Fálkinn - 05.04.1961, Page 33
STJÖRN USPÁIN
Hrútsmerkið:
Þér fáið góð tækifæri í þessari viku og það sem meíra
er: Margir af vinum yðar og ættingjum munu hjálpa yður
til þess að notfæra þau út í yztu æsar. Sunnudagurinn verður
mjög sérstæður og rómantískur dagur, sérstaklega fyrir ungt
fólk.
Nautsmerkiö:
Vikan verður óvenjulega létt og góð og margt mun gerast,
sem kemur yður þægilega á óvart. Þér hafið átt við fjár-
hagsörðugleika að etja, en þér vinnið bug á þeim og framtíð-
arhorfur allar verða glæsilegri en nokkru sinni fyrr.
Tvíburamerkiö:
Þér hafið fulla ástæðu til að vera í góðu skapi og ánægður
með tilveruna í næstu viku, því að stjörnurnar segja, að
gleðileg tíðindi muni þá berast yður. Vinnan mun verða yður
leikur einn, en hún krefst mikils tíma og einkalíf yðar er í
hættu af þessum sökum.
Krabbamerkið:
Þér skuluð gæta þess, að láta ekki áhyggjur út af smámun-
um, gera yður um of gramt. í geði og veikja starfskrafta yð-
ar og áhuga. Haldið heldur áfram að gera áætlanir fyrir
framtíðina og íhuga nýjar hugmyndir. Viljinn og áhuginn
eru fyrir mestu og án þeirra vinnst ekkert verk vel.
Ljónsmerkið:
Þær vikur koma fyrir, sem allt gengur svo auðveldlega
sinn vanagang, að maður þarf ekki einu sinni að hreyfa litla
fingur. Þetta er hættulegur tími. Það gerist lítið ef maður
heldur alltaf að sér höndum og aðhefst ekkert. Gætið þess
vel að fara ekki flatt á þessu.
J ómfrúarmerkið:
Vikan mun virðast yður nokkuð grá og leiðinleg, en þá
gildir mest.u að njóta þeirra smáu sólargeisla, sem þrátt fyrir
allt þrengja sér milli skýjanna. í vikulokin birtir til. Það
kemur í ljós, að fyrirtæki, sem þér eruð bendlaður við, fer
skyndilega að bera ávöxt og pyngjan yðar þyngist.
V offars kálarmerkið:
Þér fáið nóg að gera í þessari viku, en gætið bess, að láta
ekki troða yður um tær, M. því að þér eruð allt of viljugur og
meinlaus. Það eru ótrúlega margir, sem níðast á þeim, sem
eru greiðviknir og fullir af starfslöngun.
Sporðdrekamerkið:
Þér lendið í erfiðri aðstöðu. Það fellur í yðar hlut að skýra
manneskju, sem þér þekkið mjög vel, frá óþægilegum sann-
indum og verða þess valdandi að skýjaborgir hennar hrynja
í einni svipan í rúst. Hugsið yður vel um, áður en þér gerið
þetta og reynið að særa tilfinningar hennar sem minnst.
Boffmannsmerkið:
Vikan verður góð bæði á sviði atvinnunnar og svo með til-
liti til vináttu og ástar. Það gerist ótrúlega margt í lífi yðar
þessa einu viku, svo að þér eigið erfitt með að átta yður á
því öllu saman. Gætið þess vel að ofmetnast ekki af því, sem
þér gerið vel og heppnast í fyllsta máta.
Steinffeitarmerkið:
Þetta verður vika mikilla anna, en einnig góðra tækifæra.
Gætið þess að flýta yður ekki svo mikið, að það komi niður
á gæðum þess, sem þér vinnið við. Það kemur yður í koll, ef
þér skilið hálfunnu og óvönduðu verki. Að öðru leyti spá
stjörnurnar öllu góðu.
Vatnsberamerkið:
Það verða ýmsir örðugleikar og leiðindi á vegi yðar í þess-
ari viku, og það r.eynir heldur betur á þolrifin í yður. En ef
þér sigrist. á öllum erfiðleikum, standið þér betur að vígi en
nokkru sinni fyrr og eruð meiri maður og reyndari á eftir.
Fiskamerkið:
Þér verðið óvenjulega vel upplagður þessa viku og allt,
sem þér snertið á, heppnast vel og verður yður til sóma. En
það er vart að byggja mikið á því, sem menn detta niður á
að gera vel. Þér verðið að vinna statt og stöðugt að því að
byggja t.raustari grundvöll undir starfsemi yðar.
21. MARZ —
20. APHlL
21. APHlL —
21. MAl
22. MAl —
21. TÚNl
22. JÚNl —
22. ÍÚLl
23. JÚLl —
23. AGÚST
24. AGÚST—
23. SEPT.
24. SEPT. —
23. OKT.
24. OKT. —
22. NÓV.
23. NÓV. —
21. DES.
22. DES. —
20. JAN.
21. JAN. —
19. FEBR.
20. FEBR. —
20. MARZ