Fálkinn - 05.04.1961, Qupperneq 6
HIN EINA LIFANDI LIST
ÞEGAR LEIKLIST Forn-Grikkja og
Rómverja leið undir lok varð kirkjan
ein um að halda leiklist uppi. Heiðin
blót lögðust niður er kristnin breiddist
út um löndin, en kirkjan varð að grípa
til nýrra ráða til þess að hæna fólkið að.
Það varð að fá einhverja uppbót fyrir
leiki hinna heiðnu keisara.
Þess vegna hófust helgi-leikirnir
snema á miðöldum. Þar voru frægar
persónur úr biblíunni sýndar bráðlif-
andi, ýmist í kirkjunum sjálfum eða
á kirkjutorginu.
En þetta var aðeins í kaþólskum sið.
Þar sem siðaskiptin urðu í lok miðalda,
svo sem um alla Norður-Evrópu, lögþ-
ust helgileikirnir niður — voru bann-
aðir. En urr_ líkt leyti fór það, sem við
köllum leiklist í dag, að rumska. í ítalíu
fæddist „Comedia dell’arte", — gaman-
leikir sem fólkið vildi sjá, með sömu
persónum í leik eftir leik, alveg eins og
í teiknimyndaflokkum. Þessar persónur
sögðu sitt af hverju, en stundum svo
slorkennt, að það mundi ekki þykja hæf-
andi á leiksviði í dag. Spánska skáldið
Lope de Vega samdi 1500 gamanleiki af
þessu tagi og 400 háfleygari leikrit (og
3000 sonnettur, og margar sögur að
auki).
RÁÐGÁTAN SHAKESPEARE.
Þó margir yrðu til að semja leikrit
á undan William Shakespeare, bæði í
Frakklandi og Englandi, ber nafn hans
svo hátt, að nefna verður Það öllum
öðrum fremur, þegar minnzt er á leik-
hús nútímans. Því að þó Shakespeare
hafi legið nokkrar aldir í gröfinni er
hann samt nútíma-leikskáld, — ekkert
sæmilegt leikhús kemst hjá að sýna
leikrit hans við og við. Enginn maður
hefur orðið jafn ótvíræður konungur í
ríki listar sinnar og hann varð.
Og þó eru menn í vafa um hvort hann
hafi samið leikritin, sem við hann eru
kennd! Sumir halda því fram að enskur
aðalsmaður hafi skrifað þau, og notað
leikarann Shakespeare fyrir lepp, því
að þá þótti ekki sæmandi að aðalsmenn
semdu leikrit! Þessi gáta verður kann-
ski aldrei ráðin, en Shakespeare-leikrit-
in eru ekki verri fyrir það.
Shakespeare var ekki eins afkasta-
mikill og Lope de Vega. En þó bera nær
40 leikrit nafn hans. Sum þeirra mynda
eina stærri heild og geta því talizt kafl-
ar úr einu leikriti, og því er vandi að
segja, hve mörg leikritin eru í raun og
veru. Efnið er að jafnaði sögulegt —
bæði úr fornöld og ekki sízt úr sögu
Englands. En sumt eru gamanleikir eða
sögur í leikritsformi. Shakespeare hefur
að jafnaði hraða viðburðarás í leikjum
sinum og formið er oftast kveðandi. Oft
lætur hann persónurnar þylja löng ein-
töl, til þess að koma skoðun og hugsun
skáldsins á framfæri. En svo mikið
snilldarhandbragð er jafnan á leikritum
Shakespeares að þar þykir enginn hafa
komizt jafn langt.
Shakespeare olli byltingu í leikrita-
gerð. Hann forðaðist að líkjast fyrir-
rennurum sínum. Hann gat skrifað leik-
rit um allt milli himins og jarðar og
hvernig sem hann langaði til. Honum
var sama um alla gagnrýnendur, —
hann skrifaði fyrir leikhúsgestina og
hafði lag á að hrífa þá.
ENSK LEIKHÚS í TÍÐ
SHAKESPEARES.
Tvö fræg leikhús voru í London á
dögum Shakespeares: Swan og Globe.
Globe-leikhúsið var vígt 1599 og var
Shakespeare meðeigandi í því og leik-
rit hans sýnd þar. Skrifaði hann leikrit-
in jafnóðum og leikhúsið þurfti á þeim
að halda. Hann þekkti alla leikendurna
persónulega, og hann þekkti leikhús-
gestina. Og líklega hefur hann leikið
sjálfur, að minnsta kosti í viðlögum.
Leikhúsið var hár marghyrningur (átt-
strendur) og opinn forgarður í miðju.
En kringum þetta opna svæði voru áhorf-
endastúkur og svalir, hver hæðin upp
af annarri, en fortjald fyrir leiksviðinu.
Leiktjöld voru lítt notuð og ekki hirt
um að nota búninga frá þeim tímum,
sem leikurinn gerðist á. Konungar voru
látnir hafa kórónu og riddarar skikkju
til að tákna tign þeirra. Fólk hafði
meira hugmyndaflug í þá daga en nú.
Ef ungur maður kom fram á leiksviðið
með spjald, sem á var málað ,,Róm“, þá
var hann áhorfandinn í Róm.
í LEIKHÚSI ALLAN DAGINN,
Leikritin voru miklu lengri í þá daga
en maður á að venjast nú. Mörg leikrit
Shakespeares eru stytt um helming þeg-
ar þau eru leikin nú á dögum, því að
Meðan á sýningum stó5, gekk fólk á milli áhorfenda
og seldi brauð og ávexti. Og fólki leyfðist að ganga
upp á leiksviðið og rabba við leikendur...
6 PALKINN