Fálkinn - 05.04.1961, Síða 29
izt áfram við staf með harmkvælum og
aldrei beðið þess bætur.
Margir fleiri ortu kvíðlínga útaf þessu
efni, en Guðmundur sinnti því ekki
nándar nærri öllu, enda sjaldnast um
ósvífni að ræða á borð við kveðskap
Þórðar og séra Jóns.
★
Skáldskapur Guðmundar Bergþórs-
sonar var af ýmsu eðli og allsérstæður
þarsem honum tókst bezt upp. Af and-
legum kveðskap og sálmum orti hann
lítið. í flestu sem eftir hann liggur koma
fram skýr dæmi vitsmuna og spaklegr-
ar íhugunar. Hann orti kynstrin öll af
kvæðum og vísum, þ. á. m. mikið af
söguljóðum sem hann færði gjarnan í
dæmisagnabúníng með það fyrir aug-
um að þau yrðu nytsöm til fræðslu og
heilræða. Kvæði hans dreifðust ört í
uppskriftum og voru mikið lesin og
súngin, en ekkert var prentað af skáld-
mælum hans meðan hann lifði, og raun-
ar tiltölulega lítið síðan. Heimspekínga-
skóli var prentaður í Hrappsey 1785 og
tvisvar eftir það; hann er kvæði í 18
greinum og fjallar um ótal hluti milli
himins og jarðar, þarsem Guðmundur
notar sér kenníngar forngrískra og lat-
neskra spekínga. Ber kvæðið vitni um
fádæma þekkíngu íslenzks almúga-
manns á þessum tíma. Tólfsonakvæði,
Barbarossakvæði og fleiri sagnakvæði
hafa og verið prentuð. Af rímum orti
Guðmundur fjölda, líklega a. m. k. 15
flokka, og eru 13 þeirra varðveittir.
Þeirra mestur er Olgeirs rímur danska,
sem raunar er stærsti rímnaflokkur sem
ortur hefur verið, 60 rímur að tölu; þær
orti Guðmundur 23 ára gamall eftir
hinni dönsku Olgeirskroniku, um einn
af frægustu köppum Karlamagnúsar.
Guðmundur var vel að sér í dönsku, og
víða sækir hann yrkisefni í erlend rit.
Olgeirsrímur voru prentaðar 1947. Af
öðrum rímum hans hefur Jannesarríma
ein verið prentuð. Flestar rímur sínar
orti Guðmundur útaf útlendum skáld-
ritum eða þá riddarasögum, en sótti lítt
yrkisefni í íslenzk fornrit.
Hér hefur aðeins lauslega verið drep-
ið á ævistarf þess umkomulitla vesal-
íngs sem fyrrum var barinn frá bók-
inni norðurá Staðarbakka. Hinsvegar
veit ég eingin ummerki né vott um
starfsemi þess slektis sem þar neytti
líkamlegs aflsmunar, og hætt er við að
þessi minníng um það lifi leingst: að þar
hafi krypplíngurinn á Stapa bágast átt.
(Heimildir: Formáli fyrir Ol-
geirsrímum útg. 1947, Þjóðsögur
Jóns Árnasonar, Þjóðsögur Ólafs
Davíðssonar. íslenzkir vikivakar
og vikivakakvæði, Saga íslend-
inga V. bindi( Páll E. Ólason) o.
fl.).
flAtrí Ákrí^at
FRÁ SJÓNARHÓLI STJÖRNUSPEKINNAR
Ég er fæddur 1913 í Reykja-
vík. Fór að læra iðn mína í
nóvember 1927. Varð verk-
stjóri í henni 1939 og var það
til 1954. Hef unnið sem sveinn
síðan. Gifti mig í janúar 1940
og skyldi við konuna 1945 og
á fjögur börn. Flutti austur
1958 til að drekka minna og
það hefur tekizt.
Mig langar að stofna heim-
ili ef ég fyndi konu við mitt
hæfi og er forvitinn þar um.
Ég tapaði ökuréttindunum
í sumar á sérlega dularfullan
hátt. Hef tapað þeim áður en
fæ ég þau aftur?
Með fyrirfram þakklæti fyr-
ir spádóminn.
