Fálkinn - 13.12.1961, Qupperneq 44
Súkkulaðifrauð.
100 g suðusúkkulaði
1 msk. vatn
4 eggjahvítur
4 eggjarauður
10 möndlur.
Súkkulaðið brætt í vatninu yfir
gufu. Eggjahvíturnar stífþeyttar.
Eggjarauðunum hrært einni og einni
í senn saman við súkkulaðið, þeytt
vel. Hinum stífþeyttu eggjahvítum
blandað varlega saman við. Sett í lítil
ábætisglös, geymt á köldum stað
nokkra klt. Skreytt með, flöguðum
möndlum og þeyttum rjóma.
Bananaábætir.
4 lítið þroskaðir bananar
3 egg
2 msk. romm
1 msk. kakaó
1 tsk. vanillusykur
1 msk. flórsykur
1 tsk. sítrónusafi
3 dl þeyttur rjómi
2 msk. rifið súkkulaði.
Bananarnir flysjaðir og marðir.
Þeytið eggjarauður, banana, rommið,
kakaó, vanillusykur, flórsykur og
sítrónusafa, þar til það er létt. Eggja-
hvíturnar stífþeyttar, blandað var-
lega saman við. Setjið bananakremið
og þeyttan rjóma til skiptis í skál eða
ábætisglös, rjómi efst. Skreytt með
rifnu súkkulaði. Bezt er að bera þenn-
an ábæti fram, skömmu eftir að hann
hefur verið búinn til, en gott er að
skjóta honum augnablik inn í ís-
hólfið.
réttir
s
óL
vona
rey
ta
Klippið fínan vír í nál. 8 cm langa búta, beygið þá, svo
að myndist eins og S. Hengið jólatrésskrautið, kúlur og bjöll-
ur á annan krókinn. Verið áður búin að festa þráðarlykkju
í skrautið — og hengið síðan hinn krókinn á sjálft tréð.
42
FALKINN