Fálkinn


Fálkinn - 17.12.1959, Page 32

Fálkinn - 17.12.1959, Page 32
28 .vM/j. ^M/^ ^l^. ^l/j. .$!£. ^l^ ^M/^ ^M4. ^J/j. .$!£. .$!£. .$!£. jMfc.M£. .$!£. ^l/j. ^M/^ ^M/j. ^M/^ ^M/^ ^l^j. .$&. j&fe. ^M/^ ^M/j. jUfc. .»}M». ^l^. .$!£. ^l/j. .$!£. ^Uj. At^ ^lb. ^M^. .$!£. ^M/j. ^M^. JÓLABLAÐ FÁLKANS 1959 ANTON TSJEKOV: (^JinLennile^ mavmeó l ja Í^SAGAN gerist í járnbrautar- J$2zl klefa á fyrsta farrými. Mjúkur sófabekkurinn er fóðrað- ur með dreyrraðu faueli. Fögur, lág- vaxin kona liggur á bekknum og bandar dýrum blævæng í ákafa rétt við nefið á sér. Klemmugleraugun eru alltaf að detta af undurfögru nefinu, nælan á brjóstinu hækkar og lækkar, eins og bátur í ólgusjó! Konan er óróleg . . . Andspænis henni situr embættis- maður, sem ferðast í opinberum er- indum fyrir fylksstjórann. Hann er ungt og efnilegt skáld, sem skrif- ar sögur — nóvellur kallar hann þær, og efnið er úr daglegu lífi há- stéttanna. Og sögurnar fær hann prentaðar í blaðinu þarna í hérað- inu. Hann horfir á konuna eins og sá sem allt veit, starir framan í hana. Athugar, íhugar, reynir að sjá til botns í þessari óvenjulegu, einkennilegu manneskju .... Sál hennar og sálarlíf er honum opið. — Ó, ég skil yður, sagði emb- ættismaðurinn, sem ferðast í opin- berum erindum, og kyssir úlfliðinn á konunni rétt fyrir ofan armband- ið. — Hin viðkvæma og næma sál yðar er að leita að útgöngudyrum úr þessu völundarhúsi .... Já, þetta er ógurleg barátta, hræðileg barátta .... En látið ekki hug- fallast! Þér sigrið. Ja-á! — Valdemar. Þér verSið að lýsa mér! andvarpaði litla konan og bros- ir angurblítt. — Líf mitt er svo við- burðaríkt, svo erilsamt og sundur- leitt! . . . . En fyrst og fremst er ég óhamingjusöm! Ég þjáist .... ég er píslarvottur í Dostojevski-stíl. . . . . Sýnið veröldinni sál mína, Valdemar, þessa aumu, óhamingju- sömu sál! Þér eruð sálfræðingur! Það er ekki nema tæpur klukku- tími síðan við kynntumst og fórum að tala saman, en þér hafið nú þeg- ar lesið innstu hugrenningar mínar. Já, það hafið þér sannarlega gert! — Talið þér, ég grátbæni yður um að tala! — Hlustið þér þá á mig: Ég er fædd í fátækri starfsmannafjöl- skyldu. Pabbi var góður og alúð- legur, en . . . . sá ríkjandi andi, umhverfið .... vous comprenez . . . . ekki vil ég áfellast vesling- inn hann föður minn. Hann drakk, spilaði fjárhættuspil . . . . lét múta sér. Og mamma . . . . ja, það er ekki vart að tala um það. Neyðin, baráttan fyrir daglegu brauði, með- vitundin um eigið vanmætti .... æ, þér megið ekki þvinga mig til að hugsa til alls þessa! Og svo fá- víslegt uppeldi á kvennaskólanum, lestur fánýtra bóka, fyrsta hikandi ásthneigðin . ... og svo baráttan við andrúmsloftið og umhverfið! Hræðilegt. Og kvalirnar, sem ég þoldi þegar efinn fór að vakna í mér, efinn um tilgang lífsins, efinn um mig sjálfa .... Þér eruð rit- höfundur, Valdemar, og þekkið okk- ur konurnar. Þér skiljið vafalaust .... Til allrar óhamingju er ég of stórbrotin að eðlisfari og ég beið eft- ir hamingjunni, beið eftir að verða manneskja. Já! Ég þóttist eygja mína eigin hamingju í því að verða manneskja! — Dásamlegt! tautar rithöfund- urinn og kyssir úlfliðinn fyrir ofan armbandið. — Það eruð ekki þér, sem ég kyssi, undurfagra vera, held- ur hin mannlega þjáning, sem þér eruð táknræn fyrir! Munið þér Ras- kolnikov? Hann kyssti svona. — Ó, Valdemar! Mig þyrstir í heiður og frægð . . . . ég