Alex. Sveinsson.
Svar til Alex. Sveinssonar.
Þú ert fæddur undir sól-
merkinu Mey. Þetta gerir þig
mjög glöggan og þeir sem
hér eru fæddir eru oft gæddir
næmri gagnrýnisgáfu og sjá
andstæðinginn oft niður í
kjölinn. Þú ert fljótur að átta
þig á hlutunum og laginn að
hagnýta þér og öðrum þá
þekkingu sem þú býrð yfir.
Mánaafstaða þín í Krabba-
merkinu bendir til drykkju-
hneigðar, en einnig bendir
hún til þess að þú búir yfir
ríkri þrá í brjósti þínu til að
eignast heimili, sem veitir þér
þá hvíld og ró sem þú þarfn-
ast. Saturn og Marz í Tvíbura-
merkinu eru slæm tákn um
allt sem lýtur að bifreiðum og
sambandi þínu við þær. Ég
mundi því segja að þú eigir
ekki afturkvæmt með öku-
skírteinið. Því ástæðan mun
mjög sennilega hafa verið
áfengisneyzla. Þessar afstöð-
ur voru ertar mjög upp síðast-
liðið sumar þannig að afleið-
ingin varð ökuréttindamissir
þinn.
Uranus í Vatnsberamerkinu
bendir til þess að þú eigir sem
minnst að treysta á vini þína
enda virðast þeir ekki hafa
sérlega heppileg áhrif á þig.
Þú ættir að endurskoða af-
stöðu þína í sambandi við öll
vinabönd sem þú hefur bund-
izt um ævina. Þessi afstaða
Uranusar hefur einnig nokk-
uð óheppileg áhrif á tauga-
kerfi þitt og magann, þannig
að þér hættir til að fá veik-
indaköst í líffærum tilheyr-
andi kviðarholi.
Afstöður Jupiter í Stein-
geitarmerkinu benda til að þú
hefðir átt að geta náð viður-
kenningu í starfi þínu, en ég
sé ekki betur en að heimilis-
líf þitt hafi orðið þér til traf-
ala, þannig að þú náðir ekki
þeim árangri sem annars
hefði mátt vænta. Áhyggjur
út af heimilinu og árekstrar
innan þess hafa eyðilagt vilja-
kraft þinn þannig að þú eydd-
ir tíma, fé og orku til óæski-
legrar dægrastyttingar.
Viðvíkjandi spurningunni
um það hvort þú mundir ná í
kvonfang aftur, þá er alls
ekki útlit fyrir það að svo
stöddu, því næstu árin eru
mjög óhagstæð með tilliti til
þessa. Þú misstir konuna og
verkstjórastarfið 1954. Þetta
var á þeim tíma sem Uranus
var í Krabbamerkinu og hafði
hann mjög óheppileg áhrif á
heimilislíf þitt og atvinnu.
Einnig mun heilsufar þitt
hafa verið með lakara móti
þá, það er að segja geðsmuna-
legt jafnvægi, sem síðan hefur
komið fram sem tíðari árekstr-
ar milli þín og fjölskyldu
þinnar. Hins vegar býr alltaf
sterk löngun hjá þér til að
stofna heimili og mundi ég
ráðleggja þér að reyna að
koma þér upp íbúð fyrir þig
einan, þar sem þú hefðir frið
og ró.
Það eru engin merki um tvær
giftingar 1 korti þínu og spái ég
þér því ekki annarrar gifting-
ar. En það má margt sér til
gamans gera og þú getur
eignazt nýja vini, sem hæfðu
betur þeim hugsjónum, sem
ég veit að þú gerir þér um líf-
ið. Þegar maður vill brjóta
blað í lífi sínu og fara að lifa
betra lífi verður maður einn-
ig að segja skilið við marga
fyrri vinl.
^ Ef lesendur langar til að vita, hvað stjörnurnar segja
um örlög þeirra og vandamál, þá er auðvelt að verða við
þeirri ósk: ASTRÓ spáir í stjörnurnar fyrir lesendur FÁLKANS
Bréf til hans sendist til Fálkans, pósth. 1411 - merkt ASTRÓ
FÁLKINN
29