Fálkinn - 05.04.1961, Blaðsíða 18
ÞAÐ VAR einn kaldan morgun um miðjan marz, að frétta-
maður Fálkans fór óvenjulega snemma á fætur. Á götum
bæjarins voru unglingar með skólatöskur í meirihluta, syfju-
og kuldalegir ásýndum. Á einum stað í bænum voru nokkr-
ir, sem létu fara vel um sig og stripluðust á sundfötum
meðan unglingarnir norpuðu á götum bæjarins. Þessir voru
sundlaugagestirnir, sem mæta flesta morgna árið um kring.
Hvaða fólk er þetta, sem er hlaðið slíkri lífsorku að byrja
daginn á því að fara í Sundlaugarnar? Jú, það er fólk af
öllum stéttum: Forseti íslands, háskólaborgarar af ýmsu
tagi, verzlunarmenn, iðnaðarmenn, leikarar, prédikarar og
húsmæður.
★
Fréttamaðurinn stendur á sundlaugarbarminum við grunnu
laugina og rýnir út í laugina, því að þarna eiga „þeir“ að
vera. Það heyrist mikið skvaldur og síðan sviptir golu-
stroka gufunni frá og það grillir í nokkur andlit.
— Eruð þið „fastagestirnir11?
— Ha? Já, við erum morgunmennirnir.
— Hvað mætið þið margir?
— Þegar kaldast er svona 10, annars 25 — 30 . Þeir
fyrstu koma hálf átta og við förum upp úr um hálf níu.
— Já, og ef einhver kemur eftir hálf níu, þá bjóðum við
gott kvöld! (Það var Guðmundur Pálsson leikari, sem skaut
þessu inn).
— Já, svo er þetta mesta kjaftabæli landsins! Héðan er
þjóðinni stjórnað!
18
Það hlýtur að bæta húmorinn, að mæta í laugunum á
hverjum morgni.
— Vanti einhvern í hópinn, þá er vitað, að hann hefur
verið fullur kvöldið áður!
— Hver er aldursforseti?
— Það er líklega hann Siggi á kassanum — hann Sigurð-
ur Sveinbjörnsson. Hvað er hann gamall? Ja, hann er lík-
lega 85, en hann er nú hádegismaður. Við erum beztu menn-
irnir. Það eru líka hádegismennirnir og svo eftirmiðdags-
menn .... hér er annars einn úr Kópavoginum, svona, komdu
fram í dagsljósið maður ....
★
Nú kemur sundlaugarvörðurinn, Stefán Steingrímsson,
stingur risastórum mæli niður í vatnið, horfir á hann og
segir: 38° Celsíus.
Myndatakan er afar erfið vegna gufunnar.
— Mesti ólátabelgurinn er hann Björgvin í Vaðnesi, segir
einhver.
★
Inni hjá Stefáni sundlaugaverði er hlýtt og notalegt.
— Hverjir eru það nú, sem eru morgunmenn?
— Það er t. d. Einar Baldvin, lögfræðingur, Ottó Guð-
mundsson, málarameistari, Björgvin kaupmaður í Vaðnesi,
Óli Hjaltested dr. med., Guðmundur Pétursson lögfræðing-
ur, Jóhanns Björnsson, dr. med., Einar í Sindra og fleiri og
fleiri, sem ég man ekki eftir í svipinn. Seinna koma Agnar
Kofoed Hansen, flugmálastjóri, Jón Axel Pétursson og Pétur
FALKINN