Fálkinn - 05.04.1961, Qupperneq 19
Salómonsson, sem er að æfa undir Erm-
arsund. Já, og svo er það Pétur Ólafsson
í ísafold, sem er morgunmaður. Hann er
yfirleitt fyrstur ofan í. Hann hefur nú
ekki mætt í morgun.
Maður kemur á gluggann.
— Hver er þessi?
— Ég man nú ekki hvað hann heitir,
en hann er einn af þeim, sem ekur
bankastjóra, — hann er á R 64.
— Svo kemur lögreglan oft á morgn-
ana, heldur Stefán áfram. Eftir að morg-
unmennirnir fara upp úr lauginni, er
dauður tími dálitla stund, en svo fara
konurnar að koma um níu og hálf tíu
Þar á meðal er Unnur Ólafsdóttir —
hún er fræg fyrir útsaum. — Nú fer að
sókn að aukast aftur, fólk hverfur svo
aftur á haustin.
Á leiðinni mætum við Jóhannesi
Björnssyni lækni, og hann staldrar við
meðan myndavélin vinnur sitt verk.
— Taktu ekki magamynd, segir hann
í spozkum tón.
Jón Björgvin Jónsson heitir hann.
Hann sat í fatahenginu. — Ertu gamall
skipstjóri? (Tattóveruð mynd á hand-
legg var orsök þessarar gáfulegu spurn-
ingar).
— Nei, ekki er ég nú það, — en gam-
all sjómaður er ég.
— Hvað koma margir á slíkum degi
sem þessum?
— Svona 300 manns, og þá er ekki
reiknað með skólabörnum. f sumar kom
flest 2100 manns á einum degi, og yfir
sumarmánuðina 3 komu 29 þúsund
manns á mánuði, og yfir árið komu 240
þúsund manns — og það er met-aðsókn.
Ég var að tala við morgunmennina í
sundlaugunum, sagði fréttamaðurinn við
einn málkunnugan á meðan beðið var
eftir strætisvagninum.
— Já? Það hefur verið sagt mér, að
það séu einhverjir sem keppist um að
mæta fyrstir, og annar þeirra er svo
ákafur, að hann er byrjaður að klæða
sig úr úti á miðri götu — ef hann grun-
ar, að hinn sé nýsloppinn inn!
Svo kom strætisvagninn.
Á myndunum sjáum við nokkra af
„morgunmönnunum“ í Sundlaugun-
um. Myndin hér að ofan er af Óla
Hjaltested lækni. Efst til hægri er
Guðmundur Pálsson, leikari, þá kem-
ur Jóhannes Björnsson læknir, og
neðst er Bjarni Guðmundsson, rit-
stjóri og útgefandi Hreppamannsins.
Á myndinni hér að neðan sjáum við
Kaldal ljósmyndara og Gunnlaug hjá
Eimskip. Á stóru myndinni á síðunni
hér á móti eru meðal annars: Björg-
vin í Vaðnesi og Þorvaldur í Síld og
fisk (fyrir miðju), Pétur Andrésson
og Björn í Brynju til hægri og fleiri.