hringlaga pappaspjald, sem er ó stærð við undirskól eða disk. Setjið síðan hnoðaða ieirkúlu á spjaldið eins og myndin sýnir (1). Þegar því er lokið, stingið þið grenigreinum inn í ieirinn eins og sést á mynd 2, og haldið þvi áfram liring eftir hring þar til hvorki sést í pappaspjaldið né leirinn. Síðan er hoia fyrir kerti sett efst i miðja leirkúluna og grein- arnar skreyttar með marglitum kúl- um eða öðru, sem tiltækilegt er. HEIMATILBÚIN JÓLAKORT. Flestir hafa mjög gaman af að fá heimatilbúin jóiakort, sérstaklega frá börnum, og það er í rauninni ckki mikill vandi að búa til slík kort. Fáið ykkur pappirsservíettu, helst sem skrautlegasta. Úr henni má klippa ýmsar myndir eins og sést á teikn- ingunni, sem hér fylgir með. Þær má síðan líma á rautt eða blátt spjald. Jólasveinninn er aftur á móti klippt- ur úr hvítu blaði og sömuleiðis stjörnurnar á himninum í kringum hann. Andlit jólasveinsins verður að teikna með svörtum lit. JÓLASVEINNINN, SEM GETUR KLIFRAÐ. Með þvi að nota kalkipappír náið þið liinum einstöku hlutum jóla- sveinsins niður á þykkan pappa og klippið þá síðan út. Siðan eru hlut- arnir festir saman á liðamótunum, A við B, G við D og E við F. Þá klippið þið út papparæmu eins og sýnd er á myndinni nema aðeins helmingi lengri (X'—x er miðjan). Svo klippið þið rifu á fellingarnar til endanna (Y) og festið jólasveininn þar við með prjóni eins og litla myndin sýn- ir. Leikfangið er tilbúið. ÞEKKIRÐU ÞENNAN LEIK. Næsta skipti sem þip kunningjarnir liittist skuluð þið „stíga yfir klett- ana“. Tveir, sem ekki kunna leik- inn, cru látnir fara út fyrir dyr. En 5—G tómar flöskur eða þá bækur eru settar í röð á gólfið, upp á endann. Svo er annar þeirra sem úti stóð látinn koma inn. Honum eru sýndir „klettarnir" eða flöskugirðingin, og sagt að hann eigi að ganga um ])vert gólf með hundið fyrir augun án þess að fella nokkra flösku eða bók. — En eftir að bundið hefir verið fyrir augun á honum eru allar torfærurnar teknar burt. Og það er góð skemmtun að sjá blindingjann reyna að varast að fella torfærurnar, sem ekki eru til. TÖFRABRAGÐ. Töframaðurinn heldur opinni bók í báðum höndum (1). Áður hefir hann lagt sjö tvíeyringa á borðið, og biður einn áliorfandann að telja þá og láta þá detta niður á bókina, einn og einn í einu. Svo á áhorfandinn að rétta fram hendurnar og töframaðurinn hellir tvíeyringunum af bókinni í lóf- ana á honum (2). „Krepptu nú hnef- ana um peningana sem þú hefir,“ segir töframaðurinn, „og taktu nú eftir: Nú tek ég ósýnilegan tvíeyring og kasta honum gegnum hendurnar á þér til hinna tvieyringanna.“ Og svo þykist hann kasta og spyr: „Fannstu nokkuð?“ og hinn neitar því. Svo fleygir töframaðurinn tveimur „ósýni- legum tvieyringum" i viðbót. „Opnaðu nú lófana og teldu tvíeyr- ingana,“ segir liann. Og þá kemur á daginn að tvieyringarnir eru orðnir tíu. Galdurinn er í þvi fólginn að töfra- maðurinn hefir smeygt 3 tvieyringum undir kjölinn á bókinni, áður en liann byrjaði (3). Þeir renna ofan í lófa áhorfandans með hinum peningunum, án þess að hann taki nokkuð eftir því. Þessi leikur er góður þar sem margir eru saman komnir. Sá sem stýrir leiknum skrifar ýms nöfn á miða t. d. Napoleon, Gregory Peck, Ingrid Bergman, Margaret Rose, Brynjólfur Jóhannesson, Benedikt Waage, Gunnþórunn Ilalldórsdóttir, Erlendur Pétursson eða önnur fræg nöfn, sem honum dettur i hug, og svo eru miðarnir festir á bakið á þátttak- endunum, en sjálfir mega þeir ekki vita hvaða nafn þeir hafa fengið. Þeir eiga að spyrjast fyrir þangað til þeir finna það, en spurningum þeirra má aðeins svara með „já“ eða „nei“. „Er ég persóna i leikriti?“ má mað- ur t. d. spyrja. En hins vegar ekki „í hvaða leikriti er ég persóna?" DIMMULEIKUR. Næsta skipti sem þú færð gesti að kvöldi skaltu reyna þennan leik: Leggðu tíu venjulega smáliluti á bakka, t. d. blýant, slcæri, tvinnakefli, skeið o. s. frv. Þú verður að hafa al- veg dimmt í stofunni, og nú lætur þú gestina, hvern eftir annan, þukla á þvi sem er á bakkanum. Þeir mega ekki segja hvað það er, sem þeir liafa þreifað á. Svo er bakkinn borinn út áður en ljósið er kveikt, og nú eiga gestirnir að skrifa liver á sinn miða, nöfnin á því sem var á bakkanum. Sá sem man flest á að fá einliver verð- laun. ÞEKKIÐ ÞIÐ „CONNECTO“? Connecto er leikur, sem gott cr að kunna þegar tveir eru saman og hafa ekkert fyrir stafni. Ilvor þátttakandi tekur sér blað og blýant og skrifar á það tölurnar 1 lil 30, einlivern veg- inn i hrærigraut, og setur hring utan um hverja tölu. Svo skiptast þátttak- endurnir á blöðin og keppast svo um livor fljótari verður að draga strik á milli talnanna i réttri röð — frá 1 til 2, 2 til 3 og svo framvegis. Sá sem verður fljótari segir „Connecto" þeg- ar hann er kominn á 30. En vitanlega verður að endurskoða hvort liann hefir alls staðar farið rétta leið. Ef hann liefir ekki dregið strikin um töl- urnar i réttri röð, hefir hann tapað.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.