Fálkinn - 07.12.1960, Side 22
-|7iG hafði dvalið nokkra mánuði í
-C-J Mexico án þess að hugsa um hvort
heldur var sumar eða vetur. í einu ró-
legasta hverfinu í Mexico City hafði ég
leigt mér tvö stór, björt herbergi og þar
hafði ég mína aðalbækistöð, þegar ég
var ekki í flakki út um land.
Örlögin eru glettin og höfðu hagað því
svo, að ég átti heima í götu sem hét
Calle Copnnhague — Kaupmannahafn-
argata — nafnið var svo huggulegt og
notalegt, en svo var það líka það eina,
sem minnti mig á Danmörku.
Á hverjum degi í tvo mánuði hafði ég
opnað breiðu dyrnar út á svalirnar og
látið bjarta Mexicósólina senda mér
flóð af geislum inn í stofuna. Ég hafði
horft á blátæran himininn, sem hvelfdist
yfir borgina dag eftir dag, og hafði and-
að að mér stórum teygum af léttu, hress-
andi lofti.
Calle Copenhague var róleg gata með
tvílyftum heldrimannahúsum; en einn
morguninn hafði allt í einu færzt fjör
í götuna. Þar var sem kliður gaggandi,
gargandi og ropandi hljóða. Berfættur
Indíáni úr einu grannaþorpinu, með
barðastóran sombrero á skakk á höfðinu,
skræpóttan sarape yfir öxlina og langa,
dinglandi bambusstöng í hendinni, kom
niður götuna og rak á undan sér heilan
hóp af kalkúnum. Hrópin í honum
ginntu allar indíánsku eldakonurnar í
hverfinu fram í dyrnar. Með orgi og
æpingum var hver kalkúninn eftir ann-
an eltur uppi, þuklaður og handkram-
aður og dásamaður unz verzlunin var
ákveðin eftir mikið þref og þvarg.
Hún Juanna, fallega, svarteyga vinnu-
konan hennar húsmóður minnar, lyfti
sigrihrósandi stórum baksandi og garg-
andi kalkún upp að svölunum til mín
og hrópaði: „E1 pavo de navidad! E1
pavo de navidad." — Jólakalkúninn!
Jólakalkúninn!
Jólatilhugsunin kom mér alveg á
óvart. Svo var Mexicosólinni og bláa
himninum fyrir að þakka, að ég hafði
verið í sumarskapi alveg þangað til
ánægjuhrópið í Júönnu minnti mig á
að ekki voru nema tíu dagar til jóla.
Kalkúnsalinn var fyrsti fyrirboði þeirr-
ar hátíðar, sem einnig í Mexico er mesta
hátíð ársins.
Árdegis þenna sama dag fór ég inn
í borgina til að athuga, hvort þar sæj-
ust nokkur merki jólaviðbúnaðar. Mexi-
co City er alþjóðlegur stórbær á stærð
við Róm — undursamlegur hrærigraut-
ur gamals og nýs: skrautlegar hallir
og fögur musteri og kirkjur frá blóma-
tíma spænska landnámsins, nýtízku
funkishús og skýjakljúfar — og fólk
sem er jafnsundurleitt og húsin.
22
FALKINN