elska glys og skraut, eins og allar aðrar kon- ur .... hversvegna ætti ég að leyna því? Ég þráði eitthvað óvenjulegt .... eiginlega eitthvað sem konur þrá ekki yfirleitt. Og svo .... svo, .... já, svo bar fundum mínum og gamals, ríks hershöfðingja saman .... Ó, reynið að skilja mig, Valde- mar. Ég fórnaði sjálfri mér, skiljið þér, ég sýndi óeigingirni og sleppti tilkalli til minnar eigin hamingju. Ég gat ekki ánnað gert, skiljið þér. Ég sá vel um fjölskyldu mína, fór að ferðast um og starfa að líknar- málum .... En þér ættuð að vita, hve mikið ég kvaldist! Hve faðm- lög gamla mannsins voru óþolandi og auðmýkjandi, þó að — satt er bezt að segja — hann væri hraust- ur hermaður á sinni tíð. Ég upp- lifði hræðileg augnablik. En tilhugs- unin um að gamli maðurinn gæti hrokkið upp af þá og þegar, gaf mér styrk .... Og þá dreymdi mig um, hvernig ég gæti gefið mig alla þeim, sem ég elskaði, og orðið ham- ingjusöm. Já, því að sá maður er til, Valdemar. Guð í himnaríki veit að sá maður er til. Og nú bandaði litla konan blæ- vængnum í sífellu. Raunasvipur var kominn á andlitið, — henni lá við að gráta. — Gamli maðurinn dó . . . . Hann lét mér sitt af hverju eftir sig. Nú er ég frjáls eins og fuglinn. Nú gæti ég lifað og verið hamingjusöm .... finnst yður það ekki, Valde- mar? Hamingjan drepur á dyr hjá mér, ég þarf ekki annað en hleypa henni inn, opna dyrnar, en — nei .... nei! Valdemar, hlustið þér á mig, ég grátbæni yður um það .... Nú gæti ég gefið mig alla, þeim sem ég elska, verða félagi hans og stoð og stytta, borið fram hugsjónir hans með honum, verið hamingju- söm .... hvílst .... En allt er svo viðbjóðslegt og ljótt í þessari ver- öld! Svo lítilmótlegt, Valdemar! Ég er svo óhamingjusöm, svo óendan- lega óhamingjusöm. Nú finnst mér aftur að hamingjan sé svo óendan- lega langt frá mér — óyfirstígan- legir örðugleikar, Valdemar .... æ, ef þér gætuð rennt grun í hve mikið ég kvelst .... — En hvað gengur þá að yður núna? Hvaða óyfirstíganlegir örðug- leikar hafa steðjað að, og lokað sælubrautinni fyrir yður? — Annar gamall, ríkur maður . .. Litla konan felur yndislega and- litið á sér bak við blævænginn. Rit- höfundurnin styður hönd undir hökuna, starir fránum sálfræðings- augum út í bláinn og verður hugsi. Eimreiðin blístrar og másar, lestin rennur af stað og sólin varpar síð- ustu kvöldroðageislunum inn um klefagluggann. JQOÖÍÍOÍÍOaöOÖOOÍÍíJOttíííÍÍSÍÍÍSÍÍÖÖttíÍQÖÍSÍÍttööttíSöttöOÍÍÖÍÍÍÍÍXJÖOÍSOöOttÖÍÍiÖOÖÍÍ Shetlandseyja, en María var sett í fangelsi í Lochleven-kastlara. Þar var hún látin undirskrifa skjal og afsala sér konungstigninni til Jak- obs sonar síns. En hún neitaði þvert að „afsala sér“ jarlinum af Both- well. Henni tókst að strjúka frá Loch- leven, en eirði ekki í Skotlandi, úr því að Bothwell var farinn það- an. Af hæðunum inn af Solwayfirði sá hún yfir til Englands. Og eitt kvöld í maí 1568 lét hún fiskibát flytja sig yfir fjörðinn á enska grund. Hún sá aldrei Bothwell fram- ar. Frelsi hennar og sögu var lok- ið, og þó var hún aðeins 26 ára og lifði 19 ár eftir þetta. Við hverju bjóst María Stuart í Englandi? Samúð og vernd — og kannske hjálp til að vinna aftur ríki sitt? Elizabeth Englandsdrottn- ing var náskyld henni, — mundi hún ekki vilja hjálpa frænku sinni og drottningu til að endurheimta ríki, sem uppreisnarmenn höfðu frá henni tekið? En það fór á aðra leið. María Stuart var látin