Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1958, Blaðsíða 52

Fálkinn - 12.12.1958, Blaðsíða 52
46 JÓLABLAÐ FÁLKANS 1958 SOCONY-VACUUM Charles Lindbergh var sá fyrsti, sem flaug í einum áfanga yfir Atlantshafið. Hann var öruggur, vélin var smurð með Mobilölíu. Jólaenðillinii Framhald af bls. 9. komst heilu og höldnu gegnum ísalög, snjókomu og þrátt fyrir dimmviðri og lenti á réttum tíma á ísaðan flugvöllinn. Þeir hugrökku, sem þorað höfðu í þessa ferð, náðu heim fyr- ir jól. Litli jólaengillinn flýtti sér til ákvörðunarstaðar síns, sem var lítið fallegt hús, ekki ríkmannlegt, heldur þvert á móti. En þó var það einhvern veginn hlýlegra en auðsmannsheimilið sem hann kom frá, því hér var það kona sem hafði fágað og prýtt með vinnu- sömum höndum og gætt það heimilishlýju. Stofan var aðeins ein og þar stóð borð með jólatré, sem þrjú hálfstálpuð börn voru að ljúka við að skreyta. Frammi í litla snotra eldhúsinu var mamma þeirra önnum kafinn við matar- gerð. Hún var rjóð í andliti af hitanum frá eldavélinni og keppt- ist við. Svo hún tók ekki eftir jólaenglinum. „En hvað þú átt annríkt," sagði hann. ,,Ah, já,“ svaraði hún án þess að líta beinlínis á spyrjandann. ,,En þegar maður hefir nú ekki ráð á að kaupa allt það sem til- heyrir jólunum, þá reynir mað- ur að gera það besta úr því sem ég gat keypt svo að börnin taki ekki eftir neinu. Þau þurfa helst að eignast svo góð jól að þau fari ekki að hugsa um hve þau gætu hafa verið miklu betri. Ég vil gjarnan láta það takast sem best, en það er stundum dálítið erfitt að þurfa að sjá fyrir öllu ein. — Við og við er ég mjög þreytt. — Ég er einnig talsvert einmana. Börnin eru indæl og hjálpa mér eftir bestu getu — en — en mér finnst stundum að það væri dá- samlegt að við værum tvö með heimilið." „Veistu nú hvað,“ sagði jóla- engillinn. „1 borg einni á Sjálandi situr maður, sem þér var einu sinni mjög hlýtt til. Hann þarfn- ast konu og barna. Það gæti hentað vel fyrir þig og börnin — og þið gætuð með því gert mikið fyrir hann. öll fimm yrðuð þið glöð og hamingjusöm.“ „Ég veit vel hvern þú meinar. Hann skrifaði mér fyrir ári síðan og bað okkur að koma, en ég vissi ekki hvað mér bæri að gera. Það er svo langt um liðið síðan — og við höfum ef til vill bæði breytst mikið — og ef til vill væri maðurinn minn mótfallinn því að ég gifti mig aftur. Það eru reynd- ar meira en þrjú ár síðan hann dó, en mér finnst að börnin eigi að fá að minnast hans. Ef til vill MEST SEEDA VÉEAOEÍA HEIMSIMS Jafutj snmar sem vctur smyr Yloluloil betur H. Benediktsson H.f. HAFNARHVOLL, REYKJAVÍK SÍMI 11228. vildu þau heldur ekki annað — ef til vill færi þetta allt saman illa.“ „Nei, ég held að það færi allt saman vel,“ sagði jólaengillinn, og var nú allt i einu mjög öruggur. „Einmitt vegna þess að þið hafið bæði breytst. Ég veit lika með fullri vissu að manninum þinum líkaði það vel. Þú getur trúað því að hann vill miklu heldur vita af því, að þér og börnunum líður vel — og ykkur mundi líða vel. Komdu nú, láttu helgi jólanna hjálpa þér að sigrast á öllum vandkvæðum. Nú skal ég hjálpa þér að hringja til hans, sem situr og bíður —* og svo verður allt gott.“ Hvernig sem það annars gekk fyrir sig, þá náðu þessi tvö síma- sambandi hvort við annað, og sambandið varð varanlegt og núna þurfa þau ekki að síma til að ræð- ast við á hverjum degi. Piparsveinninn flýtti sér af stað til nýju fjölskyldunnar sinnar — þau urðu öll reglulega hamingju- söm. En þegar hér var komið var jólaengillinn litli löngu farinn sína leið. Þegar hann kom út var allt kyrrt og hljótt. Litli jóla- engillinn leit til himins. Skær stjarna braust gegnum skýjaþykknið og sendi geisla sína beint niður til hans. Þá skildi hann skyndilega, að hann hafði leyst það af hendi sem honum bar, þvi að svo viturlega er öllu fyrir kom- ið, að öll leysum við af hendi þau ætlunarverk í lífinu, sem okkur eru ætluð, þó við stundum eigum erfitt með að rata réttan veg og ennþá erfiðara með að skilja. Litli jólaengillinn var svo léttur og glaður. Hann sveif af gleði og hvarf eins og snjóhnoðri, sem sveif upp. tMð btstii wtar dvallt ódýrast
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.