Fálkinn


Fálkinn - 05.04.1961, Blaðsíða 33

Fálkinn - 05.04.1961, Blaðsíða 33
 STJÖRN USPÁIN Hrútsmerkið: Þér fáið góð tækifæri í þessari viku og það sem meíra er: Margir af vinum yðar og ættingjum munu hjálpa yður til þess að notfæra þau út í yztu æsar. Sunnudagurinn verður mjög sérstæður og rómantískur dagur, sérstaklega fyrir ungt fólk. Nautsmerkiö: Vikan verður óvenjulega létt og góð og margt mun gerast, sem kemur yður þægilega á óvart. Þér hafið átt við fjár- hagsörðugleika að etja, en þér vinnið bug á þeim og framtíð- arhorfur allar verða glæsilegri en nokkru sinni fyrr. Tvíburamerkiö: Þér hafið fulla ástæðu til að vera í góðu skapi og ánægður með tilveruna í næstu viku, því að stjörnurnar segja, að gleðileg tíðindi muni þá berast yður. Vinnan mun verða yður leikur einn, en hún krefst mikils tíma og einkalíf yðar er í hættu af þessum sökum. Krabbamerkið: Þér skuluð gæta þess, að láta ekki áhyggjur út af smámun- um, gera yður um of gramt. í geði og veikja starfskrafta yð- ar og áhuga. Haldið heldur áfram að gera áætlanir fyrir framtíðina og íhuga nýjar hugmyndir. Viljinn og áhuginn eru fyrir mestu og án þeirra vinnst ekkert verk vel. Ljónsmerkið: Þær vikur koma fyrir, sem allt gengur svo auðveldlega sinn vanagang, að maður þarf ekki einu sinni að hreyfa litla fingur. Þetta er hættulegur tími. Það gerist lítið ef maður heldur alltaf að sér höndum og aðhefst ekkert. Gætið þess vel að fara ekki flatt á þessu. J ómfrúarmerkið: Vikan mun virðast yður nokkuð grá og leiðinleg, en þá gildir mest.u að njóta þeirra smáu sólargeisla, sem þrátt fyrir allt þrengja sér milli skýjanna. í vikulokin birtir til. Það kemur í ljós, að fyrirtæki, sem þér eruð bendlaður við, fer skyndilega að bera ávöxt og pyngjan yðar þyngist. V offars kálarmerkið: Þér fáið nóg að gera í þessari viku, en gætið bess, að láta ekki troða yður um tær, M. því að þér eruð allt of viljugur og meinlaus. Það eru ótrúlega margir, sem níðast á þeim, sem eru greiðviknir og fullir af starfslöngun. Sporðdrekamerkið: Þér lendið í erfiðri aðstöðu. Það fellur í yðar hlut að skýra manneskju, sem þér þekkið mjög vel, frá óþægilegum sann- indum og verða þess valdandi að skýjaborgir hennar hrynja í einni svipan í rúst. Hugsið yður vel um, áður en þér gerið þetta og reynið að særa tilfinningar hennar sem minnst. Boffmannsmerkið: Vikan verður góð bæði á sviði atvinnunnar og svo með til- liti til vináttu og ástar. Það gerist ótrúlega margt í lífi yðar þessa einu viku, svo að þér eigið erfitt með að átta yður á því öllu saman. Gætið þess vel að ofmetnast ekki af því, sem þér gerið vel og heppnast í fyllsta máta. Steinffeitarmerkið: Þetta verður vika mikilla anna, en einnig góðra tækifæra. Gætið þess að flýta yður ekki svo mikið, að það komi niður á gæðum þess, sem þér vinnið við. Það kemur yður í koll, ef þér skilið hálfunnu og óvönduðu verki. Að öðru leyti spá stjörnurnar öllu góðu. Vatnsberamerkið: Það verða ýmsir örðugleikar og leiðindi á vegi yðar í þess- ari viku, og það r.eynir heldur betur á þolrifin í yður. En ef þér sigrist. á öllum erfiðleikum, standið þér betur að vígi en nokkru sinni fyrr og eruð meiri maður og reyndari á eftir. Fiskamerkið: Þér verðið óvenjulega vel upplagður þessa viku og allt, sem þér snertið á, heppnast vel og verður yður til sóma. En það er vart að byggja mikið á því, sem menn detta niður á að gera vel. Þér verðið að vinna statt og stöðugt að því að byggja t.raustari grundvöll undir starfsemi yðar. 21. MARZ — 20. APHlL 21. APHlL — 21. MAl 22. MAl — 21. TÚNl 22. JÚNl — 22. ÍÚLl 23. JÚLl — 23. AGÚST 24. AGÚST— 23. SEPT. 24. SEPT. — 23. OKT. 24. OKT. — 22. NÓV. 23. NÓV. — 21. DES. 22. DES. — 20. JAN. 21. JAN. — 19. FEBR. 20. FEBR. — 20. MARZ

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.