Fálkinn


Fálkinn - 13.12.1961, Page 12

Fálkinn - 13.12.1961, Page 12
H- ¥ ULL VEFNAÐJR fm LYKKJUTEPPI VEIARINN DOSIRNAR LÆGSTA f VERDID W 4/ ' i '•* NYJAR, LOFTÞETTAR DOSIR. SEM MJÖG ■ AUÐVELT ER AÐ OPNA/. .. ' Umboðsmenn:-KRISTJAN O. SKAGFJORD h/f REYKJAVIK * * * * ¥ ¥ * ¥ * ¥ ¥ xí* ¥ * ¥ ¥ * ¥ * ¥ * ¥ * ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ & ¥ ¥ * t f ¥ ¥ & ¥ ¥ ¥ ¥ * ¥ ☆ ¥ ¥ ¥ x}> ¥ % xK 4f jcta PÚSTHÓLFIÐ + Sjónvarpsjólasveinar. Kæri Fálki. — Ég er 8 ára og bý í Reykjavík. Pabbi á sjónvarp. Ég horfi alltaf á það, þegar ég get og þeg- ar ég er ekki að sendast. Nú langar jnig til að spyrja: Er nokkuð hættulegt að horfa á sjónvarp? — Koma nokkrir jólasveinar fram í því í Keflavík um jólin? Siggi. Svar: Það er að vísu talið hœttulítið að horfa á sjónvarp í hófi, en fróðir menn segja okkur, að það sé hæði tímasóun og geti verið mannskemmandi að horfa lang- tímum á það, einkum ef viðkomandi áhorfandi hefur ekki vit á að velja og hafna og gleypir hugsunarlaust við öllu, sem þar er sýnt. Hvað hinu viðvíkur, þá höf- um við heyrt, að þar komi alltaf fram jólasveinar öðru hverju, svo að líklega verður engin undantekning á því nú. Óvenjuleg lengd á bílum. Akureyri, 21. nóv. 1961. Kæri Fálki. — í ykkar ágæta blaði, var fyrir skemmstu grein um bílasýningu SÍS. — Af því tilefni get ég ekki látið hjá líða að votta vesalings Opeleig- endum samúð mína. Aumingja fólkið, sem verður að aka í svona löngum bílum. Ætli þeir séu ekki rúm- frekir á bílastæðum, og hvernig skyldi sumum ganga að „parkera“? SÍS hefur gefið upplýsingar um lengd Opelbíla í flestum dagblöðunum og nú einnig í Fálk- anum. Þessar upplýsingar eru á þá leið, að í landinu séu nú á níunda hundrað Opelbíla og væri þeim rað- að í eina lest, næði hún frá Reykjavík til Þingvalla, en það er 50 km vegalengd. — Ég hélt í fáfræði minni, að Opelbílarnir væru að meðaltali um 5 m á lengd og myndi þá þessir rúmlega 800 Opelbílar mynda lest er væri rúmir 4 km á lengd. SÍS-herrarnir hafa eflaust rétt fyrir sér, en þeir skulu aldrei fá mig til að kaupa 55 metra langan Opelbíl. Með beztu kveðjum, Thunderbird. Svar: Þér hefðuð heldur átt að skrifa sjálfum SÍS-herr- unum og henda þeim á þessi mistök. En hins vegar skulum við koma þessari snjöllu athugasemd á fram- fœri og líklega líður ekki á löngu áður en svar berst við henni. Súkkulaðipædagógar o. fl. ísafirði, 23. nóv. 1961. Pósthólf Fálkans, Reykjavík. Sem svar við pistlinum „Bækur og börn“ í Fálkan- um nr. 45 langar mig til að segja, að hversu gagnleg sem Njála kann að vera fyrir íslenzk börn, þá virðist sem háttvirtur bréfritari, K. Þ., hafi ekki haft ýkja mikið gagn af lestri þeirrar bókar. — Varla get ég ímyndað mér að á blaðsíðum Njálu standi skrifuð orð eins og „skúrkur, súkkulaðimórall, abnorm, og súkku- laðipædagógar“, en það er orð, sem nefndur bréfritari

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.