Fálkinn - 12.12.1958, Side 43
JÓLABLAÐ FÁLKANS 1958 37
Stjörnuborg.
En svo dó vinur hans og velunnari,
Friðirk II. árið 1588, og smám saman
fækkaði valdamönnum þeim, sem
Tycho Brahe átti að í ríkisráðinu. Ár-
ið 1596 varð Kristján konungur IV.
futlveðja, en um sama leyti náðu ó-
vinir Tycho Brahes«völdum við hirð-
ina. En ekkert var stjörnumeistaran-
um níikla fjær en að skríða fyrir þeim.
Og fremur kæruiaus var hann um að
rækja skyldur þær, sem á hönum
hvíldu sem iénsherra. Stundum liðu
mörg ár án þess að hann skipaðist
við hótunarbréfum stjórnarinnar.
Siglingamenn voru sí og æ að kvarta
undan hvernig Tyclio Brahe gætti vit-
ans á Kullen, en Friðrik II. hafði
ávallt sýnt vísindamanninum lang-
lundargeð. En það skipti um er Frið-
rik dó. Og Tycho Brahe var líka sýnd
óvirðing vegna þess að liann liafði
kvænst konu af borgaralegum ættum.
Bændurnir á Hveðn sökuðu hann um
að hann kúgaði þá, og ennfremur báru
þeir á hann að liann væri galdramað-
ur. Og prófessorarnir í Kaupmanna-
liöfn, sem litu keppinaut sinn öfund-
araugum sögðu að stjörnuturninn á
Ilveðn væri „skaðlegt og allt of dýrt
glingur“. Það var um þessa menn, sem
Brahe sagði einhvern tíma: „Plures
sapiunt paplato quam cerebro“ —
fleiri eru vitrir í kjaftinum en koll-
inum.
Tycho Brahe taidi það undir virð-
ingu sinni að fara á fund konungsins
sjálfs til þess að fá leiðréttingu mála
sinna, — það gat skilist svo sem hann
væri að biðjast vægðar. Og afleiðingin
varð sú, að smám saman var farið
að svifta hann ýmsum fríðindum. En
þá kvaddi meistarinn garðana í Gröf,
og sumarið 1597 fór hann með konu
sína um borð i skip og sigldi til
Bostock. Hann fékk brátt stöðu sem
hirðstjörnumeistari Rudolfs II. keis-
ara i Praha og var vel launaður. En
því miður var ríkissjóðurinn oft tóm-
ur hjá Rudolf, því að hann var ósinkur
á fé til lista og vísinda, og þó eyddi
liann miklu meiru til gullgerðartil-
rauna.
í Praha söfnuðust á ný nemendur
Tycho Brahe. Kunnastur þeirra var
Johannes Kepler, frábær stærðfræð-
ingur, sem var siðar falið að vinna
úr athugunum meistarans. Og úr þeim
gögnum gat hann eftir margra ára
starf lagt fram nýjar og öruggar sann-
anir fyrir því að heimsmynd Koper-
nikusar væri rétt, og gert frumdrætt-
ina að þeirri heimsmynd. sem Galilei
og Newton fullkomnuðu síðar. Þetta
verk varð merkileg sönnun fyrir þvi
hve nákvæmar athuganir Bralies
höfðu verið — j)rátt fyrir að kíkirinn
var ekki til um hans daga — hann
kom ekki til sögunnar fyrr en sjö ár-
um eftir að Tycho Brahe dó. En Bralie
hafði séð að hægt er að ná fuRkomn-
um árangri með ófullkomnum áhöld-
um, ef maður þekkir skekkjurnar og
tekur tillit til þeirra í útreikningun-
um ... Af ýmsum ástæðum má kalla
Tycho Brahe „föður stjarnfræðilegra
athugana og stofnanda hagnýtrar
stjarnfræði". Kepler dáði lika mjög
„liina ótrúlegu nákvæmni meistarans"
og taldi „mesta heiður sinn að for-
sjón guðs liefði látið falla sér i skaut
að vinna úr athugunum hans“.
Eitt dæmi um nákvæmni Tycho
Bralies er ákvörðun hans á lengd árs-
ins. Honum taldist ])að vera 365 sól-
arhringar, 5 tímar, 48 minútur og 45
sekúndur. Það var aðeins 2 sekúnd-
um of lítið!
Tyclio Brahe varð einnig fyrstur til
að gera sér rétta hugmynd um hala-
stjörnurnar, j)essi undarlegu, reikandi
himintungl, sem þóttu svo dularfull
fyrr á timum og svo mikil hjátrú
spannst út af. Fólk taldi þær vera
glóandi refsivönd, sem guð hefði þeytt
út í himingeyminn i reiði sinni yfir
syndum mannanna. Lærðir menn þótt-
nst sanna að spilling mannkynsins
ætti sök á þessum himintunglum,
mannvonskan gufaði upp úr jörðinni
og ])egar kom í háloftin kveikti reiði
guðs í gufunni, svo að syndararnir
gætu sjálfir séð hana. Og síðar meir
féll eitruð aska ofan i andrúmsloftið
og olli fárviðrum, óáran, pest og
striði.
Tycho Brahe starfaði ckki lengi í
Praha. Hann dó árið 1561, 57 ára gam-
all. í dauðastriðinu hafði hann hróp-
að hvað eftir annað: „Ó, að ekki verði
talið, að ég hafi til ónýtis lifað!“ Hann
var jarðaður með mikilli viðhöfn í
Teynkirkjunni í Praha. Þegar 300 ár
voru liðin frá dauða hans var kistan
opnuð og líkið rannsakað. Ilauskúpan
hafði hrotnað nokkuð, er grjót úr
hvelfingunni liafði hrunið á hana, en
nefbeinið var óbrotið, og liægt að sjá
að höggið hafði verið í það. Lausi nef-
broddurinn fannst hvergi, en nefbein-
ið sjálft hafði litast af koparsöltum.
Langt, margsnúið yfirskeggið hafði
staðist tímans tönn, og sömuleiðis
skartbúningur lians, úr flaueli og
silki. í ómerkilegri kistu við hlið
steinkistunnar var lik konu hans, sem
dó í fátækt i Sclilesíu þremur árum
síðar en Tycho Brahe.
En á Hveðn voru hin merku mann-
virki lians látin grotna niður. Uraniu-
borg var rifin og steinninn notaður
i önnur hús. En árin 1823—’24 var
mokað ofan af rústunum og nú konui
Uraníuborg og Stjörnuborg fram úr
gröf gleymskunnar. Ýmislegt lauslegt
fannst við uppgröftinn og var það tínt
saman og er nú á ofurlitlu safni, þar
sem einnig má sjá myndir af Tycho
Bralie og af áhöldum hans.
1905
ÁVAXTADRYKKIR:
ANANAS
APPELSlN
GRAPE FRUIT
GEISLI
LEMON SQUASH
JÖLADRYKKUR
SANITAS
1958
Eftirtaldar gæðavörur eru viðurkenndar
ÁVAXTASULTA OG ÁVAXTAHLAUP:
ANANAS-
JARÐARBERJA-
HINDBERJA-
BL. ÁVAXTA-
RIBSBERJA-
APPELSlNU
s u I t a
marme-
lade
SAFTIR:
PÓLÓ
SÓDAVATN
APPELSlNU-
KIRSUBERJA-
BL. ÁVAXTA-
s a f t
Úr Sanitas-sultu íást bestu og ódýrustu ávaxtagrautarnir.