í fangelsi. Þegar Bothwell frétti, að María væri kom- in undir manna hendur í annað sinn, fór hann að ókyrrast. Hann mann- aði skip og hélt til Noregs. Einn fagran sumardag lá hann í mynni Harðangursfjarðar. Hann ætlaði að leita á náðir Rustunganna í Kvinn- héraði og ná sáttum við Önnu, fyrstu konu sína. En Rustungarnir töldu sér hollast, að hafa engin skipti af Bothwell, þessum manni, sem bæði Englendingar og Skotar vildu ná í. Var Eiríki Rosenkranz lénsherra í Bergen, gert orð og fór hann og hafði Bothwell með sér til Bergen. Hann var lengi að ráða við sig, hvað hann ætti að gera við hann. En loks varð það úr, að hann var sendur til Danmerkur og lát- inn í einskonar stofufangelsi í Dragsholm-höll, og þar dó hann ár- ið 1578. Englendingar voru í vafa um hvað þeir ættu að gera við Maríu Stuart. í mörg ár fékk hún að leika talsvert lausum hala, þó að hún væri fangi, en þegar frá leið urðu ýms atvik til þess að ekki þótti annað þorandi en hafa hana í ströngu varðhaldi. Meðal annars gerðu kaþólskir í Englandi uppreisn í þeim tilgangi að gera hana að drottningu í Englandi, því að þeir töldu hana réttbornari til ríkis en Elizabeth. 1 augum kaþólskra var hún píslarvottur, sem leið fyrir trú sína, og sömu augum litu kaþólskir víðsvegar í Evrópu á málið. Páfinn og Filippus 2. Spánarkonungur drógu eindregið taum hennar gegn „trúvillingnum Elizabeth“. En Eliza- beth mat nú meira öryggi sitt sem drottningar en frændsemina við Maríu Stuart. Ráðunautar hennar töldu hættu stafa af bröltinu í hin- um kaþólsku fylgismönnum Skota- drottningar. Þessvegna var ákveðið að dómstóll skyldi rannsaka hvort María væri meðsek um morð Darn- leys, eins og skotzka stjórnin hélt fram. Voru áðurnefnd ,,kasettubréf“ lögð fyrir réttinn. Þessi bréf voru talin ástarbréf frá Maríu drottningu til Bothwells, og ef þau voru ósvik- in, þá sönnuðu þau að þau höfðu átt vingott saman meðan Darnley var á lífi. María hélt því fram til síðustu stundar, að bréfin væru fölsuð, og margt bendir til þess að hún hafi sagt það satt. Hafi svo verið, hefur hún orðið fyrir réttar- morði. En það voru ekki bréfin ein, sem réðu afstöðu Elizzabethar til máls- ins að lokurrí, heldur hitt, að sífellt var verið að gera samsæri gegn stjórn hennar. Það voru kaþólskir höfðigjar, sem stóðu fyrir þeim, í von um að koma Maríu til valda. Þannig taldi Elizabeth sér stafa hættu af Maríu meðan hún væri á lífi. Ef ekki hefðu verið samsærin, mundi María Stuart hafa orðið elli- dauð. En svo fór að lokum, að hún var dæmd til dauða. Elizabeth var lengi treg til að undirskrifa dauðadóminn, en svo fór að lokum, að hún gerði það. María Stuart varð vel við dauða sínum og gekk hnarreist jpp á höggstokk- inn, 8. febr. 1587. Þá var liðið á 19. ár síðan hún yfirgaf Skotland fyrir fullt og allt. Ævi hennar varð aðeins 44 ár og tveir mánuðir, en viðburðarík var sú stutta ævi. t|t t|t t|t t|t Minnstu hjón í heimi Henry Behrens og kona hans eru minnstu hjón í heimi og sýna sig á fjölleikahúsum. En svo bar við, að fíll trylltist á leiksviðinu og tróð þau undir og meiddi þau háskale&a. — Loks hafa þau fengið bœtur fyrir, að upphœð 34.100 sterlingspund eftir að mál þeirra hafði komizt fyrir hœsta- rétt. Behrens er 62 ára og 75 senti- metra hár. Hann segist vera minnsti dvergur í heimi. Emmy kona hans er 56 ára og nokkrum þumlungum hærri.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.