Fálkinn - 05.04.1961, Qupperneq 5
hversvegna flugfélögin vilja
helzt hafa sem fámennasta
ahöfn á flugvélum sínum?
Vitanlega vilja þau hafa
þá áhöfn, sem fullnægi öllu
öryggi. En meS ýmis konar
fullkomnun á tækninni er
stefnt af því, að komast af
með færri starfsmenn en áð-
ur. Og það er til þess að gera
„nýtifarm“, — þ. e. farþega
og borgaðan flutning, sem
vélin getur flutt, meiri en
áður. — Amerískt flugfélag
hefur reiknað út, að ef hægt
væri að spara eitt starfs-
mannspláss í vélum þess,
mundi vera hægt að auka
tekjur félagsins um 3 millj.
dollara á ári.
★
að hugtakið „luxus“ er orðið
100 ára í jámbrautarþjón-
ustunni?
Fyrstu járnbrautarvagn-
arnir voru „meira en ófull-
komnir“ og það hlýtur að
hafa verið meiri kvöl að
ferðast á þeim en sitja á
meinhöstum brokkhesti. Og
þar voru engin þægindi —
ekki einu sinni hægt að kasta
af sér vatni. — Ungur Ame-
ríkumaður, sem hét Morti-
mer Pullmann og ferðaðist
mikið, sá að hér var hægt
að ráða bót á merku málefni.
Honum tókst að stofna fé-
lagsskap, sem smíðaði vagna
með þægilegum sætum, mat-
arvagna og svefnvagna. Af
þessari hugmynd spratt svo
ið fræga Pullmannsvagna-
fyrirtæki. Vagnar þess voru
búnir alls konar hugsanleg-
um þægindum, enda urðu
Pullmannsvagnarnir frægir,
og járnbrautarfyrirtæki víðs-
vegar um heim tóku upp
hugmyndina.
AMERÍSKIR foreldrar segja,
að maður eigi að bjóða börn-
um sínum góða nótt með
kossi, þ. e. a. s. ef maður
getur haldið sér vakandi,
þangað til þau koma heim.
★
ÚRKLIPPA úr blaði: Brúð-
guminn hefur tvisvar verið
giftur áður og auk þess tek-
ið þátt í heimsstyrjöldinni
síðari!
KENNSLUKONA hefur sagt
eftirfarandi sögu: Ég stóð
upp við svarta töflu og var
að gefa nemendunum fyrstu
lexíuna í brotareikningi. Ég
tók eftir því, að Yvonne, sem
yfirleitt var alltaf úti á
þekju, fylgdist með af áhuga
og virtist taka mjög vel eftir.
Nú, hugsaði ég. Stúlkan er
bara vöknuð. Ég verð þá
víst að reyna að hvetja hana
á einhvern hátt.
— Nú, Yvonne, sagði ég.
— Þú fylgdist vel með, þeg-
ar ég skrifaði á töfluna. Það
er gaman að sjá, að þú hef-
ur áhuga á þessu. Er nokkuð
sérstakt, sem þú vildir
spyrja um?
— Já, fröken, sagði Yvonne.
—- Þér eruð farnar að nota
nýtt naglalakk. Hvaða teg-
und er það?
★
EYFIRÐIN GUR orti um
Þingeying:
Oft með pyngju fer hann
flott,
fljóðin syngur kringum,
er með hringað uppsperrt
skott,
arf frá Þingeyingum.
/
1889 kom til London hinn
risastóri demantur „Julius
Pam“ frá Kimberley. Dem-
anturinn vó 241 karat eða
90 karötum meira en hinn
fagri Porter-Rhodes demant-
ur, sem metinn var á um
eina og hálfa milljón króna.
Hinn nýi demantur var lang-
ur og mjór í laginu og hafði
á sér fagran, bláhvítan lit.
★
1756 kom til Stokkhólms
liðsforingi úr sænska hern-
um eftir óvenjulega ævin-
týralega ferð til Kína, Suður-
Ameríku og Portúgal með
skipinu Prinsessa Sophia Al-
bertina. Meðan skipið lá við
eyðieyna Ascension, sem er
í námunda við eyjuna St.
Helena, til þess að veiða
skjaldbökur, fór Brelin liðs-
foringi út í eyðieyjuna að
gamni sínu. Svo illa vildi til,
að Brelin gleymdist og skip-
ið sigldi áfram, meðan hann
dvaldist í eyjunni. Einn og
yfirgefinn á þessari eyði-
eyju lifði Brelin hræðilegar
hörmungar og skort, og var
aðfram kominn, þegar
franskt skip bjargaði honum.
Þegar hann kom heim, rúmu
ári síðar, var hann fyrir
löngu talinn af.