Fálkinn - 05.04.1961, Qupperneq 22
HÖRUNDID
Nokkrar staðreyndir
um húðina og með-
höndlun hennar
sem allar kon-
ur þurfa að
vita um.
Þurr húð.
Einkenni: Húðin er þurr á að líta,
gagnsæ og hrukkar auðveldlega. Hita-
sveiflur og veðurfar hefur mikil áhrif
á hana. Þurr húð á rætur sínar að rekja
til dauðra fruma, sem stífla -fitukirtl-
ana og hindra starfsemi þeirra, er einn-
ig oft arfgeng. En ekki verður hjá því
komizt, að allar húðgerðir þorni með
aldrinum. Kynnið yður því, hvernig
hirða skal þessa húðgerð.
Hreinsun: Hafið hugfast, að allar húð-
gerðir þarfnast gagngerðrar hreinsunar.
Margir hverjir, sem hafa þurra húð, eru
svo hræddir við vatn og sápu, að þeir
láta algerlega undir höfuð leggjast að
hreinsa húðina. En við það vinnst að-
eins, að starfsemi fitukirtlanna hindrast
enn meir og húðin þornar meir. Notið
hreinsikrem, milda kremsápu, sem bezt
er að núa varlega inn í húðina og skola
síðan af með vatni. Notið milt andlits-
vatn (skintonic) að hrreinsun lokinni.
A-vitamin. Oft er hægt að rekja or-
sakir þurrar og hreistrandi húðar til
A-vitaminskorts. Borðið því ferskt græn-
meti, egg, mjólk og lýsi, helzt daglega.
Fersk húð. Rakakremin eru ágæt á
þurra húð. Þau tryggja rétt rakastig og
gott að nota þau sem undirlag fyrir
dagkrem og púður, og einnig undir næt-
urkrem. Með notkun þeirra er komizt
hjá fitugljáa húðarinnar. Notið við og
við vitaminkrem eða nærandi lanolin-
krem.
Gætið að hálsinum. Þurr húð tak-
markast ekki eingöngu við andlitið, sem
oftast er tilfellið með feita húð. Öll
húð líkamans er þurr. Til eru alls kyns
sérkrem, t. d. fyrir augnaumbúnaðinn,
fyrir hálsinn, — gætið sérstaklega að
honum, ef þér eruð komnar yfir þrítugt,
— og „lotion“ til að smyrja sig með
eftir baðið. Munið, að nota sólkrem, og
gætið að þurrum vörum, þurrum hönd-
um o. s. frv.
Feit húð.
Einkenni: Húðin er gróf og með djúp-
um holum, hún gljáir einkum á hök-
unni, enninu og kringum nefið. Of feit
húð á rætur sínar að rekja til starf-
semi fitukirtlanna. Þrátt fyrir það, að
hún er oftast arfgeng, er margt hægt
að gera til að ráða bót á henni. Fyrst
og fremst með því að breyta matar-
venjum sínum. Forðast allt sætt og feitt,
borða mikið af grænmeti og ávöxtum
og drekka mikið af vatni milli máltíða.
Hirða þarf húðina af mikilli nákvæmni,
því að feit húð lítur auðveldlega ósnyrt
og óheilbrigð út.
Hreinsun: Feit húð eins og drekkur
í sig ryk, sót og gamlan farða. Þvoið
hana vel með vatni og sápu eða „cream-
foam“. Vætið hana með ,,astringerandi“
(lokandi) andlitsvatni eftir hvern þvott.
Tvisvar í viku skal nota sérefni fyrir
feita og óhreina húð, eins og t. d.
„beauty grains“, sem einkum vinnur á
móti bólum og húðormum, er sótthreins-
andi. Munið, að bera sérkrem á augna-
umbúnaðinn, sem venjulega þarfnast
næringar við, þótt húðin sé að öðru leyti
feit.
B-vítamín: Feit húð getur átt rætur
sínar að rekja til B-vítamínsskorts. Bezt
er að bæta úr þessum skorti með réttu
matarræði. B-vítamín er mikið í inn-
mat (lifur, nýru o. s. frv.) og í heilmöl-
uðu korni og heilhveitibrauði. Ágætt er
að borða pressuger, sem er einkar auð-
ugt af B-vítamíni.
Andlitsmeðferð: Það borgar sig að
fara við og við á viðurkennda snyrti-
stofu. Þar er hægt að fá ,,maska“ fyrir
feita húð, og þar eigið þér að geta fengið
ráðleggingar um daglega hirðingu húð-
ar yðar og andlitsförðunar vandamál.
Andlitsförðun. Gætið að litunum við
andlitsförðun. Notið púður og púður-
undirlag með dálitlum róslitum blæ, því
'að andlitsfitan hefur tilhneigingu til að
setja gulleitan blæ á andlitsförðunina.
Notið ekki fitandi rakakrem og gætið
ýtrustu varúðar við andlitsförðunina,
því að þykkt farðalag gerir feita húð
grófa og ójafna.