Fálkinn - 13.12.1961, Blaðsíða 48
Vélin er örugg í okkar höndum
Önnumst viSgerðir á öllum tegundum
dieselvéla til lands og siávar.
Setjum niður vélar í fiskibáta og önnumst
uppsetningu dieselrafstöðva.
Sjáum um viðhald, viðgerðir og tæknilega hjónustu
á eftirtöldum dieselvélum:
• GENERAL MOTORS
• ROLLS-ROYCE
• MaK
• BUKH
• FORD/BHK
Útvegum og seljum alla fylgihluti tilheyrandi
dieselvélum í fiskibáta, s. s.:
GÍRKASSA,
AFLÚRTÖK,
SKRÚFUR & SKRÚFUÚTBÚNAÐI,
LENSIDÆLUR,
HLJÖÐKÚTA o. fl. o. fl.
Einkaumhoð á íslandi fyrir:
• TWIN DISC CLUTCH AG., Zurich,
• OSTERMANN & CO., METALL-
WERKE, Köln,
• JABSCO PUMP CO., Costa Mesa,
Caliíornia.
Útgerðarmenn. Leitið til okkar með vandamál yðar varðandi allt
er lýtur að vélaafli í bátum yðar. Þjálfaðir starfs-
menn og raunhæf reynsla okkar tryggir yður hina
beztu þjónustu.
BJÖRN & HALLDÓR H.F.
VÉLAVERKSTÆÐI
SÍÐUMÚLA 9. — REYKJAVÍK. — SÍMI 36030.
GABRIELA
Frh. af bls. 37.
— Hvað?
Minna gekk áfram og það var kökkur
í hálsinum á henni.
— Ég er með hann Albert hérna hjá
mér, reyndi hún að segja ákveðinni
röddu. — Ég sótti hann í morgun og er
komin með hann aftur heim til okkar.
Nú eru öll börnin hér. Mér datt í hug,
að við gætum snætt morgunverð öll
saman.
Julian sat kyrr og horfði á hana án
þess að mæla aukatekið orð. Hann var
fölur og virtist allt í einu orðinn mjög
ellilegur. Hafði hann skilið, hvað lá að
baki orðum Minnu gömlu? Hafði hann
strax séð, hvað gamla konan hafði í
hyggju?
— Ég var að segja, að ég væri með
hann Albert hérna með mér, endurtók
gamla konan. — Hann bíður hérna
frammi í forstofunni. Ég gat mér þess
til, að lyfsalinn vildi tala við ‘hann. Tala
við hann af skilningi og rósemd, bætti
hún við og um leið brá fyrir angistar-
svip á andliti hennar andartak. En Juli-
an Brandt svaraði alls ekki. Minna sneri
sér snöggt við og gekk snúðugt aftur til
Alberts.
■—■ Farðu inn til hans! Hann bíður
eftir þér á skrifstofunni.
Og hún bætti við áköf:
— Reyndu að skilja hann! Hikaðu
ekki við að stíga fyrsta skrefið til sátta,
ef þú sérð þér það fært.
Albert stundi þungan. Og síðan gerði
hann eins og Minna gamli skipaði hon-
um.
★
Julian Brandt stóð upp frá skrifborð-
inu, þegar sonur hans gekk inn í skrif-
stoíuna. Auðvitað hafði hann allan tím-
an hugsað um drenginn. Hann viður-
kenndi, að hann hafði hegðað sér óskyn-
samlegat gagnvart drengnum og vissan
um þessa staðreynd nagaði sál ‘hans.
Hann hafði sannarlega kvalizt af sam-
vizkubiti, síðan leiðindin gerðust kvöld-
ið áður. Nú munaði hins vegar ekki
nema hársbreidd, að hann léti tilfinn-
ingarnar hlaupa með sig í gönur. Hann
gekk nokkur skref í áttina til sonar
síns og rétti honum höndina.
— Albert, sagði hann lágt, næstum
'hvíslandi. — Ég gerði þér rangt til í
gær. Ég bið þig að fyrirgefa mér. Ég
missti alla stjórn á sjálfum mér. Þú
veizt hvernig skapi mínu er háttað. Mér
er ekki sjálfrátt, þegar ég reiðist . . .
Hann þagnaði. Röddin brást honum.
Og meira þurfi í rauninni ekki að segja.
Albert leit niður. Hann vildi ekki láta
föður sinn sjá, hversu undrandi hann
var. Faðir hans 'haflði beðið hann fyrir-
gefningar! Það gerði þetta allt saman
næstum hálfu verra. Hinn stolti og
sjálfsöruggi faðir hans hafði auðmjúk-