Fálkinn - 13.12.1961, Qupperneq 37
Skyndilega fannst henni hún heyra
hljóð fyrir utan. Með erfiðismunum tók
hún þungu hurðarslána frá, og lagði
báðar hendur á ískalt járnhandfangið
til þess að ýta því niður. Það var ekki
auðvelt, því að stormurinn þrýsti stöð-
ugt á dyrnar og líkt og spennti þær
fastar. Þá féll flöktandi ljós á hendur
hennar sem héldu fast við læsinguna.
Hún leit undrandi upp og þarna, í breið-
um eikarstiganum sem lá upp á loftið,
gekk ókunn kona í gráum klæðum
hægt í áttina til hennar. Konan var
með kertastjaka í hendi og sítt hár
hennar féll laust um axlir hennar.
Teresa fann hræðilegan kulda læsast
um sig alla, — það var eins og blóðið
væri frosið í æðum hennar og hjarta
hennar stanzaði af hræðslu. í sama
mund hrukku útidyrnar upp, hið svera
járnhandfang skall í hnakkann á henni,
og hún féll blóðug á gólfið.
Þá nótt fæddist afi. Teresa náði sér
aldrei til fulls eftir þetta og upp á
fyrstu hæð vildi hún aldrei fara.
■ Morguninn eftir kom bóndi nokkur
með þær fréttir, að fundizt hefði hálf-
drukknaður og stíffrosinn maður á
ströndinni nokkrum mílum sunnar.
Það var einn af frændunum. Þegar
hann kom aftur til sjálfs síns, sagði
hann að þeir hefðu lagt af stað yfir
flóann snemma eftir hádegið, og þá
hefði rokið ekki verið svo mikið. Það
snjóaði þó stöðugt og brátt komust
þeir að raun um, að þá hafði rekið
suður á bóginn. Veðrið tók að versna
og fyrr en varði var komið fárviðri.
Hvað eftir annað voru þeir komnir all
nærri ströndinni, en engin tök voru
á að ná landi. Myrkrið skall á. Tímum
saman börðust þeir fyrir lífi sínu á
litla bátnum. Aðframkomnir af þreytu
og vosbúð gáfust þeir loks upp og
skömmu síðar hreif alda bátinn með
sér. Hann vissi ekkert um félaga sína.
Hér endaði barónessan frásögn sína
jg leit upp.
— En Rudolf, spurði Alice. — Fannst
nann aldrei?
— Löngu seinna fundust hann og
frændur hans á litlum hólma fyrir
sunnan herragarðinn, þar sem kvikfé
var sett á beit um sumartímann. Hann
hlýtur að hafa bjargað þeim báðum í
land, því að þeir voru ósyndir. Þeir
höfðu reynt að gera sér skjól ur brotn-
um bátnum. Þeir höfðu einnig reynt
að kveikja bál, mátti sjá, en þeir höfðu
ekki fengið það til að loga. Þeir létust
báðir, holdvotir í snjónum og kuld-
anum.
— Hræðilegt, tautaði Alice. — En
hvers vegna varð hún svona hrædd
við gráklæddu konuna? Hún ætlaði
aðeins að hjálpa henni!
★
Alice settist eldsnöggt upp í rúmi
sínu. Það var niðadimmt í herberginu.
Hún heyrði storminn gnauða á glugga-
rúðunum, skrjáfa í þurrum blöðum
bergfléttanna á múrveggnum og sveigja
greinarnar á gömlu trjánum í garð-
inum.
Hún rétti fram hendina eftir slökkv-
aranum á leslampanum, og þrýsti hon-
um niður, en ekkert gerðist. Hún þreif:
aði á perunni til þess að gæta að, hvort
hún væri laus, en hún var brennheit.
Hún kippti leiftursnöggt hendinni að
sér og rak upp óp. Hún hlaut að hafa
sofnað yfir bókinni, en vaknað aftur
við að ljósið slokknaði. Klukkan með
sjálflýsandi vísunum var níu. Hún gat
naumlega greint hvít gluggatjöldin fyr-
ir háum gluggunum. Þegar hún teygði
sig eftir innanhússsímanum, missti
hún tólið í gólfið, og það mölbrotnaði.
Sennilega hefði hann heldur ekki virk-
að, ef öryggin voru ónýt. Varfæi-nis-
lega fálmaði hún yfir borðið, sem á
voru sígarettur, blöð og bækur, og
reyndi að finna eldspýtur. Hún fann
þær loks, stakk fótunum niður í inni-
skóna sína og gekk í áttina að glugg-
unum. Á litlu borði á milli þeirra stóð'
þríarma kertastjaki. Þegar hún hafði
kveikt á honum sá hún, að glugga-
tjöldin bærðust vegna gusts frá glugg-
unum. Það fór hrollur um hana og hún
klæddi sig í snatri í morgunsloppinn
sinn. Hann var jólagjöf frá Allan,
glæsilegur útlits en hlýr var hann ekki.
Hér á herragarðinum var aðeins hægt
að ganga í fóðruðum flíkum. Þrátt fyr-
ir öll nútíma þægindi var kalt í þess-
um stóru stofum. Þess vegna hafði
hún gengið til hvílu snemma í kvöld,
þar sem hún var ein heima, í staðinn
fyrir að sitja niðri í bókasafninu, sem
var eftirlætis herbergi hennar.
Allan hafði því miður orðið að fara
daginn áður. Það var ekki ýkja langt
síðan þau höfðu flutt inn í herragarð-
inn. Handverksmennirnir höfðu ekki
lokið verkefnum sínum fyrr en nokkru
fyrir jól. Alice hafði svo gjarna viljað,
halda jólin hátíðleg út af fyrir sig í
Frh. á bls. 47.
fXlkinn 85