Fálkinn - 13.12.1961, Síða 13
notar óspart. Einnig vil ég benda á það, að sagt er:
„að hafa nefið niðri í öllu“, en ekki „ofan í“.
V ir ðingar f yllst,
Gróa.
ic Guðsótti.
— Mér þykir furðulegt, að eins guðrækin þjóð og
íslendingar látast vera skuli kirkjur ekki meira sóttar
en raun ber vitni. Þessar glæsilegu byggingar standa
alltaf hálftómar, aðeins einstaka sinnum við jarðar-
farir merkismanna eru þær þéttskipaðar. Hvernig er
þetta á jólunum, eru kirkjurnar þá tómar? Og hvernig
er því varið, að á íslandi eru fleiri helgidagar en hjá
nokkurri annarri þjóð?
G. G.
Svar:
Já, ekki verður því neitað, að íslendingar Sýna guði
sínum mikla virðingu. Helgidagar eru hér tiltölulega
fleiri en í öðrum löndum, t. d. halda sumar þjóðir alls
ekki upp á annan í jólum né annan í páskum. Hvað
hina spurninguna snertir eru flestar kirkjur i Reykja-
vík þéttskipaðar á jólunum, enda hefur margt fólk það
fyrir sið að fara í kirkju þá, sérstaklega á aðfanga-
dagskvöld. Reynið sjálf að fara þá í kirkju og þér
munuð sannfœrast.
ic Myndagerð og getraunir.
— Um leið og ég sendi ráðninguna á þessari mjög
svo skemmtilegu þraut, langar mig til að þakka fyrir
hinar ágætu myndir, sem birzt hafa í því sambandi.
— Þegar ég var níu ára, lærði ég að framkalla og fixa
myndir einmitt úr Fálkanum. Því miður er nú þetta
gamla Fálkablað tapað. — Nú hef ég myndagerð sem
hobby og á ég allgóð tæki til slíkra, en höfuðtækið
vantar mig, sem sagt, tökuvélina sjálfa ...
V. B. O.
ic Jólakort.
... Hvernig er það, er hvergi hægt að fá almennileg
jólakort, mér finnst þau svo ljót, sem hingað til hafa
fengizt í búðunum, gamaldags og ósmekkleg. Þetta
eru alls konar glansmyndir og fleira því um líkt, sem
mér finnst ekki viðeigandi að senda sem jólakveðju.
Gætuð þér bent mér á falleg og smekkleg jólakort?
Maggi.
Svar:
Við gætum t. d. bent yður á jólakort þau, sem barna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna gefur út til styrktar starf-
semi sinni. Enn fremur fœst hér fjöldinn allur af lista-
verkakortum, sem vel eru þess verð að vera falleg
vinarkveðja á jólunum.
ic Jólakveðjur.
— Finnst ykkur það ekki allt of venjulegt að skrifa
kærustunni jólakort á jólunum með kveðjunni: Gleði-
leg jól og farsælt komandi nýár? Eða ætti maður að
reyna að búa eitthvað nýtt til.
Gvendur Stebba.
Svar:
Okkur finnst, að þér œttuð fremur að gefa henni
jólagjöf. En að sjálfsögðu, ef yður þykir þessi kveðja
allt of venjuleg, þá œttuð þér að búa til einhverja nýja.
*
X}>
*
&
*
-K
*
-K
*
-K
*
-K
-K
-K
x}>
-K
Xh
-K
*
x}>
*
-K
*
-K
-K
-K
Xh
-K
x}*
-K
xh
-K
xh
-K
x}>
-K
Xh
-K
xh
-K
-K
&
-K
■X}-
-K
x^
-K.
-K
-K
x}>-
-K
Junghans klukkur fást hjá flestum
úrsmiðum
SIG. Þ. SKJALDBERG
SÍMI 114!>1 (3 liimr)
ÍIEILDS ALA - SMÁSALA