Fálkinn - 13.12.1961, Blaðsíða 41
JÚLIN
OG
HÚSMÆOURNAR
RITSTJORI:
KRISTJANA
STEINGRÍMSDÚTTIR
Mjúkar vanillukaramellur.
3 dl rjómi
450 g sykur
50 g vanillusykur
20 g glukose
50 g kókósfeiti.
Allt sett í þykkan pott, látið sjóða nál.
5 mínútur. Hellt á smurða plötu. Látið
kólna dálítið. Hrært í deiginu með breið-
um hníf, þar til það verður fyrst fín-
kornótt, síðan fast. Athugið, að blanda
deigið vel með jöfnum þó ekki 'hröðum
handtökum, þá verður það mjúkt og
meðfærilegt. Flatt út eins þykkt og hver
vill, fallegt er að móta rákir á deigið.
Eftir dálítinn tíma hefur deigið harðn-
að að utanverðu, skerið það þá niður
í hæfilega stóra bita með beittum hníf.
Karamellur þessar geymast vel í luktu
íláti á þurrum og köldum stað.
Mjúkar vanillukarmellur
Súkkulaðitoppar.
2 egg
150 g sykur
3 msk kakaó
250 g plöntufeiti.
Egg og sykur þeytt létt og ljóst. —
Plöntufeitin brædd, hrærð saman við
ásamt kakaóinu. Deigið geymt á köldum
stað, þar til það verður eins og smjör,
þá er það þeytt upp á ný, þar til það
er létt og mjúkt. Látið 1 sprautupoka og
sprautað í lítil pappírsmót. Látið storkna
á köldum stað. Geymt á köldum stað í
velluktu íláti, leggið pappír milli laga.
Hnetukonfekt.
100 g flórsykur
100 g hökkuð hafragrjón
75 g saxaðir ‘hnetukjarnar
1 eggjahvíta
35 g brætt smjör
örlítið möndludropar.
Öllu blandað saman og hnoðað. Mót-
aðar litlar kúlur, sem huldar eru með
hjúpsúkkulaði, skreyttar með söxuðum
eða heilum hnetum.
Súkkulaðitoppar
FALKINN
39