Fálkinn - 05.04.1961, Síða 23
Blönduð húð.
Mjög algeng húðgerð er sambland af
þurri og feitri húð. Húðin er feit á enn-
inu, niður eftir nefinu og hakan, hinn
hluti andlitshúðarinnar er þurr. Af þessu
leiðir, að hluta andlitsins þarf að með-
höndla sem um fituhúð væri að ræða
og hinn hlutann sem þurra. Bezt er því
að nota kremkenndar sápur, eða „cream-
foams“, sem hæfir báðum húðgerðum.
Vætið síðan þann hluta húðarinnar, sem
feitur er, með sterku andlitsvatni og
hinn með veikara. Bera þarf nærandi
krem á þurru andlitshlutana, en var-
ast að það komi inn á þá feitu. Mikil
vinna er í því fólgin að hirða svona húð,
en sú vinna og erfiði margborgar sig.
Með kvöldteinu
Heilhveitiskonsur.
200 g. heilhveiti,
200 g. hveiti,
4 tsk. lyftiduft,
Vz tsk. salt,
1 tsk. sykur,
125 g. smjörlíki,
1 egg,
nál. ‘IVi dl. súrmjólk.
Venjulegt hnoðað deig. Deigið hnoð-
að sem minnst. Skipt í tvennt, flatt út
í þykka kringlótta köku, sem skorin er
með beittum hníf í 6 þríhyrninga. Sett
á smurða plötu, smurt með eggi eða
mjólk. Bakað í velhituðum ofni, 250—
275°, í 10 mínútur.
Borið fram nýbakað, klofið, með
smjöri og marmelaði eða osti. Einnig
ágæt t. d. með reyktu áleggi.
M,vV
Svolítið um banana
Bananar eru þá fyrst fullþroskaðir, er
þeir eru algulir og með örlitlum brúnum
blettum á hýðinu. Ef þér kaupið lítt
þroskaða banana, fullþroskast þeir við
venjulegan stofuhita, en ágætt er að
nota þá til matargerðar.
Geymið aldrei banana í ísskápnum!
Bezt er að geyma þá við nál. 16° celsius.
Að minnsta kosti á ekki að geyma þá
við minni hita en 10° celsius né meiri
en 20° celsius.
Bananar eru góður matur. Bananar
innihalda aðeins 0,2% fitu, ekkert kole-
sterol (álitið valda æðakölkun), en
20.4% kolvetni sem ávaxtasykur, er gef-
ur fljótt orku. Bananar eru ágætir A-
vitamimngjafar, auk þess innihalda þeir
Bi, B2 og C-vitmin og af söltum, járn,
fosfor og kalk. Meðalstór banani gefur
nál. 90 kaloríur. Ekki eru bananar hent-
ugir í megrunarkosti, þeir innihalda allt
að því helmingi meiri kolvetni en aðrir
ávextir.
Bananar dökkna fyrir áhrif loftsins.
Ef nauðsynlegt er að geyma þá flysj-
aða, er ágætt að nú þá upp úr sítrónu
eða með öðrum skyldum ávexti.
Banana er hægt að bera fram óbreytta
sem ábæti eða niðursneidda, með dá-
litlum sykri og þeyttum rjóma. Ágætt
er að nota þá í blönduð ávaxtasalöt eða
hlaup. Einnig er hægt að steikja þá
ýmist á pönnu eða í ofni og bera þá
þannig fram með ýmsum kjötréttum.
Bananar eru ágætir handa ungbörn-
um, en fara skal hægt af stað, og hafa
í huga, að þeir geta verið leysandi.