Fálkinn - 07.12.1960, Side 40
„Grípið þjófinn!“
„Lofaðu nú mömmu að halda
á regríhlífinni augnablik.“
,,Þér ráðið, hvort þér bíði'ð. Hann
fékk fimm ár.“
40 FALKINN
SK0DANAK0NN-
UN FÁLKANS
Nýjar kirkjur hafa risið upp í höfuðstaðnum undanfarin ár; margar
hverjar með nýtízku sniði, sem er mjög frábrugðið því, sem menn
hafa átt að venjast. Eins og að líkum lætur, hafa margar af kirkjum
þessum verið ærið umdeildar og sumir hafa jafnvel ekki getað orða
bundizt og kvatt sér hljóðs á opinberum vettvangi, í blöðum eða út-
varpi, og sagt sína meiningu. Unnendur nútímalistar hafa síðan svarað
og lýst yfir gagnstæðri skoðun og þannig koll af kolli, fullyrðing á móti
fullyrðingu. Þannig er þetta ævinlega, þegar rætt er um smekksatriði
og óþarft er að minnast á allt það rifrildi og alla þá prentsvertu, sem
menn hafa eytt í þrætu um nútímalist á flestum sviðum: atómljóðin
svokölluðu, abstraktmálverkin og tólftóna músikina.
Kirkjur nútímans bera svipmót byltinganna á sviði listar og mörg-
um finnst þær hreinasta guðleysi.
Okkur kemur í hug orðaskipti, sem við hlýddum á við strætisvagna-
biðstöð rétt hjá Sjómannaskólanum, ekki alls fyrir löngu. Tveir menn
sátu þar á bekk og biðu eftir vagninum. Annar þeirra virti fyrir sér
Háteigskirkju, sem nú er í smíðum, og sagði eftir litla stund:
— Þetta verður reisuleg kirkja. Það verður einhver munur að sjá
þetta eða ómyndina þarna fyrir aftan.
Hann átti við kirkju Óháða safnaðarins, sem nýlega er fullbyggð.
Sessunautur mannsins brosti í kampinn og svaraði:
— Ef ég á að segja mína meiningu, þá álít ég hið gagnstæða.
Þannig eru skoðanir manna skiptar og sýnist sitt hverjum.
FÁLKINN hefur ákveðið að efna til ofurlítillar skoðunarkönnunar
nú um jólin. — Við birtum hér á síðunni á móti myndir af fjór-
um nýjum kirkjum, tvær þeirra eru fullbyggðar, en tvær ennþá í
smíðum. Kirkjurnar eru: Háteigskirkja (líkan), Hallgrímskirkja (líkan),
Kirkja Óháða safnaðarins og Neskirkja. Við biðjum lesendum að skipa
kirkjunum í röð eftir sínum smekk og senda okkur síðan eyðublaðið.
Ef næg þátttak fæst, verður fróðlegt að vita hver niðurstaðan verður; |
og ef til vill má ráða af henni, hvort fólki geðjast almennt að hinum
nýja kirkjubyggingarstíl.
i'&wM
ÍStl
wmm
iMf
iÉliÍiÍ
"''V-V V
iBSÍfij.
MM
fi-
■
■ •'fifi^fififififi'
i
$