Fálkinn - 13.12.1961, Síða 12
H-
¥
ULL
VEFNAÐJR
fm
LYKKJUTEPPI
VEIARINN
DOSIRNAR LÆGSTA f VERDID
W 4/ ' i '•*
NYJAR, LOFTÞETTAR DOSIR. SEM MJÖG
■ AUÐVELT ER AÐ OPNA/. .. '
Umboðsmenn:-KRISTJAN O. SKAGFJORD h/f REYKJAVIK
*
*
*
*
¥
¥
*
¥
*
¥
¥
xí*
¥
*
¥
¥
*
¥
*
¥
*
¥
*
¥
¥
¥
¥
¥
&
¥
¥
*
t
f
¥
¥
&
¥
¥
¥
¥
*
¥
☆
¥
¥
¥
x}>
¥
%
xK
4f
jcta PÚSTHÓLFIÐ
+ Sjónvarpsjólasveinar.
Kæri Fálki. — Ég er 8 ára og bý í Reykjavík. Pabbi
á sjónvarp. Ég horfi alltaf á það, þegar ég get og þeg-
ar ég er ekki að sendast. Nú langar jnig til að spyrja:
Er nokkuð hættulegt að horfa á sjónvarp? — Koma
nokkrir jólasveinar fram í því í Keflavík um jólin?
Siggi.
Svar:
Það er að vísu talið hœttulítið að horfa á sjónvarp
í hófi, en fróðir menn segja okkur, að það sé hæði
tímasóun og geti verið mannskemmandi að horfa lang-
tímum á það, einkum ef viðkomandi áhorfandi hefur
ekki vit á að velja og hafna og gleypir hugsunarlaust
við öllu, sem þar er sýnt. Hvað hinu viðvíkur, þá höf-
um við heyrt, að þar komi alltaf fram jólasveinar
öðru hverju, svo að líklega verður engin undantekning
á því nú.
Óvenjuleg lengd á bílum.
Akureyri, 21. nóv. 1961.
Kæri Fálki. — í ykkar ágæta blaði, var fyrir
skemmstu grein um bílasýningu SÍS. — Af því tilefni
get ég ekki látið hjá líða að votta vesalings Opeleig-
endum samúð mína. Aumingja fólkið, sem verður að
aka í svona löngum bílum. Ætli þeir séu ekki rúm-
frekir á bílastæðum, og hvernig skyldi sumum ganga
að „parkera“? SÍS hefur gefið upplýsingar um lengd
Opelbíla í flestum dagblöðunum og nú einnig í Fálk-
anum. Þessar upplýsingar eru á þá leið, að í landinu
séu nú á níunda hundrað Opelbíla og væri þeim rað-
að í eina lest, næði hún frá Reykjavík til Þingvalla,
en það er 50 km vegalengd. — Ég hélt í fáfræði minni,
að Opelbílarnir væru að meðaltali um 5 m á lengd
og myndi þá þessir rúmlega 800 Opelbílar mynda lest
er væri rúmir 4 km á lengd.
SÍS-herrarnir hafa eflaust rétt fyrir sér, en þeir
skulu aldrei fá mig til að kaupa 55 metra langan
Opelbíl.
Með beztu kveðjum,
Thunderbird.
Svar:
Þér hefðuð heldur átt að skrifa sjálfum SÍS-herr-
unum og henda þeim á þessi mistök. En hins vegar
skulum við koma þessari snjöllu athugasemd á fram-
fœri og líklega líður ekki á löngu áður en svar berst
við henni.
Súkkulaðipædagógar o. fl.
ísafirði, 23. nóv. 1961.
Pósthólf Fálkans,
Reykjavík.
Sem svar við pistlinum „Bækur og börn“ í Fálkan-
um nr. 45 langar mig til að segja, að hversu gagnleg
sem Njála kann að vera fyrir íslenzk börn, þá virðist
sem háttvirtur bréfritari, K. Þ., hafi ekki haft ýkja
mikið gagn af lestri þeirrar bókar. — Varla get ég
ímyndað mér að á blaðsíðum Njálu standi skrifuð orð
eins og „skúrkur, súkkulaðimórall, abnorm, og súkku-
laðipædagógar“, en það er orð, sem nefndur bréfritari