Fálkinn - 05.04.1961, Síða 4
FORNBÓKASALA
Kaupum og seljum vel meðfarnar, notaðar bækur.
FORNBÖKAVERZL. STEFÁNS GUÐJÖNSSONAR
Laugavegi 28 (2. hæð). Sími 10314.
EIMREIÐIN
Stofnuð 1895
Allir bókaunnendur þurfa að lesa EIMREIÐINA.
Frá því fyrir aldamót hafa allir fremstu rithöfundar, skáld
og menntamenn þjóðarinnar skrifað í EIMREIÐINA. EIM-
REIÐIN er tímarit vandlátra lesenda í öllum stéttum, sem
meta kunna fagrar bókmenntir og listir, og taka þær fram
yfir dægurflugur og Stundarglamur.
Nýir áskrifendur geta fengið nokkuð af eldri árgöngum EIM-
REIÐARINNAR með hagkvæmu verði.
Gerizt áskrifendur að EIMREIÐINNI.
Áskriftargjald árgangsins aðeins kr. 100.00 (3 hefti, 228 bls.).
Áskriftarsími 1 61 51 — Pósthólf 1127.
EIMREIÐIN
Stórholti 17 — Reykjavík.
EINN mest umtalaði piparkarl
í Englandi er kvikmyndaleik-
arinn Dirk Bogarde, sem nú
stendur á fertugu. Allt í einu
brá svo við, er hann lék í
kvikmyndinni um Franz Liszt
ásamt frönsku kvikmyndaleik-
konunni Capucine, að hann
varð ástfanginn af henni og
það svo að um munaði. Hann
bað hennar umsvifalaust, en
fékk því miður neitun. Capucine, sem hefur
nýlega gert samning í Hollywood, metur meir
feril sinn sem kvikmyndaleikkona, heldur en
giftingu og húmmóðurstörf. Bogarde er því
áfram piparkarl, en unir nú hag sínum hálfu
verr en áður.
★
HIN ljóshærða sænska kvik-
myndastjarna May Britt Wilk-
ens, sem í nóvembermánuði
síðastliðnum giftist negranum
og leikaranum Sammy Davis,
á von á barni. Hjónaband
þeirra vakti sem kunnugt er
geysimikla athygli og margir
álitu að þau bæði hefðu með
giftingunni eyðilagt feril sinn
á listabrautinni. Samt sem áður eiga þau bæði
kost á góðum tilboðum í Hollywood og ástæð-
an til þess er talin sú, að hinn ókrýndi kon-
ungur kvikmyndaheimsins, Frank Sinatra,
hefur verið þeim mikil stoð og stytta.
★
BING GROSBY hefur látið í ljós þá skoðun
sína, að mennirnir endi feril sinn sem apar
að minnsta kosti hvað málið snertir.
— Söngstjörnur nútímans sýna þróunina,
segir hann. — Menn skyldu bara hlusta á
nokkrar dægurlagaplötur og þá munu þeir
taka eftir, að textinn samanstendur mest af
hljóðum eins og „oh, ah, do, dee, og da-dum“.
'Ég skal raunar viðurkenna, að dægurlagatext-
ar hafa aldrei verið nein bókmenntaleg meist-
araverk, en hér áður fyrr samanstóðu þau þó
af orðum, sem mátti skilja!
★
MRGT hafa langþreyttir og
mæddir eiginmenn sagt mis-
jafnt um blessað hjónabandið
og kannski sumir haft ástæðu
til þess. En með því versta,
sem sagt hefur verið um þenn-
an „helgidóm“, hraut nýlega
af vörum sænska kvikmyndasnillingsins Ing-
mar Bergmans. Hann sagði hvorki meira né
minna:
Hjónabandið er hinn eini fasti punktur hel-
vítis!